Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 14
í góða veðrinu um daginn vaknaði
vorhugur með mönnum. Þá langaði
út í sólskinið til að hrista af sér vetur-
inn, sem reyndar varla var hægt að
kalla vetur. Hugurinn leitaði til suð-
rænnt sólarlanda og við brugðum okk-
ur á nokkrar ferðaskrifstofur hér í
bænum og spurðumst fyrir um ferðir
til útlanda á næstunni. Það var margt
athyglisvert, sem þeir ferðagarpar sögðu
okkur og meðal annarra orða mun nú
riðinn í hlað heppilegasti tíminn til
ferðalaga erlendis, a. m. k. í sólarlönd-
unum. Fólki er eindregið ráðlagt að
leita allra upplýsinga um ferðalagið,
áður en það hleypir heimdraganum, og
ef það kemst ekki á einhverja ferða-
skrifstofu, þá er góð byrjun að lesa
. þessa grein.
Fyrst lögðum við leið okkar í Aðal-
stræti 8, en þar hefur ferðaskrifstofan
Lönd og leiðir aðsetur sitt. Við hittum
þar að máli Ingólf Blöndal.
— Hvað er langt síðan þið stofnuðu
þessa ferðaskrifstofu?
— Það eru tvö ár síðan. Við vorum
fyrst til húsa í Austurstræti, en seinna
í Tjarnargötu, en það var of lítið hús-
rými fyrir okkur á þessum stöðum og
fluttum við því hingað. Við erum hér
með bílaleigu og minjagripaverzlun,
sem er nauðsynlegt þar sem þetta starf
er rólegt mikinn hluta úr árinu. Við
höfum umboð fyrir nokkrar kaupstefn-
ur og um daginn sendum við á vöru-
sýningu ýmsar ullarvörur héðan. Þessi
kaupstefna var í Wiesbaden. Mér er
ekki kunnugt um að fleiri minjagripa-
verzlanir hafi gert þetta en við. Árang-
urinn af þessu var mjög góður því okk-
ur hafa nú borizt margar pantanir á
þessum vörum okkar.
— En hvað er hezt á dagskrá í sum-
ar?
— Það er nú sitt af hverju. Fyrir ut-
an einstaklingsferðir svokallaðar IT-
ferðir, erum við með nokkrar hópferð-
ir. Farin verður hópferð með Gullfossi
til Skotlands og Englands, og ferðast
á ýmsa merkisstaði. Farið verður Kéðan
21. júlí og verður Vilbergur Júlíusson
fararstjóri. Þá eru ferðir sem við köll-
um „Sumar í Sólarlöndum“. Áætlunin
er í stuttu máli þessi: París — Costa
Brava — Mallorca — Sviss — London.
Farnar verða fimm ferðir, sú fyrsta 18.
júní og sú síðasta 6. september. Hver
ferð tekur um nítján daga og er flog-
ið heiman og heim. Þessi ferðaáætlun
er árangurinn af leit okkar að ferðalagi
sem almennt mundi falla íslenzkum
ferðamönnum í geð. Hér er sleppt löng-
um akstri í langferðabifreiðum, en þess
í stað koma þægilegar flugferðir. Höfð
verður nægileg viðdvöl á hverjum stað
svo mönnum gefist góður tími til að
skoða sig um. Við höfum tryggt okkur
mjög góða fararstjóra sem er grund-
völlurinn að góðri ferð. Þessir farar-
stjórar eru: Vilbergur Júlíusson, Ein-
ar Pálsson, Sigurður A. Magnússon og
Guðmundur Steinsson.
— Er erfitt að fá góða fararstjóra?
— Fararstjórar þurfa að vera góðum
14 FÁLKINN
FÁLKINN ræðir viS forstjóra
3ja ferðaskrifstofa um ferSa-
lög sumarsins, bæSi mnan lands
og til útlanda.
I SOLAR
eiginleikum gæddir, kunnugir landinu
sem um er ferðazt og góðir í málum
viðkomandi landa.
— Og svo eruð þið með einstaklings-
ferðir?
— Já, við höfum nokkrar slíkar á
boðstólum og getum skipulagt þær
fyrir þá sem þess óska sérstaklega. Viku
verzlunarferðir til Glasgow og Edin-
borgar t. d. Átta daga ferð til Skotlands,
London og Ermarsundseyja. París,
London, Mílanó. Caprí, Rómaborgar
o. fl. Þá verður einnig hópferð til Adría-
hafsins. Sautján daga ferð undir farar-
stjórn Guðmundar Steinssonar. Hún
verður farin 20. júlí.
— Eruð þið ekki með innlendar ferð-
ir líka?
— Jú, við seljum miða í öræfaferðir
Guðmundar Jónassonar.
— Ferðast íslendingar ekki oft á ó-
hentugum tíma?
— Jú, það má segja það. En þetta
hefur nú alltaf verið að breytast. Tími
ferðalanganna er alltaf að lengjast.
— Búizt þið við talsverðum ferða-
mannastraumi hingað í sumar?
— Já, eftir þeim fyrirspurnum sem
við höfum fengið má búast við miklum
straum ferðamanna hingað í sumar.
Næst lögðum við leið okkar í ferða-
skrifstofuna Sögu, en hún er gegnt
Gamla-Bíó í Ingólfsstræti. Þar hiítum
við að máli Njál Símonarson.
— Hvað verðið þið með af hópferð-
um í sumar?