Fálkinn - 23.05.1962, Síða 35
SAAB96
5 manna fólksbífreið
RYÐVÁRIN — KVOÐUÐ
YFIRBYGGING PROFILSTYRKT
ROMGÓÐ — STÓR FARANGURSGEYMSLA
SPARHEYTIN — FRÍHJÓLADRIFIN
KRAFTMIKIL V£L 42 HESTÖFL
GÓÐ MIÐSTÖÐ MEÐ
RÚÐUBLÁSARA Á
FRAM- OG HLIÐARROÐUR
ROÐUSPRAUTUR — STEFNULJÓS
TVÖ SÓLSKYGGNI — ÖSKUBAKKAR
TVÖFALDAR FLAUTUR
GARDÍNA FYRIR VELARHLIF
í mælaborði er Kraðamælir, benzínmælir m.
aðvörunarljósi, hitamæhr, rafmagnsmælir
og klukka.
Verð með öllu oíanskráðu kr. 147.000
Komið, skoðið og kynnið yður sænska
fólksvagninn áður en þér festið kaup
annars staðar.
SVEINN BJÖRNSSON & Co.
Hafnarstræíi 22 — Sími 24204
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Undanfarna daga hafið þér brot.ið heilann um mál,
sem ekki getur farið öðruvísi en þér hafiö búizt við.
Þér verðiö að taka þessu með jafnaðargeði. Útlit er
fyrir, að þér verðiö í peningavandræðum í næstu
viku, ef þér gætið þess ekki að fara sparlega með
f jármunina.
Nautsmerkiö (21. apríl—20. maí).
Þetta vcrður t.ímabil mikilla breytinga. Þér eruð
nú óðast að leggja drög að ýmsum málum, sem munu
verða yður til góðs, þegar fram líöa stundir. Það
ríður á bví að þér breytið rétt gagnvart vinafólki
yðar bráðlega. Munið að reynslan er bezti skólinn.
Tvíburamerkiö (21. maí—21. júní).
Nú þegar þér loks hafið öðlast það, sem þér hafið
sett yður, dugar ekki að st.inga höndunum í vasann
og slá öllu út í kæruleysi. Þér verðið að leggja mikla
vinnu á yður til þess að halda því, sem þér hafið
þegar náð. Varið yður á lágvaxinni, dökkhærðri konu.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Það er alltaf tími til þess að rétta öðrum hjálpar-
hönd, enda þótt þér séuð störfum hlaðnir. Hver veit
nema- það get.i borgað sig í framtíðinni. í þessari
viku getur margt skemmtilegt gerzt og útlit er fyrir
að þér lendið í skemmtilegu ástarævintýri um helgina.
Ljónsmerkið (23. júlí—22. ágúst).
Þér ættuð ekki að láta smámunina hafa áhrif á
skap yðar. Yður hættir oft til þess að hlaupa upp
við minnsta tilefni, einkum þegar yður finnst að skyld-
menni og vinir hafi gert eitthvað á hluta yðar. Fjár-
hagurinn verður góður um talsverðan tíma.
Jómfrúarmerkiö (23. ágúst—23. september).
í þessari viku gerist margt óvænt og skemmtilegt.
Þetta verður gleðileg og ánægjuleg vika í alla staði.
Stjörnurnar spá því, að bæði fjárhagurinn og einka-
lífið verði með afbrigðum gott. Á laugardag gerist
skemmtilegur og fyndinn atburður.
Voparskálamerkið (23. september—23. október).
I þessari viku munu þér fá mjög ánægjulegar fréttir
frá persónu, sem annars hefur ekki mikið samband
við yður. Á vinnustað verður tekið eftir því að þér
leggið yður allan fram til þess að inna störf yðar
sem bezt. af hendi og það verður vel launað.
Sporðdrekamerkið (23. október—21. nóvember).
Vikan einkennist af mikilli vinnu og miklu annríki
heima fyrir Stjörnurnar segja, að þér munuð ef til
vill komast í ánægjulegt ferðalag bráðlega þar sem
þér munuð kynnast nýju og ágætu fólki, sem vill allt
fyrir yður gera.
Bogamannsmerkið (22. nóvember—22. desember).
Þessa dagana kemur upp mikið vandamál innan
fjölskyldu yðar og þótt það komi yður beinlínis
ekki við, brjótið þér heilann um það og reynið að
finna lausn á því. Gætið þess bara að blanda yður
ekki inn í einkamál vina yðar heldur ráðleggja heilt
á báða bóga.
Steingeitarmerkið (23. desember—20. janúar).
Yður finnst, að þér séuð um of störfum hlaðnir,
en þér gætið þess ekki að þér hagið vinnunni varla
rétt. Ef þér gerðuð það, gætuð þér afkastað mun
meiru og allir aðilar yrðu ánægðir með störf yðar.
Það er mikils um vert að þér kippið þessu í lag hið
bráðasta.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar).
Það kemur upp svolítill misskilningur í einkalífi yðar
og hann leysist von bráðar, ef þér hagið yður rétt
og látið ekki öfgana hlaupa með yður í gönur. Annars
er vikan fleytifull af gleðilegum atburðum og loksins
munuð þér eignast vini við yðar hæfi.
Fiskamerkið .(20. febrúar—20. marz).
Þér ættuð ekki að láta fjölskyldu yðar blanda sér
í málefni yðar. Það lítur nefnilega út fyrir að hún
vilji fremur skara eld að sinni köku heldur en hjálpa
yður í erfiðleikunum. Varist slarksama félaga.
TALKIN N
35