Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 22

Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 22
H'inn stóri afturendi og fæt- urnir, sem ekki voru allt of fal- legir, voru klæddir gulum silki- buxum, sem náðu rétt niður fyrirhné. Fæturnir voru berir í rauðum töfflum með demants- slegnum hælum. Um mittið var einnig demantskeðja svört eins og skjöldur. Það varð augna- bliks þögn — svo varð mikill hávaði, er kveit var á öllum perunum. — Nei, nú lízt mér ekki á, sagði gamanleikarinn litli, sem stóð við hliðina á mér. Neyðist ég til að láta mynda mig við hliðina á þessu? Það er eins og taka eigi af mér klámmynd. Á sama augnabliki hrópaði frúin, sem þekkti mig aftur, yfir höfuð mannfjöldans: — Halló þér þarna. Ég er að deyja úr þorsta. Ég tók glas af borðinu og ruddi mér braut til hennar, þar sem hún stóð í miðjum mann- f jöldanum — hún stóð auðvitað. Hún gat ekki setzt, gulu bux- urnar voru of þröngar. Ég rétti henni glasið og hún brosti til mín og sagði; — Strákarnir eru vondir, þeir gera grín að klæða- burði mínum. Finnst þér hann ekki góður? Einnmitt þá fann ég til til- finningar, sem ég hafði ekki orðið vör við í að minnsta kosti mánuð. Mér varð ískalt í and- liti og munnurinn fylltist. Ég greip fyrir munninn. — Hvað er að? spurði ein- hver. — Ég verð að kasta upp, svaraði ég. Leið opnaðist í gegnum mann- þröngina og þótt þetta væru ágætis náungar heyrði ég hlátursskellina, þegar ég flýði. Þegar ég fór út úr herberginu, heyrði ég litla grínleikarann segja sigri hrósandi: — Svona lízt henni á klæðn- að þinn, mín fagra. Þetta gæti hafa orðið grín- saga í samkvæmislífinu, ef hin óhamingjusama kona hefði ekki haldið, að ég hefði viljandi móðgað hana, svo að hún klag- aði til forstjórans. Og í þetta sinn var James ekki þar til að bera af mér höggið. Ég sat á skrifstofu minni og reykti eina af sígarettum James til að koma taugunum í lag, þegar sendill barði að dyrum og sagði, að forstjórinn vildi tala við mig á skrifstofu sinni. Forstjórinn beið sjálfur eftir mér í innganginum að hinni íburðarmiklu skrifstofu. Ég dáðist að þessum manni. Hann hafði sjálfur byggt gistihúsið félítill og hann hafði aflað sér orðstírs frá bvriun í samkeppn- 22 við beztu gistihús London með því að fara eftir gömlu slagorði, sem hann sagði sjálfur, að ekki væri farið eftir — sem sagt því, að gæði borga sig. Hver hlutur og hver starfsmaður átti að vera upp á það bezta. Ég vissi, að forstjórinn hefði barizt móti því með oddi og egg, þegar James vildi gera mig að aðstoðarmanni sínum, og þótt ég að vissu leyti hefði unnið hylli hans síðan þá, bjuggu fordómarnir undir vel- viljuðu yfirborði og biðu eftir að ég gerði vitleysu. Nú höfðu mér orðið á þessi mistök. Hann brosti kurteislega til mín og sagði: — Setjist niður, ungfrú Gra- ham. Ja, ég hef fengið kæru á yður í dag. Þér vitið frá hverj- um hún er? — Ég get ímyndað mér það. — Viljið þér skýra frá mál- inu frá yðar sjónarmiði. Ég sagði einfaldlega, að mér hefði orðið óglatt á óheppilegu augnabliki. — Hafið þér farið til læknis? — Nei, það hef ég ekki gert. — En þetta er ekki í fyrsta sinn, sem yður verður óglatt, ekki satt? Ég varð undrandi. Það var satt, sem sagt var um hann — hann vissi allt. — Þetta batnar sjálfsagt. — Það skulum við vona. En þangað til .... hann yppti öxl- um. — Þetta er mjög óþægilegt. Það verða vandræði. Gistihús eins og þetta, sem áltið er full- komið, hefur