Fálkinn


Fálkinn - 13.06.1962, Side 38

Fálkinn - 13.06.1962, Side 38
Það trúði J>eim eiiginn Frh. af bls. 36. austan voru þeir bræður sæmdir alls konar heiðursmerkjum, gullorðum og haldnar voru um þá lofræður. Meðal annarra, sem þeir sýndu flug, var for- seti Bandaríkjanna, Játvarður Eng- landskonungur, Vilhjálmur Þýzkalands- keisari svo og Ítalíu- og Spánarkonung- ar. Þið, sem munið þessa tíma, munið áreiðanlega minnast þess, að tilveru flugvélarinnar var ekki fyllilega trúað fyrr en á var tekið. En nú skulum við snúa okkur að öðru umræðuefni, listinni. E1 Greco, einn hinna miklu meistara, sagði þetta um meistarann, sem talinn var honum fremri: „Michaelangelo er ágætismaður, en hann getur alls ekki málað.“ Nútíminn. Einhver ágætur danskur listdómari sagði, er Puvis de Chavan- nes dó 1898, að þar með væri frönsk málaralist búin að ná hátindinum. Þetta hljómar dálítið undarlega í dag. því að frönsk málaralist blómstraði einmitt á þessum tíma, er impessjón- istarnir Degas, Renoir og Monet voru enn þá starfandi, ennfremur Césanne, nokkur af beztu verkum Gauguin og og Toulouse-Lautre sáu dagsins ljós. Matisse var þá byrjaður að sýna -—- og svona má lengi telja. Listdómarar hafa gert sig seka um margar skyssur og sömu söguna má segja um tónlist, byggingalist og ýmis- legt annað. Við skulum ætla að öðru máli væri að gegna um vísindin. Á þessu sviði hefur einnig reynzt erfitt að fá nýjar hug- myndir viðurkenndar, gömlu sérfræð- ingarnir voru þéttir fyrir, — annað hvort tóku þeir bara ekki eftir því sem fram kom, eða þeir börðust gegn því með kjafti og klóm. Austurríski munkurinn Mendel lagði grundvöllinn að nútíma erfðafræði, er hann birti rannsóknir sínar um „jurta- afbrigði" árið 1866. Enginn tók eftir því. Það var heilum mannsaldri síðar og 16 árum eftir að hann dó, að ungir vísindamenn komust að sömu niður- stöðu. Saga vísindanna mun ætíð geyma nafn hans. Pasteur, sem einna hæst ber í sögu efnafræðinnar og gerlafræðinnar, fékk þá einkunn, er hann útskrifaðist, að hann væri ,,í meðallagi hæfur sem efna- fræðingur“. Er hann hóf hinar ná- kvæmu og umfangsmiklu tilraunir sín- ar var honum vorkennt af starfsbræðr- um hans. Jafnvel Biot, hinn stórgáfaði vísindamaður, sem þótti mjög vænt um Pasteur, kallaði rannsóknir hans „heimskulegar“ og vandamál þau, sem Pasteur var að fást við, „óleysanleg“. Án tillits til þessa, hélt Pasteur rann- sóknum sínum áfram, og sá árangur, sem hann náði, hafði slíka óhemju þýð- ingu fýrir vínræktendur, bruggara og bændur Frakklands, að reiknað hefur 38 FÁLKINN verið, að landið hafi þar með grætt aft- ur fé það, er greitt var Þjóðverjum í skaðabætur eftir styrjöldina 1871, en upphæðin nam 5.000 milljónum franka, sem þá var engin smáræðis fúlga. Enn þá mikilvægara er þó, að starf Pasteurs leiddi til stórbætts heilsufars og nú voru sjúkdómar sem hundaæði og miltis- brandir úr sögunni, gerilsneyðing mjólk- ur var hafin og rannsóknir Pasteurs urðu brezka lækninum Lister hvatning til rannsókna á sótthreinsun, sem gert hefur uppskurði eins og við þekkjum í dag, mögulega. Nú lítum við á það sem sjálfsagðan hlut, að sjúklingar lifi eft- ir uppskurði en deyi ekki sökum graft- arsára af völdum sýkla, — Þess vegna gleymist oft að þakka Pasteur hans ó- metanlegu og „heimskulegu“ tilraunir með „óleysanleg“ vandamál. Þrátt fyrir harða mótspyrnu gengu þeir Pasteur og Lister með sigur af hólmi. Örlög ungverska læknisins dr. Semmelweis urðu ömurleg, en hann fann orsökina til þess að fjöldi kvenna dó úr barnsfararsótt. Að meðaltali dóu 14 af 100 konum, en á sumum sjúkrahúsum var dánartal- an þó miklu hærri. Síðan eru liðin eitt hundrað ár. Læknarnir höfðu fundið ýmsar merkilegar skýringar á þessu fyrirbæri, t. d. hræðslu, sært stolt, loftslagsbreytingu, slæma loftræstingu o. fl. Dr. Semmelweis uppgötvaði, að orsökin væri einfaldlega skortur á hrein- læti. Læknarnir og stúdentarnir á