Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 33

Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 33
„Pú ert ekki hamingjusöm, Padmaya.“ „Nei. En ef til vill getur eng- inn af okkar kynslóð orðið ham- ingjusamur. Við erum nútíðin, skipt á milli fortíðar og fram- tíðar. Við getum ekki vænzt þess að verða hamingjusöm. Sum okkar munu taka ákvarð- anir fyrir framtíðina, önnur fyrir fortíðina." „Þú hefur tekið ákvörðun fyrir fortíðina.“ j „Eins og brú,“ sagði hún, ,,hluti af mér þar, hluti af mér .hér í þessu húsi, hluti af mér — ég veit ekki hvar. En ég er ánægð yfir að hafa gert föður okkar hamingjusaman. Ef þú gerir nú móður okkar ham- 'ingjusama, höfum við gert skyldu okkar, er það ekki?“ Skylda aftur! Hann um- hverfðist. „Hún yrði ekki ham- ingjusöm, nema við færum all- ir aftur í tímann.“ „Hún verður ekki mjög lengi hjá okkur. Hvað er æviskeið? !Ekkert.“ Hann ásakaði hana hvatlega. „Padmaya, þú ert afar ind- versk!“ Hún leit á hann, og hann sá tár í augum hennar. „Einhver okkar verð að vera það.“ Og hún stóð upp, eins og þau hefðu komizt að niðurstöðu, „lagfærði „sari“ sinn á öxlun- um og fór út úr herberginu. Þegar hún var farin, flaug hon- um í hug, að hann hefði ekki enn lesið bréf föður síns. Hann hafði ekki þorað að lesa þau, meðan hann sat meðal ókunn- ugra í flugvélinni. Hvað hafði skeð, ef hann hefði allt í einu byrjað að gráta? Nú langaði hann að lesa þau, nú þegar hann var alein.n. „Kæri herra deildarforseti: Ég óska þess að sonur minn verði hvattur til að læra nýjar hugmyndir í vísindum og iðn- áði. Komi í ljós, að hann hafi áhuga á lögum, væri ráðlegt að bæta við lögspeki og stjórn- vísindum. Við þörfnumst mik- illa breytinga. En hann verður að þroskast í þolinmæði. Þjóð okkar getur verið leidd en ekki neydd. Langi mig til að mynda að hafa rafmagnsdælu, verð ég fyrst að fá rafmagn og svo fram- vegis. En það sem erfiðast er: Ég verð að búa þjóð mína und- ir breytingar, sem komast smám saman á. Sonur minn verður að læra, hvað „smám saman“ þýðir.“ Heilræði, leiðbeining, sann- færing, mat — þetta var aðferð föður míns. Rashil gat ekki varizt brosi við lesturinn. „Kæri herra deildarforseti: Ég þakka yður fyrir að hafa tekið eftir framförum sonar míns. Ég er glaður yfir að hann neytir ekki sterkra drykkja. Varðandi vináttu hans við bandarísku stúlkuna, vona ég að hún sé ekki mikil. Vinsam- legast ráðleggið syni mínum að leiða hugann að fjölskyldu sinni. Ég get breytzt, eins og nauðsynlegt er, en fjölskylda mín.......“ Aha, það var þess vegna sem deilarforsetinn hafði einn góð- an veðurdag talað við hann um hjónaband, svo óvænt, að hann hafði rekið í rogastanz. „Ég hef engar fyrirætlanir varðandi hjónaband, herra,“ sagði hann við deildarforsetann. ,Þegar þar að kemur,“ hafði deildarforsetinn sagt af varúð og óvænt, „er bezt að velja ein- hverja, sem fellur inn í fjöl- skyldu þína.“ „Já, herra,“ hafði hann svar- að, þó að uppreisnarandi væri innra með honum. Nú var uppreisnin fokin út í veður og vind. Faðir hans hafði skilið svo vel, og gegn hverju var að vísa? Josie hvarf í móðu fjarlægðarinnar. Enda þótt að- ein klukkustundir í tíma lægju á milli þeirra, voru samt úthöf og meginlönd eftir. Hann tók upp annað bréf: „Kæri herra deildarforseti: Vinsamlegast kennið syni mín- um, að hann verði að taka við af mér sem leiðtogi fjölskyldu okkar og þorps okkar. Fólkið mun líta upp til hans, þegar lífi mínu er lokið.“ Hafði faðir hans haft hug- boð um þennan dag? Rashil las bréfin yfir og lét þau í litla peningaskápinn í veggnum, þar sem skjöl fjölskyldunnar voru geymd. Það var síðdegis. Hann sat við líkkistu föður síns í bílnum, sem flutti þau til hinna helgu fljóta, þar sem Junna rennur í Ganges. Áður hafði farið fram athöfn heima, en hana var hann ekki viðstaddur. Núna mundu þau komast á útfarar- stað fyrir náttmál, nema lík- fylgdin yrði stöðvuð af fótgang- andi fjöldanum. Klukkan var hálfsjö, þegar þau komust á leiðarenda. Stór köstur af sandalaviði hafði verið reistur fyrir brennuna. Rashil sté út úr bílnum og bar ásamt þremur frændum sínum líkkistuna að báilkestinum. Þeir lyftu kistunni upp á köst- inn og síðan talaði föðurbróðir hans í nokkrar mínútur: „Við erum hér saman komin til að sjá ástvin