Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 9

Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 9
1. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt mikla áherzlu á smíði skrif- borða og birtist hér mynd af einu þeirra, sem er mjög stíl- hreint, eins og myndin sjálf sýnir bezt. Auk skrifborðanna er mikið framleitt af svefnherbergishúsgögnum, vegghúsgögn- um, borðstofusettum o. fl. 2. Hafsteinn Sölvason, húsgagnameistari, verkstjóri fyrirtækis- ins, við spónskurðarvélina. Allar vélar fyrirtækisins eru uý- legar og fullkomnar, enda er það allra hagur. 3. Davíð Guðmundsson, sölustjóri. Verið þið ekkert hissa á því, þótt lagerinn sé ekki stór, jafnóðum ... ólst upp þarna fyrir austan og æska mín var eins og æska annarra. Maður byrjaði snemma að reyna að vinna eitthvað fyrir sér og sextán ára fór ég á vertíð í Vest- mannaeyjum. Það gekk vel og peningana, sem ég vann mér inn þá, lagði ég í útegerð. — Hvernig fyrirtæki var það? — Það var nú ekki stórt fyrirtæki og ekki langlíft held- ur. Við vorum tveir, sem leigð- um okkur smábát, sem við fór- um með norður á Þórshöfn og keyptum okkur kolanet. Það gekk mjög vel, og ég átti tals- verðan skilding í vasanum, þegar ég hélt suður um haustið. — Ég hafði lengi haft áhuga fyrir að læra húsgagnasmíði, og um haustið réðist ég sem lærlingur til Árna Hreiðars Árnasonar á Laugavegi 42. Þá var ég 17 ára. Kaupið var ekki hátt hjá lærlingunum fyrsta árið var vikukaupið 195 krónur en fór upp í 235 annað árið, svo kolapeningarnir frá Þórs- höfn komu sér vel. 4 — Þú varst byrjaður at- vinnurekstur, áður en þú hafð- ir lokið námi, var það ekki? okkar húsgögn seljast nefnilega — Jú, ég var það víst. Ég ákvað snemma að reyna að koma mér uPP einhverju sjálf- ur og fylgdist vel með öllum auglýsingum í blöðunum, ef vera kynni að einhverjar ódýr- ar vélar yrðu auglýstar. Einn daginn, þegar ég hafði verið um það bil tvö ár í námi, sá ég slíka auglýsingu. Ég fór á staðinn. Þar hitti ég fyrir ekkju eftir mann, sem hafði stundað viðgerðir. Vélarnar áttu að kosta 23 þúsund krónur. Ég skoðaði vélarnar og langaði mikið til að eignast þær. Ekkjan vildi líka selja þær, en á kaupunum var einn hængur. Ég átti nefnilega enga peninga. En blessaðri konunni leizt svo vel á mig, að hún vildi gjarna lána mér og spurði, hvað ég gæti borgað. Ég stakk upp á þúsund króna útborgun og fimmtán hundruðum á mán- uði. Hún gekk að því. Við sömdum — og ég fór út í Iðn- aðarbanka, þar sem ég sló víxil fyrir þúsund króna út- borguninni! — Já, þannig byrjaði minn atvinnurekstur. Fyrir góðvild eiganda hússins fékk ég að hafa vélarnar áfram á sama stað um Frh. á bls. 30 2 9 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.