Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Qupperneq 6

Fálkinn - 13.06.1962, Qupperneq 6
Vandlátir kjósa Sögu ferðaþjónus t u Farseðlar u m allan h e i m fyrir íslenzkar krónur, við íngólfsstræti gegnt Gamla Bíói 6 FÁLKINN Mistök. Akureyri 2375. 1962. í Fálkablaði, sem mér var að berast, er úrklippa frá einhv. Steingr. Hólmgeirs., er hann telur úr íslendingi 1960 og fjallar um fangageymslu í Síðumúla (eða fatageymslu). Eg hef verið ritstjóri blaðs- ins samfleytt frá 1950 (og nær 10 ár áður), og minnist þess ekki, að blað mitt hafi nokk- urn tíma skipt sér af fanga- geymslu við Síðumúla, né birt nokkurt orð í frétta- skyni frá því fyrirtæki. Vona ég, að þér fáið sendanda til að athuga úrklippu sína betur og nefna tölublað og dag, ella leiðrétta, ef rangt er með farið, sem ég tel vera, unz mér er sýnt svart á hvítu, hvar þessi ummæli standa i blaðinu. Vinsamlegast, Jakob Ó. Pétursson. Svar: Því miður urðu þau mistök í umbroti, að línur víxluðust, þannig að lína sú, sem standa átii undir þessari klausu, fór undir ncestu úrklippu fyrir ofan. Þessi klausa, sem ritstjóri Islend- ings minnist á, er úr blaði nokkru, sem kallast Ný vikutíð- indi og gerir sér einkum títt við fanga. Hins vegar var klausa úr Islendingi fyrir ofan og liljóð- ar þannig: „leynivínsalar (séu) upprætt- ir með harðri hendi.“ Þarna er ekki talað um að uppræta leynivínsöluna, heldur leyni- vínsalana, og að uppræta menn með harðri hendi hlýt- ur að þýða aftöku. Um leið og við biðjum afsök- unnar á þessum mistökum, von- um við að ritstjóra Islendings reki minni til þessarar klausu. Smágreinar. -----Ég vil vinsamlegast gera fyrirspurn, þar sem í Fálkanum er talsvert af smá- greinum (skrítlum), sem margir hafa gaman af að lesa, hvort ég ætti að senda ykkur sýnishorn af slíku, er ég hef snúið af Norðurlandamálun- um? Ef yður líkar þetta, vilduð þið máske greiða eitt- hvað fyrir meira af því tagi. Gaman væri að heyra um þetta við tækifæri. Virðingarfyllst, J. S. Svar: Það er tilgangslaust að senda okkur slíkt efni, við höfum nóg af þvi. Reynið að senda þessar smágreinar öðrum blöðum. Krossgátan ráðin. ------Um daginn fór ég í búð og keypti Fálkann eins og ég er vön. Las ég síðan framhaldssöguna og leit vfir kvennaþáttinn. Þá ætlaði ég að bregða mér í krossgátuna, þar sem ég var búin með upp- vaskið og krakkaormarnir loksins komin í ró. En viti menn, hún var þá þegar full- ráðin. Maðurinn minn harð- neitaði að hafa ráðið hana og ég veit, að hann er saklaus af því. Búðarstúlkan og engin önnur hefur gert þetta og mér finnst þetta satt að segja ekki hægt. .. U. Nei, Þetta er ekki luegt. Áróður. ------Mikil hörmung var að sjá allan þennan áróður fyrir kosningarnar. Það var ekki nóg með að hann væri barnalegur, heldur var hann líka illa úr garði gerður. Einu sinni var ákveðið, að áróðurs- spjöld skyldu ekki leyfð um bæinn, en ég sá ekki betur, en merkið um styrka stjórn væri út um allan bæ, í næst- um því hverri einustu búðar- holu . . . I. I. Það þarf styrka stjórn til þess að dreifa slíku. Sólgleraugu. ------Það virðist nú orðin tízka, að ungar tildursdrósir og aðrar meyjar setji upp sól- gleraugu, þá einhver glenna er í lofti. Sólgleraugu eru sjálfsagt ágæt til síns brúks, en heldur vildi ég, að andlitið sæist, jafnvel þótt bleiklitan farðan glampi á. O. O. Þetta er einhver misskilning- ur, það er sjaldan sem að glamp- ar á farða. Flugvéladynur. ------Ég get bara stundum ekki sofnað sökum hávaða á nóttunni. Það eru þessar

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.