Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Blaðsíða 14

Fálkinn - 13.06.1962, Blaðsíða 14
SÉRKENNILEG SMÁSAGA EFTIR CONRAD FROST wmgggm M „Svo var það líka Davíð Arrett,“ mælti James Felnick hálslæknir, og barði öskuna úr pípu sinni. „Hvað varð eiginlega af honum?“ Við vorum átta, sem höfðum verið saman við nám í háskólanum, og einn dag á ári hverju komum við saman á kaffihús okkar. Við höfðum allir náð virðulegum stöðum í þjóðfélaginu, en þetta eina kvöld á ári vorum við ungir og fjörugir á ný, minntumst félaga sem ekki höfðu elst eins og við, því minn- ingarnar megna ekki að bæta gráum hárum og ellirúnum á gamalkunn andlit. ,,Já, hvað varð annars af Davíð?“ endurtók Fenvick forvitnislega. Ég var sá eini, sem vissi það, en ég sagði ekkert. Því það er rangt, að tala illa um þá sem dauðir eru, en þó get- ur stundum verið enn lakara að nefna þá yfirleitt á nafn, sem eru lifandi dauðir. Og Davíð er einn af þeim. Að minnsta kosti óska ég þess af alhug, að honum takist að sleppa úr hópi þeirra! Það er sínu betra, að minnast Davíðs sem ungs glæsimennis, er brann af á- huga og lífsgleði. Ungmennis, er skar- aði svo langt fram úr öðrum, að þeir algengu hlutir sem hann átti sameigin- lega með okkur hinum, urðu nær óeðli- legir í fari hans. Það mátti heita stór- fenglegt, að sjá hann ofurlítið kenndan eða renna hýru auga til stúlku. Davíð var furðulegur maður. Hann var stór og sterklegur, fríður í andliti með djúp og dökkblá augu, mikið og ljóst hár. Eigi að síður fór því fjarri, að kvenfólk laðaðist að honum. Það var bersýnilega eitthvað í fari Davíðs, sem stúlkur voru smeykar við, þótt mér skildist það ekki fyrr en seinna, að ástæðan var sú, að hann þekkti þær of vel og að það vissu þær. A þeim árum botnaði enginn í hinum óviðjafnanlegu gáfum Davíðs. Heili hans var þannig gerður, að hann mundi bókstaflega allt. Það barst oft í tal við hann. Eitt af því fyrsta, sem hann mundi til var, að hann hafði snemma verið talinn „mjög efnilegur“. Það hafði aldrei borið við, að hann gerði sömu villuna oftar en einu sinni. Hann sagði mér líka frá einu ein- kennilegu atviki, sem gerðist þegar hann gekk í miðskóla. Sögukennarinn var að þylja upp nöfnin á saxneskum kóngum. Þá kom fiðrildi fljúgandi inn í kennslustofuna. Drengirnir höfðu langtum meiri áhuga fyrir fiðrildinu en hinum saxnesku konungsættum, og kennarinn hefndi sín með því, að skipa Davíð að hafa yfir nöfnin á þeim löngu sáluðu þjóðhöfðingjum. Þetta var alls- endis ósanngjörn krafa, en eigi að síð- ur tókst honum að nefna hvern einasta þeirra, með vélrænni nákvæmni. Hann var átta ára þegar þetta gerð- ist, og hann hafði verið með hugann við fiðrildið. „Þetta var í fyrsta skipti, sem ég tók eftir því, að heili minn gat tekið á móti námsefni, þótt hugurinn væri við eitthvað annað,“ sagði hann. „Finnst þér það ekki furðulegt?“ Jú, það var furðulegt! Heilinn var næmur eins og Ijósmyndafilma og greindi nóg til að innbyrða alla hans hyldjúpu vizku. Þegar ég kynntist honum, var hann einna líkastur alfræði- orðabók, með hugsandi mannsheila. Við féllum allir í stafi, þegar hann kvæntist stúlku, sem hann hafði kynnst í leyfisferð, og við vorum ekki einu sinni farnir að sjá. Mikið brutum við heilann um, hvernig þessi kvenmaður liti út, sem dirfðist að elska mann með svo óskaplegu gáfnafari. Annað hvort hlaut þetta að vera ,,hálærð“ eða ,,hættuleg“ manneskja. Það hugðum við að minnsta kosti, sem enn vorum unglingar og tókum fagra og fávísa fram yfir lærða og lesna. En þegar til kom, var Enid Arrett síður en svo þokkalaus lærdómsbók. Hún var yndisleg stúlka, með langa og granna fótleggi og unglingslegan vöxt, er eigi að síður gaf þó fögur fyrirheit um kvenlegan unað og yndisþokka. Ég man hve hrifinn ég varð af hnakkasvip hennar og eyrum, sem voru svo smá og fíngerð, að manni fannst sem elsk- hugi myndi kyssa þau fyrst af öllu, og áður en varir hennar. Þetta er samt ófullkomin mynd af Enid. Yndisleg var hún, en algjörlega gáfnasnauð. Eftir fimm mínútna samræður, vissi maður allt um hana, sem var einhvers virði. Ógerningur hlaut það að vera fyrir þau Enid og Davíð, að eyða tím- anum við alvarlegar bollaleggingar. 14 FÁLKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.