Fálkinn - 02.10.1963, Síða 6
Um samræður í
kvikmyndahúsum.
Kæri Fálki.
Það var eitt kvöldið um aag-
inn að ég fór í bíó einu sinni
sem oftar ásamt einni vinkonu
minni. Ég ætla ekki að skrifa
þér um myndina sem var í alla
staði skemmtileg heldur að
segja frá atviki sem kom fyrir
meðan á sýningu stóð. Við
vorum eitthvað að hvíslast á
og vitum ekki fyrr til en mað-
ur sem sat fyrir framan okkur
snýr sér við og biður okkur
um að gjöra svo vel að halda
okkur saman. Við önsuðum
þessu að sjálfsögðu ekki neitt
heldur héldum áfram eins og
ekkert hefði í skorizt.. Vinkona
mín var að útskýra fyrir mér
myndina. Og þá snýr þessi
maður sem ég sagði frá áðan,
sér við aftur og segir rétt sí
svona: Hvers konar kjaftagang-
ur er þetta; Getið þið ekki
haldið ykkur saman? Og ég
ætla ekki að lýsa fyrir þér
hversu undrandi við urðum.
Við steinþögðum og sögðum
ekki aukatekið orð meir. Mér
þykir það orðið nokkuð hart
ef fólk má ekki hvíslast á
nokkrum setningum meðan á
sýningu stendur. Og þessi fram-
koma mannsins finnst mér fyr-
ir neðan allar hellur. Þetta er
að mínu viti hin grófasta ókurt-
eisi.
Svo þakka ég ykkur fyrir
allt gott efni sem þið hafið
flutt og vænti þess fastlega að
þið birtið þetta bréf mitt.
K. O.
Svar:
Þegar menn fará í bíó þá fara
þeir til aó sjá myndina og um
leiS aS hlusta á þaS sem persónur
hvíta tjaldsins segja. SamrœÖur
sýningargesta eru því mjög óvin-
sœlar og aS ekki sé meira sagt
hvimleiöar. Okkur liefur oft bor-
izt bréf þar sem kvartaS er yfir
þessum ósiS og eins aö láta skrjáfa
mikiö i sælgætisumbúöum. Þiö
þurfiö ekki aö hafa veriS neitt
leiSinlegar þú og hún vinkona
þín en samrœSur ykkar vöktu
ekki áhuga þeirra sem nœstir sátu.
Svar til H.
Þú hefSir ekki átt aö reka hann
út þetta kvöld sem hann heim-
sótti þig heldur heföir þú átt aö
rœöa viö liann málin og vita hvort
þiö hefÖuO ekki getaO komizt aö
niOurstööu. En úr þvi sem komiö
er þá mun lítiö fyrir þig aö gera
en þú skalt nú samt reyna allar
leiöir til aö ná sáttum því sökin
er ekki síöur þín en hans. Þaö er
ekkert undarlegt þótt hann yröi
vondur eins og þú komst fram
viö hann og þótt þú kunnir aö
álíta aö til þess heföir þú ástœö-
ur heföi veriö betra fyrir þig aö
hugsa máliö. Svona hluti gera
menn ekki nema aö hafa til þess
stærri ástæöur. Þaö er því { raun
og veru skylda þín aö koma til
móts við liann og þú átt aö stíga
nœsta skrefiö. Þetta skaltu aö
minnsta kosti hugleiöa í fullri al-
vöru. Svo þökkum viö þér bréfiö
sem var reglulega skemmtilegt
þrátt fyrir allt og leiöinlegt aö
mega ekki birta þaö.
Svar til Steina:
Áöur en þú hefst handa skaltu
nú kynna þér máliö betur svo þú
farir ekki aö flækja þig í meira
klandur en oröiö er. Þú skalt aö
minnsta kosti telja upp aö tíu
áöur en þú kœrir manninn og þú
skált vita hvort þú getur ekki
náð rétti þínum á annan hátt.
Um síöari liluta bréfsins er þaö
aö segja aö viö getum þvl miöur
lítiö ráö gefiö þér. Þú skalt snúa
þér til annarra aöila sem þér ætti
aö vera Ijóst hverjir eru og vita
hvort þaö ber ekki árangur.
Hvar í veröldinni áhannJames
Darren heima?
Kæri Fálki.
Getur þú sagt mér heimilis-
fang leikarans James Darren?
Mér finnst blaðið ágætt.
Með fyrirfram þökk.
Sigga.
P. S. Hvernig er skriftin?
Svar:
Því miöur getum viö ekki sagt
þér heimilisfang James Darren,
en ef einhver sem les þetta og veit
heimilisfangiö þá biðjum við hann
að skrifa okkur hiö fyrsta og
munum viö þá birta smrið.
Skriftin á bréfinu þínu, Sigga, er
mjög góö og frágongur ágætur.
Framhaldssögurnar.
Kæri Fálki.
Ég er fastur kaupandi Fálk-
ans og ég verð að segja það að
í heild er ég ánægð með blaðið,
og þó sérstaklega framhalds-
sögurnar. En það er eitt sem
mig langar til að orða við ykk-
ur. Getið þið ekki haft fram-
haldssögurnar aðeins lengri
hverju sinni?
Með þökk.
Kona.
Svar:
Framhaldssögurnar eru haföar
svo langar lwerju sinni sem rúm
blaösins frekast leyfir.
FÁLKiNN