sjúkrahúsunum gengu á milli líkskurð- arstofanna og hinna fæðandi kvenna án þess að þvo sér um hendur og þannig báru þeir smit á milli. Dr. Semmelweis leið miklar þjáning- ar við að heyra ungu konurnar æpandi og grátandi af kvölum og smám saman dró /af þeim og alltaf endaði sagan á sama hátt, — þær dóu. „Þvoið ykkur um hendurnar,“ var setning, sem hann stöðugt hamraði á, en enginn hlustaði á hann. Er hann var prófessor í fæð- ingarhjálp í Budapest heppnaðist hon- um að útrýma þessum sjúkdómi á sjúkrahúsi sínu, en hann var á verði dag og nótt og gætti þess að undirmenn hans hlýddu fyrirskipunum hans um hreinlæti, — allir sem komu nálægt fæðandi konum urðu að þvo sér með sápu og klórkalki. Árangurinn varð sá, að starfsbræður hans gerðu grín að honum og yfirmenn hans neituðu honum um viðurkenningu á málstað hans. Að lokum lét hann bug- ast. Á læknafundi brast hann í grát, hann fór að tala við sjálfan sig á götum úti og eiginkona hans gerði ráðstafanir til þess að koma honum á sjúkrahús fyrir taugaveiklaða. Hann framdi sjálfs- morð árið 1865, en þá var hann nýbú- inn að gefa út bók um rannsóknir sínar um barnsfarasótt og ráð gegn henni. Örlög dr. Semmelweis eru ein af sorgarsögum vísindanna. Það er hægt að ímynda sér hvernig andstæðingum hans hefur liðið, er viðurkennt var, að krafa þessa ofsótta manns um hreinlæti var hárrétt. Öllum getur skjátlast, ekki síður hin- um færustu vísindamönnum en öðrum. Prófessor Worchow, einn brautryðjanda frumufræðinnar, barðist ofsalega gegn starfsbróður sínum Robert Koch, sem uppgötvaði berklasýkilinn. Worchow trúði ekki á þessa uppgötvun. Sjálfur Thomas Alva Edison, en hon- um eigum við m. a. ljósaperuna, glym- skrattann og kvikmyndirnar að þakka, gat ekki ímyndað sér að hægt yrði að beizla kjarnorkuna. Fyrir nokkrum ár- um var selt á uppboði eftir hann minnisblað, þar sem hann hafði skrifað: „Ég hef ekki trú á, að atómið eigi sér neina framtíð sem orkugjafi, eins og ýmsir hafa viljað halda fram.“ Þó hafði Edison sjálfur lifað þá tíma, er menn gerðu mikið grín að áætlunum hans varðandi almenna notkun rafmagns til heimilisþarfa. Svona mætti lengi telja, en þó ber einnig að geta þess, að ýmsir blaða- og vísindamenn hafa reynzt framsýnir og bjartsýnir. Franski efnafræðingurinn Mathignon gat ekki ímyndað sér að mögulegt yrði að sprengja atómsprengj- ur, en þó sagði hann, að hann og starfs- bræður hans fylgdust með framþróun þessara mála með mikilli athygli og ef heppnast myndi að beizla atómork- una yrði það ti lmikillar blessunar fyrir mannkynið, — styrjaldir yrðu óhugs- anlegar og þar með færi heimur batn- andi og mannkýnið mundi hefja nýtt líf. Nú er löngu búið að leysa kjarnork- una úr læðingi, og nú bíðum við þess að mannkynið hefji nýtt líf. • • S 'ft R R R ■ • 5 'O / R ■ • • • 17 .Þ • SKRfíUTBúR - L fí K ■ ■ /A £ ■ V O T U R ■ Æ L U R ■ 5 L E U Ú m fíT fí V/ R ■ PRfíKKRR/S m ■ R fí L L ■ 'fí ri fl U V U Ct u R ■ / E • T R ■ £7 • AUCtRR-FORK R fí U ■ S / L L U ■ fí ■ R'O / L O fí F ■ R'O ■ T UT T fí ■ 5 v■ F fí ■ L L fí ■ • F'fl ■ R 'O / ■ S M'A U ■ Þ y S L ■ R fl 5 S ■ ■ Ð ■ L 'fí -r /V fí / /y K L F fl R 'O fl /V fl ■ H 'fl R • V u L V U 5 ■ W fl R R'fl ÐU R ■ F L / V R U R l/ m m H N cr • F L fl G 0 / fi u ■ R ■ 0 ■ / D ■ fí L / F U (f L / /ý /v' R H N ■ ■ / ■ J fl /y U 6 ■ V L ■ N ■ £U E fl U •BOT//RT8ALfí ■ L / rv R ■ T fí U /V U 5 ■ fíLLfí/VFfíZ>D F\ R fl 5 T fl í? L / ■ fí L fl fí fl ■ Z> U L ■ H / T 5 ■ flflflLL ■ fl /Y • R fl L U fí £ ■ K • fl £> £ ■ E ■ DÝ p ■ k 'fí m ■ R E-y ’O ■ CT / u H fí ■ R 'O T fl ■ • /c R 0 S 5 Ct 'fl r U D U Ct /d fll'/ fí ■ SUKKSflMT- D U (t fl R ■ N * • 'fí'fí '! fí fl F F / ■ D R fl 5 L / fl • Alltaf fjölgar krossgátulausnunum með hverju nýju blaði. Verðlaunin fyrir 9. verðlaunagátuna hlýtur Sverrir Pálmason Vesturgötu 129, Akranesi. Rétt ráðning birtist hér að ofan.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.