Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Qupperneq 11

Fálkinn - 13.06.1962, Qupperneq 11
Húsfreyjan að Heiði, Ólöf Brynjólfsdóttir, í eldhúsi sínu, sem gefur ekkert eft- ir nýtízku eldhúsum í kaupstöðum landsins. verið flóðkelda, sem síðar hefur orðið að læk og hefur þá þornað báðum meg- in við hann. — Hefur þá aldrei verið hér vatns- skortur? — Nei, í 35 ár höfðum við hér vatns- hrút, sem dældi upp vatninu. En svo fundum við lind, við vissum reyndar alltaf um hana, en vorum ekki vissir um, hvort hún gæfi alltaf nóg vatn, en svo komumst við að því að svo var og þá lögðum við vatnsleiðslur heim að bænum og nýbýlinu Heiði. — Hvenær byrjaði sonur þinn að búa á nýbýlinu? — Það var árið 1955. Ég skal segja þér, að eina leiðin til þess að reisa ný- býli er að vinna það upp smátt og smátt, ef bakhjarl er ekki fyrir hendi, — ef unga fólkið á ekki foreldra til þess að styðja að bakinu á þeim. En ef þú vilt fá að vita eitthvað meira um nýbýli, þá skaltu spyrja hann Pálma Einarsson. — Hvernig væri, að þú kæmir með niður að nýbýlinu? -—- Má ekki vera að því, skattarnir, skattarnir bíða. En þú ættir að líta heim að Aratungu og sjá hvernig við Tungumenn búum að menningarmálun- um. Og ef þú mátt vera að, skoðaðu þá kirkjuna að Torfastöðum og athug- aðu, hvernig við byggjum upp gam- alt. — Gerðu það. Þorsteinn gekk hröðum skrefum inn í syðra húsið að Vatnsleysu. Þar sat skatttanefndin á fundi. Bezt að vera sjálfs sín herra. Árlega byggja menn hús. Tíðum er fárast yfir því hve mikið fé það kostar að reisa sér þak yfir höfuðið. En samt er húsbyggingum haldið áfram þangað til hver eyrir er uppurinn. Fólk, sem er að reisa sér þak yfir höfuðið vinnur frá morgni til kvölds, tekur á sig alls konar aukavinnu til þess að komast undir þetta langþráða eigin þak. Stjórn- málaflokkar lofa öllu fögru fyrir kosn- ingar og segja, að ef þeirra flokkur kemst að, muni öllum auðnast að eign- ast þak yfir höfuðið. Sumir láta ginn- ast og kjósa þann flokkinn, sem því lofar fyrir kosningar, en venjulega fer það svo að allt fellur í sama farið og áður. Það verður jafn erfitt að reisa sér þak yfir höfuðið fyrir og eftir kosn- ingar. Hvert sem menn líta, alls staðar má sjá menn vera að byggja hús, í borgum, í bæjum og þorpum og í sveitum. Marg- ar byggingarnar eru ekkert sérlega glæsilegar, öllu er tjaldað: Kassafjöl- um, bárujárni, hraunsteinum. Stundum er þessu öllu hrófað upp saman, svo að ein ófreskja verður úr. En víða má sjá reisulegar nýbygg- ingar, hús, sem ekki hafa verið reist af vanefnum. Glæsileg hús, sem eru eigendum sínum til sóma. Sé ekið um ný hverfi í Reykjavík má víða sjá slík hús, en fæstir borgarbúar hafa tæki- færi til þess að athuga, hvernig byggt er í sveitum. í allmörg ár gat að iíta, ef ekið var um sveitir landsins, lágkúrulegar bygg- ingar, torfkofa og timburhreysi, sem áttu að heita mannabústaðir. Oftast nær voru gripahúsin ekkert betri út- litis. Fjósið var ef til vill rétt hjá sjálfu íbúðarhúsinu, og úr fjóshaugnum lak hland og annar óþverri niður hlaðið og kúamykjan var alls staðar í kring. Ef nokkrar vélar voru til á þessum ó- þrifalegu bæjum, voru þær látnar standa úti og ryðga niður. En á síðasta áratug hefur snyrti- mennska í sveitum stórum aukizt. Víða getur að líta hvítkölkuð, glæsileg hús, bæði gripahús og íbúðarhús. Og ekki er hægt að segja annað en reynt sé að hafa sem allra snyrtilegast í kring- um þau. Garðar í kringum íbúðarhús eru augnayndi, séu þeir fallegir. í höfuð- borginni er mörgum kappsmál að eiga fallegri garð en nábúinn og margur maðurinn eyðir öllum sínum tómstund- um á sumrin í garðrækt. í sveitinni hefur ekki síður verið lögð mikil áherzla Húsið hér á myndinni gæti hæglega verið smáíbúðarhús í Reykjavík, en þetta er íbúðarhúsið að Heiði. Það er 110 ferm. Húsið er mjög snyrtilegt jafnt að utan sem innan. Fjósið og hlaðan að nýbýli Sigurðar Þorsteinssonar, Heiði. Hann hefur tólf mjólkandi kýr í fjósi. Auk þess er Sigurður að koma sér upp hænsnabúi í einum hluta hlöðunnar. FÁLKINN 11

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.