ekki ráð á slíku. Þér skiljið? — Nei, ekki almennilega, sagði ég. — Verður mér sagt upp af því að mér verður óglatt? Hann brosti örlítið. — Nei, ungfrú Graham. Ég sting einungis upp á því, að þér íakið yður leyfi, þangað til þér eruð orðnar heilbrigðar aftur. Ég stóð á fætur og bjóst til að fara. Hann stöðvaði mig við dyrnar. — Yður geðjast víst að Paige, sagði hann óvænt. — Já, mjög vel. — Það er góður maður og góður vinur yðar. Þér hefðuð ef til vill viljað, að hann hefði verið hér núna? En það hefði ekki breytt neinu til eða frá. Starfsfók mitt verður að vera fullkomið. Þakka yður fyrir hið ágæta starf yðar fram að þessu, bætti hann við. Ég fór aftur til skrifstofunn- ar og læsti mig þar inni í síð- asta sinn. Ég skildi þrátt fyrir allt, að forstjórinn gerði mér greiða með því að hlífa mér við mínar og varð gripin sterkri vandræðalegri brottför síðar. Ég tíndi hægt saman eigur þrá eftir Toby aftur. Úti á götu veifaði ég leigubíl. X. Við hurðina að herbergi Toby stanzaði ég. Þegar ég tók í hurðarhúninn, naut ég fyrir- fram þeirrar gleði að vekja hann. — John, hef ég sært þig á ein- hvern hátt? Hann lagði hendurnar á hand- leggina og röddin var hálf- kæfð. — Já, þú hefur sært mig. Þú hefur gert nokkuð, sem getur sært hverja sómakæra mann- eskju. — Það, sem skeður milli tveggja manneskja kemur þeim einum við. Ef þú hefðir ekki fr^ fi^ — 1 Ég opnaði hurðina varlega. Það var enginn þarna. Von- brigðin voru bitur. Svo skildi ég, hversu ósann- gjörn ég var. Hann hafði sjálf- sagt farið út að kaupa sígarett- ur eða hann var ef til vill uppi hjá John og beið þar. í fyrsta sinn hraus mér hug- ur við hugsuninni um John. Skelfingu lostin hugsaði ég um, hvernig'hann hefði komið heim. Með hjartslætti gekk ég upp og barði að dyrum hjá honum. Eftir augnablik kallaði hann: — Hver er þar? Og þegar ég svaraði, varð löng þögn. — Farðu, sagði hann loks. — Ég ætlaði bara að spyrja þig um nokkuð. Það varð þögn aftur og svo var hurðin opnuð. Mér rann kalt vatn milli skinns og hör- unds, þegar ég sá hinn fjand- samlega svip hans. — Hvað vilt þú? Hann sneri í mig baki og fór inn í herberg- ið. Ég fylgdi á eftir. Hann dró fram stól með ólundarlegri hreyfingu og settist á stólinn og sneri í mig baki og lét hend- ur hvíla á stólbakinu. Ég gekk að honum og lagði höndina á öxl hans. Hin breiða öxl kipptist við eins og vespa hefði setzt á hana. verið í herberginu við hliðina, hefðir þú ekki vitað neitt. — Og það heldur þú að hjálpi — að enginn viti neitt? — En hvers vegna ætti það að hafa svo mikil áhrif á þig? Það er ekki — ekki neinn glæp- ur eða neitt slíkt. Veiztu, hvar Toby er? — Niðri í kjallara ef til vill. hjá hinum vændiskonunum. Ég fór frá honum. Ég gat ekki verið í mínu eigin her- bergi, það var of nálægt. Ég fór niður til Toby og læsti hurð- inni. Ég var móð, skalf og var ískalt. Eftir nokkrar mínútur kastaði ég upp aftur. Mér batn- aði alls ekki á eftir. Ég settist við opinn gluggann, með hand- leggina þétt að síðunum til að vinna gegn skjálftatilfinning- unni. Hann sagði það án þess að vita það, hugsaði ég. Ef hann hefði vitað um barnið, hvað hefði hann þá kallað mig. X. Toby kom ekki heim um nótt- ina og ekki daginn eftir heldur. Þetta varð mér langt dægur, langt og fullt örvæntingar. Ég hafði enga vinnu að fara í og ekkert annað að gera en víla. James hringdi. Ég hafði varla FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.