Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 15
INGÓLFUR
BLÖNDAL:
— Tími ferðalaganna
er alltaf að lengjast.
I
LÓNDUM
GUÐNI
ÞÓRÐARSON:
— Þörf á stóru gisti-
húsi til viðbótar.
I
NJÁLL
SÍMONARSON:
— Ferðamannastraum-
urinn á eftir að aukast
mikið.
— Það er ráðgerð Norðurlandaferð
20. júlí. Það verður flogið til Kaup-
mannahafnar og síðan yfir til Svíþjóðar
og ekið um Svíþjóð og Noreg og einn-
ig siglt innan skerja við Noreg. Þá
verður haldið aftur til Kaupmannahafn-
ar og þar geta þeir sem þess óska orðið
eftir og flogið heim síðar, ef þeim
hentar það betur. Þá er fyrirhuguð ferð
til Ítalíu fyrrihluta september. Flogið
verður um London til Mílanó og síðan
ferðast víðsvegar um Ítalíu í bílum og
flugvélum. Komið verður til ýmissa
þekktra staða svo sem Genova, Flor-
ens, Róm, Napólí, Serentó, Capri,
Assisi, Feneyja og flogið heim frá Míl-
anó og London, þar sem höfð verður
dags viðdvöl.
— Svo skipuleggið þið einstaklings-
ferðir?
— Já, við skipuleggjum svokallaðar
IT ferðir. Þessar ferðir eru skipulagðar
í samráði viðflugfélögin og með því móti
fást mun hagkvæmari fargjöld. Þessar
ferðir geta menn farið til Ítalíu, Spán-
ar, Mallorca, Bretlands, um Rínarlönd-
in o. fl. Þá erum við með þannig ferðir
til írlands og leggjum við sérstaka
áherzlu á. Við gerum ráð fyrir að ír-
land verði hér mjög vinsælt ferða-
mannaland fyrir margra hluta sakir.
írar eru líkir okkur og skyldir og
margt er líkt hjá þeim' og okkur. Það
er líka mjög ódýrt að ferðast í írlandi.
— Hefur ferðatími íslendinga ekki
verið full þröngur?
— Jú, það má segja svo. Hann hefur
til skamms tíma verið nær eingöngu
í júlí og ágúst. En þetta er nú heldur
að breytast. Til ferðalaga á meginland-
inu er þetta óhentugur tími vegna þess
að þá er mjög heitt í þessum löndum.
Flugfélögin hafa verið með svokölluð
mánaðarf argj öld í apríl og maí og
fjölgar þeim stöðugt sem hafa hagnýtt
sér þessa þjónustu.
■— Kunna íslendingar að ferðast er-
lendis?
— Þetta er spurning sem erfitt er að
svara. Sumir fara utan án nokkurrar
fyrirhyggju og þvælast kannski í
Kaupmannahöfn í þrjár vikur. Menn
eiga að fara á ferðaskrifstofur og leita
Framh. á bls. 32.
FÁLKINN 15