Fálkinn - 24.04.1963, Síða 7
sem vel er gjört, t. d. fram-
haldssögurnar sem við vonum
að verði tvær framvegis og
jafnskemmtilegar og nú er.
Urklippurnar var smellin upp-
finning, svo og margt fleira,
sem bæði er fróðlegt og
skemmtilegt. Og svo síðast en
ekki sízt, hvað þið losið okk-
ur blessunarlega frá auglýs-
ingafarginu sem jafnast á við
drápssögu í niðurdrepi. Svo
vonum við og biðjum að end-
ingu að þið lofið okkur, með
vordögunum, að sjá eitthvað
líflegri smásögur og ekki með
jafn miklum „feigðar gusti“
og verið hefur.
Vinsamlegast.
Saumaklúbbur við
Eyjafjörð.
Svar:
Við þökkum ykkur kœrlega
þetta bréf, eyfirzku konur. Þaö
var mjög ánægjulegt að fá þessa
liressilegu gagnrýni. Okkur þyk-
ir þaö leitt aö þiö skuliö ekki
liafa sama bókmenntasmekk og
aörir Norölendingar. ViÖ höfum
taliö okkur þaö til tekna nú tvö
síöustu árin aö hafa birt smá-
sögur eftir góöa lvöfunda inn-
lenda sem erlenda. Viö viljum. í
þessu sambandi minna á fjóra
NorÖlendinga þá IndriÖa G. Þor-
steinsson, Hjört Pálsson, Einar
Kristjánsson og Rósberg G. Snae-
dal. Af erlendum vettvangi get-
um viö nefnt Johannes V. Jen-
sen, Hemingway, O. Henry,
Lawrence, Durrell, Maupassant,
Puskin, Greene, Stuart Golete
og fleiri.
Um þéringar.
Sæll vert þú Fálki!
Einhver M. K. er að tala
um þéringar í einu blaði ykk-
ar. Og virðist mér á skrifum
hans að það sé stífasta ókurt-
eisi að þéra ekki ókunnuga.
Þó sér í lagi prestinn og aðra
mektarmenn. Ég fyrir mitt
leyti þéra ekki presta né aðra
meðan ég þúa Guð almátt-
ugan í Faðir vorinu (og ég
býst við að M. K. geri það
líka að öllu jöfnu). M. K.
virðist vera mjög tauganæm-
ur fyrir almennum ávarpsorð-
um eins og þú gæskur, góði
vinur, félagi eða lasm, en
með þessum ávarpsorðum hef-
ur mér verið heilsað í ýmsum
byggðarlögum landsins ánþess
að verða klumsa eða móðg-
aður á nokkurn hátt. Ég sé
það á skrifum þessa M. K.
að til eru ennþá nokkur ein-
tök af því fólki sem reynir
að ríghalda í þéringar, sem
eru síðustu leifar danskrar
aðalsómenningar frá einokun-
artímabilinu, þegar íslenzkur
almúgi þéraði danskar búðar-
lokur upp í hástert í von um
svolítið meiri úttekt, en fékk
í staðinn þú (eða jafnvel du
din kujon). Annars getur
verið gagnlegt að kunna þér-
ingar, eins og kunningja
kona mín sagði, því að þá
getur maður sýnt lítilsvirð-
ingu sína á fólki með því að
þéra það. Og á meðan þéring-
ar eru ekki kenndar í skói-
um sem almenn kurteisi þá
held ég að færi fyrir yngri
kynslóðinni svipað og strákn-
um sem var að ganga til
spurninga í fyrsta sinnið. Svo
uppfullur var hann af góðum
ráðleggingum heiman að frá
sér, að þegar hann kom á
prestsetrið þá þéraði hann
hundana en þúaði prestinn.
Annars er ég sammála M. K.
að það verði að ríkja annað
hvort þéringar eða þúanir.
Ég vona að það sjáist á því
sem á undan er komið að ég
er á móti þéringum. Ég þakka
fyrir allt gamalt, nýtt og gott
Vert þú svo sæll.
Reynir Valgeirsson.
Svar:
ViÖ visum tit fyrri bréfa-
skrifta um þetta mál og leggjum
til aö lesendur skrifi og láti
álit sitt í Ijósi.
Kr Þorvaldsson&Co
Grettisgötu 6
Simi 24478-24730
Herrann á að borga.
Kæri Fálki.
Ég sá um daginn í blaðinu
bréf frá einhverri stelpu sem
segist vilja borga fyrir sig
sjálf ef hún fer út með strák.
Fólki er auðvitað heimilt að
hafa sínar skoðanir á hlut-
unum og sitt stolt en ég skil
ekki svona nokkuð. Mér
finnst ákaflega heimskulegt
að láta strákinn ekki borga.
Ef ég fer út með strákum
(sem kemur nú stundum fyr-
ir) þá læt ég þá alltaf borga
og er ekkert feimin við að
láta þá vita hvað ég vil. Ég
held að þeir séu ekki of góðir
til þess.
Með beztu kveðjum,
Bína.
Svar:
Þá veit maður þaö.
Hin fullkomna vörn gegn tannskemmdum þekkist ekki. En þetta
er víst. Glerungur tannanna þarf að rofna, til að tannskemmdir
geti hafizt. Fyrir nokkrum árum uppgötvuðu tannvísindamenn,
að efnið FLUORIDE styrkir glerung tannanna að miklum mun og
minnkar tannskemmdir um allt að 50%.
Ef þér viljið áfram hafa heilar tennur, þá breytið um í dag og not-
ið framvegis Super Ammident tannkrem með FLUORIDE.
FALKINN
7