Fálkinn


Fálkinn - 02.03.1964, Qupperneq 4

Fálkinn - 02.03.1964, Qupperneq 4
Marni Nixon Fyrir nokkni eíðan barst okkur bréf í pósthólfið þar sem spurst var fyrir um hvort að- alleikaramir í West Side Stoi-y syngju sjálfir í myndinni eða hvort einhverjir syngju fyiir þá. Við svöruðum á þá leið að þeir gerðu það sjálfir að Nat- alie Wood undanskilinni. Henn- ar hlutverk væri sungið af ein- hverri 'konu sem við kynnum ekki na,fn á. Sú sem syngur fyiir Natalie Wood heitir fullu nafni Mar- garet Nixon Mac Tathorn og er 32 ára að aldri. Allan sinn aldur hefur hún átt heima i Hollywood eða nágrenni. Tíu éra gömul hlaut hún verðlaun fyrir söng sinn í skólasam- keppni og söng hún þá Dónár- valsinn (Dóná svo blá, svo blá). Sautján ára hætti hún ekólagöngu og réðist til starfa hjá M-G-M. Sína fyrstu 35 doliara vann hún sér inn er hún söng fyrir Margaret O’Brien. Núna fær hún allt að 10.000 dollara fyrir mynd sem hún syngur í. 1 West Side Story syngur hún fyrir Natalie Wood svo eem fyrr segir. 1 Konungurinn og ég söng hún fyrir Deborah Kerr og hún söng einnig fyrir Janet Leigh í Pepe sem nýlega var sýnd í Stjörnubíó, 1 kvik- myndinni sem gerð verður eftir My Fair Lady mun hún syngja hlutverk Elisu en svo sem kunnugt er mun Audrey Hep- born leika það hlutverk. Marni Nixon eins og hún kallar sig hefur nokkrum sinn- um sungið með New York Fil- harmoníuhljómsveitinni. Þá hefur hún einnig sungið inn á margar hljómplötur hin ólík- ustu verk alit frá Bach til Sout.h Pacific. 4 FÁLKINN Xavier Cugat Sjáiísagt hafið þið oftar en einu sinni heyrt í hljómsveit Xavier Cug- at og notið þeirrar listar með mik- illi ánægju. Skömmu fyrir jól var hann á ferðalagi í London ásamt konu sinni Abbe Lane og skruppu þau saman á bar nokkurn þar 1 borginni. Nokkuð mun hafa verið þröngt á bamum og þegar Abbe var að olboga sig í gegnum þvög- una snerist að henni góðglaður ná- ungi og fór að láta vel að henni. Cugat brása hinn versti við svosem við var að búast og þurfti þrjá menn til að halda honum. Annars var sagt að reiði Cuta hefði ekki snúizt gegn hinum góðglaða náunga heidur konunni sem hann sagði að hefði gefið manninum ástæðu til þessara blíðuláta hans. Sættir munu þó hafa tekizt 1 máiinu og héldu hjónin heim á hótelið eins og ekk- ert hefði skeð. Gamanleikarar Þeir eru margir sem halda því fram að skopmyndimar hafi verið miklu betri i gamia daga heldur en nú á tímum. Það eru gömlu sannindi og ný að heimur vernsandi fer. Nýja Bíó sýndi fyrir nokkru þrjór syrpur af myndum frá fyrstu dögum kvikmyndanna og Tónabíó sýndi einnig þrjár myndir Charlie Chaplin. Þessar sýn- ingar nutu allar mikilla vinsælda og er það verulega athugandi fyrir kvikmynda- húsin hvort ekki væri ráðlegt að sýna meir þessar gömlu skopmyndir. Við birtum hér þrjár myndir af kunn- um kempum frá tímum þöglu skopmynd- anna. Fyrst er mynd af konungi þeirra Chariie Chaplin í hlutverki veðlánarans. Þá er mynd af bróður hans Syd Chaplin en þrátt fyrir góðan leik varð hann að sætta sig við þau dapurlegu örlög að falla í skugga bróður síns. Að lokum er svo mynd af Buster Keaton í mynd hans Hershöfðinginn en auk þess sem hann var framleiðandi og leikstjóri þeirrar myndar samdi hann einnig handritið og fór með aðalhlutverkið Austurbæjarbíó mun vænt- anlega sýna þessa afbragðsgóðu grín- mynd á þessu ári og mun það mörgum tilhlökkun.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.