Fálkinn - 23.05.1962, Blaðsíða 27
Tteir aukeldir púiat
tneí kroAMaum
Púði með fuglamynstri: Nota á ljósan ullarjava 40X40 cm.
10 þræðir í hverjum cm. Púðinn saumaður er 35X35 cm.
á stærð. Saumað með nokkuð fínu ullargarni, 3 litir, sem
falla vel saman.
Varpið yfir kantana og byrjið að sauma mynstrið í efra
vinstra horni púðans. Fylgið mynsturteikningunni, saumið
yfir 2 þræði.
Saumið 8—10 cm. af rammanum í 2 cm. fjarlægð frá brún,
saumið því næst brúnu línurnar, sem skipta púðanum í 5X5
ferhyrninga. Öll hornin eru eins á kantinum en takið eftir
að zig zag kanturinn snýst í miðju hverrar hliðar og er því
dál'ítið frábrugðinn þar. Saumið því næst fugl og stjörnu
til skiptis í ferhyrningana, hafið stjörnu í hornunum.
Pressið krosssauminn á röngunni, saumið bakið í púðann
annaðhvort ullarjava eða apaskinn. Látið yztu krosssaums-
röðina nema í saumbrúnina.
Tvílitur púði: Nota á ljósan, gráan ullarjava 41X38 cm. 7
þræðir í hverjum cm. Saumið með ullargarni. Byrjið að
sauma í efra vinstri horni og saumið krosssaumslínuna nál.
3 cm. frá brún. Skiptið púðanum fyrst í ferhyrninga, fyllið
svo í þá.
Bakið sett í á sama hátt og hinum púðanum. Saumurinn
á að vera 1 cm. frá krosssaumsbrúninni.
i-H-H-!! ii n n n n i mm 11 ii M i m ii rnTTm
x
o
X
o
ryðrautt,
dökkbrúnt
fölgrænt
dökkgrænt
okkurgult
FALKINN
27