Fálkinn


Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 24

Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 24
ÖRLAGA DÓMUR þótt henni væri kunnugt um samband hans og Nellu? Brosandi settist hún við spegilinn og skoðaði sjálfa sig í krók og kring. Jú, hún ætlaði að fara. Hún varð aðeins að bíða, þar til orðið væri dimmt.. Meg situr með bréfið frá Bruee Prest- on í höndunum og rifjar upp atburði dagsins. Ferðin til Munkaeyja hafði ekki orðið eins og hún hafði vonað. Robert og hún voru nú meir framandi hvort öðru en nokkru sinni fyrr. Ferðin hafði byrjað vel. Þau höfðu spjallað saman í léttum tón og hlegið....En síðan hafði Ro- bert skyndilega og án tilefnis að því er henni virtist, breytzt. Hann hafði aftur skriðið inn í skel sína. Meg var vonsvik- 24 FALKINN in og niðurdregin og henni var síður en svo hlýtt til Roberts. í þessu hugarástandi fékk hún bréfið frá Bruce Preston. Hann bað hana að hitta sig á laun. Og full þvermóðsku ákvað hún að fara til hans. Eftir að dimmt var orðið gekk Meg niður stigann og rakst á frú Verney í ganginum. — Teið er tilbúið, sagði ráðskonan stuttlega. — Takk. — Ætlarðu að fara út? —• Já, ég ætla að fá mér litla göngu- ferð. Frú Verney starði á hana andartak. Síðan snéri hún sér undan og gekk hratt inn í eldhúsið. Meg tók tebollann upp og fékk sér kexköku. En hún var of taugaóstyrk og spennt til þess að koma kökunni niður. Litlu síðar gekk hún niður brattan stíginn niður að ströndinni. Hún sökk niður í sandinn í hverju skreíi, en það leið ekki á löngu þar til hún sá ljós í kofa Bruce. Brátt fengi hún að vita hvaða erindi hann ætti við hana. En allt í einu snarstanzaði hún. Hún varð skyndilega slegin kynlegum óhug. Full eftirvæntingar hafði hún lagt af stað, en nú á elleftu stundu hikaði hún. Hvers vegna? Henni varð litið á giftingarhring sinn. Eftirvæntingin var öll á bak og burt og á þessari stund var hún sann- færð um, að hún væri að gera rangt. Hún sá andlit Roberts fyrir framan sig og varð hugsað til þess, hvernig Nella hafði svikið hann. Hana langaði mest til að snúa við og hlaupa aftur til Cliff House. Hún varð óttaslegin. Það var eins og hættur lægju hvarvetna í leyni. Hún var orðin sannfærð um, að ef hún færi til kofans, mundi eitthvað uggvænlegt gerast. Það var ljós í glugganum, en allt virtist svo annarlega einmanalegt og yfirgefið. Og allt í einu snéri hún sér við, og hljóp í örvæntingu sinni, án þess að gera sér ljóst að hún hafði farið aðra leið en hún kom. Þegar Meg kom aftur til Cliff House, var hún orðin örmagna. Hún leit inn í eldhúsið, en frú Verney var ekki þar. Inni í stofunni sat Robert í stól og reykti. — Ertu búinn að fá þér te, spurði Meg. — Nei. Frú Verney er ekki heima. Á hún frí í kvöld? — Það held ég ekki. Ef til vill hefur hún lagt sig. Hún sagði að henni væri illt í höíðinu, minnir mig. Ég skal sækja te handa þér, ef þú vilt. Robert taldi það óþarfa, en Meg var fegin að fá eitthvað að snúast. Hún var enn óttaslegin og þoldi beinlínis ekki að sitja auðum höndum. — Mér þykir leitt, að ég skyldi eyði- leggja lok ferðarinnar fyrir þér, sagði Robert þegar hún kom inn með bakka í höndum. Meg vonaði, að hann mundi segja henni, hvers vegna hann hefði skyndi- lega breytzt. — Það gerir ekkert til, sagði hún. — Við getum alltaf farið þangað aftur. — Ég er hræddur um, að það verði ekki neitt af því. Hann stóð upp og gekk hægt í áttina til hennar. — Ég hef hugsað málið rækilega og er kominn að þeirri niðurstöðu, að bezt sé að leysa þig undan skilmálanum, sem við gerðum með okkur. Þú ert frjáls .... þú getur yfirgefið Cliff House hvenær sem þig lystir. Hún ætlaði að segja eitthvað, en hann greip frammí fyrir henni. — Þú skalt fá reiðufé eins og þú vilt .... og ef þú vilt fá skilnað þá mun ég ekki standa í vegi fyrir því. Það verður ekki erfitt að fá hann, þar sem hjóna- band okkar hefur jú aldrei verið nema að nafninu til. — Hvers vegna segirðu þetta, spurði hún undrandi. (Framh. í næsta blaði). LEIKHUSMAL TSMARIT AÐALSTRÆTI 1B. REYKJAVÍK Ég undirrituð/aður .......................................... staða ...................................... sími ........... heimili ... .............................................. óska að gerast áskrifandi að tímaritinu LEIKHÚSMÁL frá og með tölu- blaði nr........ (8 hefti á ári). Mun ég greiða í ársgjald kr. 300.00 (+ kr.. 20.00 ef senda skal blaðið í innanlandspósti). hinn /. 196 .... (undirskrift). Árgangurinn kostar 75.00 krónur. Kemur út einu sinni í mánuði. ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaðið. — Flytur fjölbreytt efni við hæfi barna og unglinga, svo sem skemmtilegar framhaldssögur, smásögur, fræðandi greinar og margs konar þætti og mynda- sögur. Síðasti árgangur var 300 síður með um 600 myndum. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að ÆSKUNNI fá síðasta jólablað í kaupbæti. Gerizt áskrifendur að ÆSKUNNI. Greiðsla þarf að fylgja áskrift. Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR. Afgreiðsla í Kirkjuhvoli, Reykjavík, Pósthólf 14.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.