Fálkinn - 24.04.1963, Page 31
hið skyndilega hvarf Thanosar, reiði
Andresar yfir því að hafa orðið af
mikilvægum samningi hafði lægt og
ég var á ný hamingjusöm á hinn rólega
og næstum fjarræna hátt, sem ég hefði
verið síðastliðin sjö ár.
Thanos kom aftur og var ástúðar-
fyllri en nokkru sinni fyrr. Hann hafði,
farið, og komið aftur sigri hrósandi. Á
meðan hann var í burtu, hafði ég lítið
gert annað en að leika við Dimitri litla.
Bjartsýni Thansonar smitaði mig, ég
var orðin jafn kappsöm og hann.
Við borðuðum vandaðan hádegisverð
á snekkjunni daginn sem Thanos kom
heim. Andresar og Ariadne voru með
okkur heim og ég hafði nýja matreiðslu-
konu sem var áköf í að sanna ágæti sitt.
Meðan þau snæddu seinni réttinn fór
ég út að borðstokknum og leit út.
Loftið var dálítið skýjað og mollulegt,
rakur andvari blés óreglulega. Rödd
Andraesar var farin að angra mig, með
sinni lélegu fyndni, sem huldi illa brátt
skap hans. hann sagðist geta stefnt
Thanosi fyrir það sem hann gerði í
Brussel.
Tónn hans gaf það í skyn, að það
væri aðeins vegna þess, hve góð sál
Kæri Astró.
Þar sem ég hef beðið þess árangurs-
laust í meira en eitt ár að sjá stjörnu-
spádóm minn í Fálkanum, sé ég mér
ekki annað fært en að skrifa aftur.
Ég hef mikinn áhuga á, að fá að vita
eitthvað um framtíð mína. Ég er fædd
í Reykjavík klukkan 4.30 að morgni.
Ég er útskrifuð úr vissum skóla hér í
Reykjavík með ágætis einkunn. Ég hef
unnið á skrifstofu síðan, að undanskildu
sl. sumri, en þá var ég í Danmörku og
Þýzkalandi. Ég er mikið að hugsa um
núna að hefja menntaskólanám á næsta
haust. Hvað segja stjörnurnar um það?
Ég er með pilti sem er fæddur ....
því miður veit ég ekki hvenær dags.
Verður alvara úr því?
Einnig langar mig að vita, hvernig
heilsa mín verður, en hún hefur ekki
verið góð hingað til. Og fjármálin, hvað
verður með þau?
Ég hef mjög gaman af að ferðast er-
lendis og að tala erlend tungumál.
Verður mikið um ferðalög hjá mér?
Hvað ætli mér myndi henta bezt að
leggja fyrir mig. Ég er orðin þreytt á
skrifstofuvinnunni.
Með kærri þökk fyrir og virðingu.
Sísí.
Svar til Sísí.
Líklegasta og örlagaríkasta árið á
sviði ástamálanna hjá þér mundi verða
1966, en þá verður Sólin í samstöðu við
Mánann og þykir það öruggt tákn um
að gifting eigi sér stað þegar aðrar af-
stöður eru einnig hagstæðar. Pilturinn,
sem þú gefur upp fæðingardag og ár á
er fæddur undir sólmerki Vogarinnar
eins og þú og flestar afstöðurnar benda
hann væri og velviljaður náungi, sem
honum væri ekki alvara með þessari
hugmynd.
Thanos var í sjöunda himni.
,,Hvað gazt þú sagt. Þú skrifaðir ekki
undir neitt?“
„Við tókumst í hendur.“
„Kannski var það í kveðjuskyni."
Þetta var kímni hans.
„Við tókumst í hendur eftir samning.“
Andreas var dálítið önugur.
„Við gerðum líka samning með hand-
taki. En aðeins eftir að þeir höfðu und-
irritað." Ariadne hló og illkvittni henn-
ar í garð Andreasar var nokkuð of á-
berandi fyrir minn smekk. Ég virti þau
ekki viðlits.
Ercy synti í kringum snekkjuna og
ég kallaði á hana að koma og borða
eitthvað. Hún leit upp og sagði: „Ó,
Phaedra, þú ert svo falleg, mér þykir
vænt um þig.“ Hún sendi mér koss. Ég
hélt að hún meinti það, en hún var
einnig leið yfir kvöldinu um daginn og
það var allt í lagi. Ég brosti á móti og
sagði: „Komdu þá. Þú verður að fá
eitthvað.“ hún sneri sér við og synti á
bakinu. „Ég er ekki svöng,“ sagði hún.
Og svo sagði hún með uppgerðarþreytu
til þess að vel ætti að geta farið á með
ykkur. Annars á hann í nokkru innra
stríði við sjálfan sig þar eð Máninn er
í Hrútsmerkinu, eða beint gegn Sólinni.
