Fálkinn - 24.04.1963, Blaðsíða 35
□TTD DG BRÚÐUR SÆKDNUNGSINS
Það var ekki laust við, að Ottó væri undrandi yfir framkomu
stúlkunnar. „Ilérna er klúturinn þinn,“... sagði hann hálf
klaufalega. „Hann hékk á runna.“ Hún sneri sér við. Hún heíur
verið yfir sig hrædd, hugsaði Ottó með s.jálfum sér. Hann
reyndi að segja henni, að hún yrði að gleyma atburði þessum
eins fljótt og auðið væri og auk þess væri engin ástæða til að
óttast neitt. „Ég er enn á lífi,“ sagði stúlkan lágt, „en hvernig
á ég að geta gleymt þvíað ég er fangi.“ „Ertu fangi?“ spurði
Ottó. „Og varst þú að flýja.“ Stúlkan kinkaði kolli. „Hvers
vegna sagðirðu það ekki strax. Við höfum tvo hesta og Baldur
getur auðveldlega borið tvö. Danni farðu og sæktu hestana
eins og skot.“ Ólundarlega fór Danni og sótti hestana.
Nei, Danni var ekki ánægður með þetta. I staðinn fyrir að
riða beint heim í Arnarkastala, voru þeir nú flæktir í nýtt
ævintýri. Auðvitað var svo einhver að leita að stúlkunni. „Hvar
skildi ég nú eftir hestana," sagði hann við sjálfan sig, „ég
hefði átt að setja á þá haft, þeir hafa sennilega farið þangað
sem eitthvað er fyrir þá að bíta ... og nú þarf ég að fara að
leita að þeim.“ Hann leitaði vel, en hestarnir fundust ekki.
Það gat ekki verið að þeir hefðu farið langt. Hér var eitthvað
undarlegt á seyði. Ef til vill höfðu þeir verið teknir af mönn-
um þeim, sem voru að elta stúlkuna. Hann ákvað að tilkynna
Ottó þessi tiðindi. „Ég vona, að þú hafir rangt fyrir þér, Danni,“
sagði Ottó, þegar hann hafði hlustað á ályktanir hans. En
stúlkan hafði líka heyrt, hvað Danni hafði sagt og hún sagði:
„Þeir hafa fundið slóðina eftir mig. Og nú eigið þið það á
hættu að vera teknir lika til fanga.“
„En hver tók þig til fanga?“ spurði Ottó stúlkuna. „Ég er
fangi Eberharðar greifa,“ svaraði stúlkan. „Það var af því að
és neitaði að giftast norrænum víkingi. Hann ætlar að neyða
mig til þess.“ „Eberhörður greifi," endurtók Ottó og hann vissi,
að það var áhrifamikill maður og valdamikill meðal lávarðanna.
Svo var sagt að hann hefði mikil sambönd við Norðmenn, sem
höfðu gert innrás í landið. Hingað til hafði Ottó ekki gefið orð-
rómi þessum gaum .. . En nú var ef til vill um velferð landsins
að ræða. „Ég er með ráðagerð í huga,“ sagði hann og sneri
sr að stúlkunni. „Þú verður að láta sem þú sért fársjúk. Danni
leikur skurðlækni og segir að þú sért að dauða komin og megir
ekki hreyfa þig.“ En meðan þetta gerist höfðu allar þeirra at-
hafnir verið séðar af njósnamönnum í runnum ...
FÁLKINN 35