okkar, húsbónd- ann á heimilinu, hefja sitt eilífa líf. Hann er einn af hinum tví- fæddu mönnum. Þó að hann væri stundum vanur að brosa að trúnni, var það ekki trúin sjálf, sem hann hafði fyrirlitn- ingu á, heldur þau svik, sem hafa komizt inn í hana með spilltum mönnum. Við eru af Braham stétt, og ástvinur okk- ar viðhafði alla helgisiði sam- kvæmt Katha skólanum, sem sannaði, að hann trúði á guð. Hann fylgdi í verki þeim regl- reglum, sem „guru“ hans kenndi honum, og öðlaðist þann- ig snemma það stig, að hafa fæðzt tvisvar. Fæðingin, sem slíkur „guru“ lætur í té, er ó- svikin. Hún er alger, greind að frá venjulegum listum og vís- indum, nema í lokaþætti sínum frá aldri og dauða. Þar sem hann var fullkominn í þessu lífi, mun hann nú hverfa yfir til næsta lífs og reynslu, sem er miklu betri en hann hefur þekkt hér. Látum líf hans verða fordæmi okkar, sem eftir lifum.“ Að svo mæltu dró frændinn sig í hlé og fór á sinn stað í hópi fjölskyldunnar. Nú var runnin upp sú stund, sem Rashil hafði hræðzt. Allt til þessa augnabliks hafði hann ráðgert, að hann kynni enn að neita að láta undan. Hann gekk í áttina að bálkestinum, stað- næmdist og leit til beggja handa. Kvöldið var yndislegt, friðsælt. Breiðar árnar runnu saman undir heiðum, gullnum himni. Sólin var hnígin til viðar, en stafaði geislum sínum til himins, þannig að bjarma sló á vatn og jörð og andlit þeirra, sem biðu. Þetta var um það leyti, sem vissir villtir fuglar, kvikindi, sem þegja nema við dögun og sólsetur, hefja upp söng sinn. Einhvers staðar í mannþrönginni tók lítið barn að gráta og móðir þess sefaði það á ný. Og frammi fyrir Ras- hil var sandalaviðarkösturinn, en ilmur hans fyllti loftið. Augu hans hvíldu á Pad- mayu. „Sari“ hennar huldu höfuðið, en hún hafði dregið hann frá andlitinu, og brenn- andi augu hennar knúðu hann til verks. En það var fleira en Padmaya, sem knúði hann. Hann var knúður af straum- þungum ánum, sem geymdu í djúpi sínu ösku dauðra um ald- ir. Hann var knúður af and- rúmsloítinu, af söng fuglanna, gráti barnsins og blíðri hugg- andi rödd móðurinnar. En fyrst og fremst var hann knúður af bíðandi fólkinu, fólkinu hans. Það var nauðsynlegt, að hann huggaði það í sorg þess. Hann gat ekki valdið því fleiri áföll- um með því að afneita helgisið- unum, sem það var vant og trúði á. Það hafði treyst föður hans. Nú varð hann að fórna sjálfum sér til að öðlast traust, svo að það yrði ekki óttanum ofurselt. Hann laut niður og valdi sér verkfæri til fórnarinnar, en hin yrðu notuð síðar. Það yrði mikill eldur, en mannslíkaminn er breytilegur, og verkfæri þyrfti að nota á þá hluta, sem brynnu of hægt. En verkfærið, sem hann þarfnaðist nú, var hamar úr silfri. Með hann í hægri hendi kleif hann bálköst- inn, stóð uppi á honum andar- tak og beindi augliti sínu til himins. Hann fann til sársauka í hverjum vöðva og beini þan- ins líkama síns, átök viljans við löngunina. Hann yrði að lyfta hamrinum. Hann yrði að reka höggið nákvæmlega, þar sem höfuðkúpan myndi bresta, en haldið mátti hvorki merjast né rofna. Fjársjóður heilans innan höfuðkúpunnar mundi bráðna, þegar hann næði suðu- marki, og renna saman við ösku líkamans. Þannig mundi andinn fara í friði, samkvæmt lögmál- inu, og án þess að sprengja höf- uðkúpuna í uppreisn. Svitinn bogaði af honum. Kvöldgolan lék svalandi um votan hvirfil hans. Það syrti í huga hans, er hann hóf hægri hönd sína á loft. Hann leit nið- ur í friðsælt andlit föður síns. „Faðir,“ tautaði hann. „Faðir, þú skilur — svo að ég geri það í þetta sinn.“ Hann lyfti hamrinum og lét hann falla. Hann heyrði beinið bresta. Það var gert. Hann fleygði hamrinum langt í burtu frá bálkestinum. Nú var ekkert ógert nema að kveikja í sand- alaviðnum — það var líka skylda hans — og að því búnu myndi hann bíða, unz líkami föður hans var orðinn að ösku. Fjórum dögum seinna, þegar bálið var útbrunnið, tók hann upp beinin, sem höfðu ekki brunnið, og í návist frænda síns bar hann þau að Ganges og kastaði þeim í vatnið. Það var aftur kvöld, loftið var kyrrt, og fljótið tók við gjöfinni. „„Eins og bein manns eru mörg í faðmi fljótsins Ganges, eins mörg þúsund ár mun hann Framhald á bls. 38 FÁLKINN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.