Það bendir til þess að hann sé ekki
fyllilega ánægður með þá persónu, sem
hann hefur áskapað sér og vilji vera
annað heldur en hann er í augum ann-
arra og sjálfs sín. Hann þarf að leggja
áherzlu á að taka sem mest tillit til
þarfa náinna félaga sinna. Og hann ætti
að leitast við að starfa að einhverjum
félagsmálum.
í þínu stjörnukorti fellur sólin í ann-
að hús fjármálanna í samstöðu við
Merkúr. Þessi afstaða er happadrjúg
á sviði efnahagsins og þú munt alla
jafnan hafa meiri fjárráð heldur en al-
mennt gerist. Úr þessu verðum við
einnig að reikna út hvaða leið mundi
vera bezt fyrir þig til fjáröflunar, en
annað hús kemur undir áhrif Vogarinn-
ar. Þetta merki hér bendir til þess að
þér mundi fara vel úr hendi að stunda
einhves konar verzlun eða viðskipti,
sérstaklega þó í sambandi við snyrti-
varning alls konar frá greiðum og
kömbum til ilmvatna og fegurðarlyfja.
Árið 1967 verður þér mjög hagstætt að
leggja út í ný viðfangsefni á því ári
t. d. á sviði fasteigna eða viðskipta.
í þriðja húsi er máninn staddur og
Venus, þannig að það lofar góðum
árangri við það, sem þú kannt að taka
þér fyrir hendur að læra. Venusinn
þarna gæti einnig bent til þess að þinn
tilvonandi maður væri einmitt í skóla
og að þú mundir kynnast honum þar.
Ég veit ekki hvort það er svo hyggilegt
fyrir þig að fara í Menntaskóla nema
í röddinni: „Hentu í mig greipaldini.“
Ég hló og fór aftur að borðinu.
Ariadne sagði: „Ég er belgsödd . ..
Til hamingju Phaedra, nýja matreiðslu-
konan er stórkostleg.“
„Steldu henni og það verður reglu-
legt stríð innan fjölskyldunnar,“ svar-
aði ég og ég fór út að borðstokknum
og henti nokkrum greipaldinum til
Ercy. „En það ert þú sem ég verð að
óska til hamingju, Thanos,“ sagði
Ariadne, „með son þinn, Alexis."
„Hann var ekki að gifta sig, var
það?“ Rödd Thanosar var dálítið hvöss.
„Ég sá það í Sunday Observer, sáuð
þið það ekki?“ Það var sýning á verk-
um ungra málara og hann fékk mjög
góð ummæli."
„En það er jafnvel verra. Það er
hlægilegt. Hvað er hann að gera, mála?
hann gengur í hagfræðiskólann í Lon-
don. Ég sá hann fyrir aðeins tíu dögum
og hann sagði ekki orð um málverk.
Þér hlýtur að skjátlast.“
Ercy var að klifra upp í bátinn. Ég
vonaði að Ariadne væri nógu smekk-
vís til að hætta þessu tali, en auðvitað
gerði hún það ekki. Hún kallaði til Ercy,
Sjá næstu síðu.
að þú sért þegar búin að ljúka gagn-
fræðaskólaprófi. Hins .vegar mundi ég
mikið fremur mæla með Verzlunar-
skólanámi, þar eð mikið verzlunareðli
er í þér og forstaða fyrir verzlun eða
afgreiðslustarf mundi fara þér vel.
Heilsufarið kemur undir áhrif Fiska-
merkisins og eru því oft samfara lág
lífsorka, sem og stöðu mánans í merki
Sporðdrekans. Hins vegar get ég ekki
séð að sérstakir sjúkdómar herji meir
á þig heldur en fólk almennt, en hins
vegar hefurðu mikið gleggra auga og
næmari tilfinningu fyrir heilsufari þínu
heldur en aðrir. Það stafar af því að rís-
andi merki á Austurhimni við fæðingarr
stund þina var Mey, en fólk, sem hefur
það merki sterkt í korti sínu hefur næmt
auga fyrir heilsubrestum sínum og gerir
venjulega mikið meir úr þeim heldur
en efni standa raunverulega til. Tilraun-
ir til úr bóta eru því tíðar hjá þvi með
breytingum á mataræði og ýmissi til-
högun á lifnaðarháttum.
Talsverðar horfur eru á ferðalögum
í stjörnukorti þínu, sérstaklega þar sem
Úranus er áhrifapláneta ferðalanganna.
Hann bendir venjulega til ferðalanga,
sem eru farin í fremur óvenjulegum
tilgangi t. d. til rannsókna á sviði vís-
inda eða eitthvað sem er utan hins al-
menna.
★
FÁLKINN 31