Fálkinn


Fálkinn - 14.02.1962, Page 37

Fálkinn - 14.02.1962, Page 37
□TTD - BARDABINN UM ARNARKASTALA Hinn flýjandi reiðmaður virtist gjörþekkja skógarins stigu, og hann hvarf því skjótt sjónum Ottós. Hann hafði skotizt á milli trjánna og s'kyndilega var eins og jörðin hefði gleypt hann. Ottó stöðvaði reiðskjóta sinn og lagði við hlustir. En hann heyrði ekkert hófatak, aðeins skrjáf í laufi og fuglasöng. „Hvert getur þessi náungi farið?“ spurði hann sjálfan sig. „Hann getur varla verið langt Örin lenti í trjástofni rétt hjá. En Ottó beið ekki boðana heldur dró sverð sitt úr sliðrum og fór með brugðnum brandi að runnunum, þar sem óvinurinn leyndist. En fjand- maðurinn tók að flýja. Og Ottó fylgdi enn einu sinni á eftir og í þetta skipti ætlaði hann ekki að gefa fjandmanni sinum undan.“ Hesturinn ókyrrðist og sneri sér á hægri hönd. Þetta var viðvörunarmerki. Hesturinn tók á rás og á sama augnabliki kom ör fljúgandi. Ottó beygði sig niður að makka hestsins og örin flaug yfir hann. „Skelfingar kjáni er ég.“ Ég mátti svo sem vita, að þeir réðust á mig úr launsátri, en það tekst ekki aftur. tækifæri til þess að komast undan. Þeir riðu ákaft yfir keldur og runna. Allt í einu stöðvaði í-eiðmaðurinn hestinn og snérist til varnar. Ottó réðist djarflega á móti honum. En í æsingnum tók Ottó ekki eftir, að annar reiðmaður nálgaðist þá óðum. Hin skyndilega árás Ottós kom reiðmanninum i gildru. „Hjálp félagi, hjálp,“ hrópaði hann, en Ottó lét höggin dynja bæði til vinstri og hægri. Hrópin rugluðu Ottó andar- tak — var þetta gildra? Var maðurinn að reyna að beina athygli hans frá sér? En þá þegar heyrði Ottó hófadyn að baki sér. Nú var aðeins um eitt að ræða: Duga eða drepast. Hann stóð í ístöðunum og kom þungu höggi á andstæðinginn, svo að hann féll af baki og sverð hans fauk i burtu. Og þar lá hann meðvitundarlaus á jörðunni. Ottó sneri strax í mót hinum, sem áreiðanlega var viss um auð- veldan sigur. „Of seint, kæri félagi,“ hrópaði Ottó og áður en hinn nýkomni gat áttað sig hafði Ottó afvopnað hann. FÁLKINN 37

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.