Fálkinn


Fálkinn - 24.04.1963, Síða 9

Fálkinn - 24.04.1963, Síða 9
ARINNAR Eg taJaði nógu góða ensku til þess að fara í þetta. Við á Óia Garða komum til I'leet- wood á laugardegi og það voru allar skrifstofur lokaðar. Þeir voru ekki að bíða með að skipa upp úr togaranum og hann átti að leggja af stað til íslands aftur á sunnudagskvöld. Ég náði ekki í neinn þeirra manna, sem ætluðu að greiða fyrir mér. Helzt leit út fyrir að ég yrði að fara aftur heim til íslands við svo búið. Mér fannst súrt í broti að hætta við þetta fyrir aðra eins smámuni og rétt áður en Óli Garða átti að fara, strauk ég frá borði og faldi mig. Þegar ég svo var viss um að hann væri örugglega farinn, fór ég á næstu lögreglustöð og gaf mig fram. Ég sagði þeim mínar farir ekki sléttar og verðir laganna voru hinir beztu. Ég fékk svo að gista hjá þeim um nóttina og morguninn eftir hringdi ég til Commander Hawkrigde í Hull. Commander Hawkrigde var góðkunn- ingi föður míns og vel þekktur hér á landi vegna tryggingamála. Hann stjórnaði flotadeild í fyrri heimsstyrj- öldinni og gat sér gott orð. Þessi heið- ursmaður hafði svo samband við út- lendingaeftirlitið og eftir það var mér frjálst að fara um í Bretlandi. Lestar- ferðin til Hull var ekkert söguleg. Ég flutti heim til Commander Hawkrigne og bjó hjá honum næstum þrjár vikur, eða þar til ég fór til móttökustöðvar sem var staðsett í Lancashire. í Hull var skráningarstofa flughersins og þar fékk maður plögg og farmiða með lest til móttökustöðvarinnar. í Lancashire fór fram læknisskoðun, mjög nákvæm og að henni lokinni hóf- ust próf í ýmsum greinum, bæði til þess að fá hugmynd um menntun manna, svo og hæfnispróf. Eftir þessu var svo mannskapurinn flokkaður nið- ur 1 flugmenn, vélamenn, siglingafræð- inga og aðrar deildir R. A. F. Maður var nú heldur spenntur að bíða eftir úrslitunum, en þegar þau komu var mér tilkynnt, að mér væri veitt innganga í Hinn konunglega brezka flugher, sem flugmanni eða flfcrgleiðsögumanni. Síðar voru menn flokkaðir enn frekar, eftir hæfni í flugi og öðru eins og ég kem að síðar. Ekki var rúm fyrir okkur í skóla næstu tvo mánuði og okkur var tjáð að við réðum því hvort við færum heim og biðum eftir kalli, eða innrit- uðumst strax og yrðum látnir vinna algenga vinnu á flugvöllum þangað til. Ég innritaðist strax og var sendur til flugvallar í Essex rétt fyrir utan London. Það var skemmtileg tilviljun, að ég lenti einmitt á þessum sama flugvelli í fyrsta sinn sem ég flaug sem orrustu- flugmaður nærri ári síðar. Við vorum tveir sendir þangað og unnum hin og þessi störf, sem liðþjálf- inn þurfti að láta vinna. Um þetta leyti stóðu yfir miklar loftárásir á London. Þjóðverjar höfðu yfirburði í lofti en Bretar vörðust vasklega með fáum en góðum orrustuflugvélum og flugmönnum. Loftvarnamerki hljóm- uðu nálega hverja nótt og flugvélarn- ar komu og fóru svo til allan sólar- hringinn. Eftir eins og hálfs mánaðar veru þarna, vorum við þessir tveir sem kom- um saman, sendir til Padgate og þar hófust heræfingar. Okkur var kennt að marséra, fara með byssu og skjóta og allt þetta, sem þeir byrja á í hermennsk- unni. Þetta tók mánuð og að því loknu var hópurinn sendur á skóla á suður- strönd Englands í borginni Torquay. Þetta er frægur baðstaður, maður synti í sjónum á hverjum degi og. naut lífsins. Þarna var bóklegt nám í sex vikur, en að þeim loknum gengum við undir próf. Af þeim sextíu sem voru í deildinni, héldu þrjátíu áfram og fóru með lest til borgar nálægt Leicester í Mið-Eng- landi. Þarna komst maður loksins í snertingu við flugvélar. Hópnum okkar var nú skipt í tvennt og var annar helm- ingurinn í bóklegu á morgnana en hinn lærði að fljúga og öfugt. Flugvélarn- ar voru af gerðinni Tiger Moth og voru mjög góðar til kennslu, því það var frekar auðvelt að fljúga þeim, en mjög örðugt að fljúga þeim Vel. Við fylgd- umst með gangi stríðsins í blöðum og útvarpi og orrustan um England stóð sem hæst. — Var þjálfun ykkar flýtt af þeim sökum? FÁLKINN 9

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.