Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 25

Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 25
ar, 907 og 805 hafa sýnilega ver- ið hreinþvegnar." Mason brosti. ,,Jæja, lautin- *nt,“ sagði hann. „Þú hefur létt af mér þungu fargi, og það jafnt þó að það hafi kannski verið snúið á mig.“ „Ágætt, Perry,“ sagði Tragg. Lögfræðingurinn lagði frá sér símann og sneri sér að Dellu Street. „Jæja, Della, nú getum við haldið áfram með skriftirn- ar. Sjálfsagt hefur þessi fyrr- verandi skjólstæðingur okkar verið mesti slægðarrefur. Þú heyrðir hvað Tragg sagði?“ Della Street kinkaði kolli. „En ef Dorrie Ambler hefði komið til dyranna eins og hún var klædd og fengið þig til að taka að þér kröfu hennar til arfhlutans, hefði hún getað orðið meðeigandi eigna upp á milljónir dollara. Nú er hún flækt í morð.“ Mason stóð á fætur og tók að ganga um gólf. „Ef ekki kæmi tvennt til,“ sagði hann, „þá mundi ég efast um niður- stöður Traggs.“ ,,Og hvað er það, húsbóndi?“ spurði Della. „í fyrsta lagi,“ sagði Mason, „vitum við, að skjólstæðingur okkar hefur haft brögð í tafli til að vekja á sér athygli. Við vitum, að hún vildi gera eitt- hvað til að fá blöðin til að aug- lýsa svipmót hennar og Mínervu Minden.“ „Og hitt? spurði Della. „Hundurinn," sagði Mason. „Hundum skjátlast ekki. Þess vegna var skjólstæðingur okkar á lífi alllöngu eftir brottnámið, sem gert er ráð fyrir, að átt hafi sér stað. Þegar nú er augljóst orðið, að Dorrie, var bara að reyna að flækja mig í ráðabrugg sitt, að hún hefði getað hringt í mig löngu eftir að hún var talin í ræningjahöndum, en lét það ó- gert, þá get ég gleymt henni. En vegna þessa litla hunds get ég hætt að hafa áhyggjur. Við skulum þá snúa okkur að bréfa- skriftunum." Della Street gekk inn úr ytri skrifstofunni og staðnæmdist fyrir framan skrifborð Perry Mason. Þegar lögfræðingurinn leit upp, sagði hún: „Það eru nú tíu dagar síðan Dorrie Am- bler hvarf og þér tókst að gleyma því og snúa þér aftur að daglegum störfum.“ „Og hvað um það?“ spurði Mason. „Núna,“ sagði hún, „er Henri- etta Hull í ytri skrifstofunni." „Vísaðu henni inn, Della. Ég hefði gaman af að tala við hana.“ Framh. á bls. 30. FRANZLISZT KVIKMYNDAÞÁTTUR Franz Liszt var ekki aðeins gott tónskáld heldur og afburða píanóleikari. Hann var ákaflega vinsæll af sinni samtíð og átti útlit hans og heillandi fram- koma ekki hvað minnstan þátt í því. Hann var undrabarn á sviði tónlistarinnar og níu ára gamall hélt hann sinn fyrsta konsert. Það verka Liszt sem mun þekktast hér og vin- sælast af almenningi mun vera Ástardraumur og þá frekast í meðförum Eaii Bostic, þótt „sannir“ tónlistarunnendur munu lítt hrifnir af þeirri út- setningu. Þessi útsetning Bostic hefur verið ákaf- lega vinsæl í óskalagaþáttum Útvarpsins undan- farin ár. Stjörnubíó mun á næstunni sýna mynd sem fjallar um ævi og starf Liszt. Þetta er mynd frá Columbia tekin i litum og Cinema-Scope. Leik- stjóri er Carles Vidor en með hlutverk Liszt fer Framh. á bls. 34. ÉÁLKINN 25

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.