Fálkinn


Fálkinn - 02.03.1964, Síða 13

Fálkinn - 02.03.1964, Síða 13
fannst honum að hann væri henni andstæður, eins og hann raunar grunaði; hann þjáðist í nærveru hennar, fannst hann vera ósiðaður og óheflaður og varð vegna hennar óstyrkur eins og óframfærinn skóladrengur. Hugmyndin að bókinni varð honum til lífs, hann hafði sökkt sér í nýjar rannsóknir og áætl- anir, sýndi sjálfum sér enga lin- kind og reyndi að ganga fram af sér með því að vinna alltaf til miðnættis, nema þau kvöld sem hún óskaði eftir að sýna hann einhverju fólki. Hann sýndi hvorki sjálfum sér né Marion neina linkind. Hann lét hana Vinna, kvöld eftir kvöld. Þegar hann síðan kom seint heim eitt kvöid knm hann að Mildred í bókaherberginu, þar sem hún beið eftir honum. Hann hafði tekið eftir ljósi þar og hélt hann hefði gleymt að slökkva. Þarna sat hún með bók í keltu sér og beið. En hún las ekki. heldur sat aðeins með bókina og beið. óvenju rjóð í framan. Hann varð undrandi og kvfðinn, bar til hann uppgötvaði. að hún var ösku-oið og sýniiega í hans garð. „ Hvar hefurðu verið.“ byrj- aði hún og rómurinn var kaldur og hvass. „Nú, á rannsóknarstofunni", svaraði hann blátt áfram. ,,Hvað hefurðu verið að gera?“ svaraði hún hranalega. „Nú, hvers vegna? Unnið“. svaraði hann hissa. „Ætlarðu að segja mér að þú hafir unnið aleinn til miðnættis öll þessi kvöld“, sagði hún. „Auðvitað", svaraði hann ein- feldningurinn. „Þar var enginn nema Marion". „Nema Marion" át hún upp eftir honum, og þá varð honum Ijóst, hvað henni bjó f huga. Hann lét fallast í stól, skyndi- lega varð hann þreyttur og um- komulaus. Guð minn góður, þessu trúði hún á hann — en lét sig engu skipta tryggð hans og ósvikna ást um áraraðir. „Mildred" hvíslaði hann. „Ég get ekki þolað þetta'1, sagði hún og grét beizlega. „Aðr- ar konur geta þolað svona lag- að, en ekki ég. Þú hefur svift mig æsku minni og ég hef fóm- að þér lífi mfnu, alið þér börn, gefið þér allt og þetta eru laun- in. Ég hef ekki fyrr sagt þér að ég sé södd orðin af „svona löguðum hlutum" fyrr en þú fitjar upp á tvíræðum leik. Þú hefur alltaf haft of mikla kyn- orku, jafnvel vinna þfn stafar af of mikilli kynorku...... Nú þoldi hann ekki lengur mátið. „Hættu", hrópaði hann. — „Hvernig geturðu sagt annað eins, Mildred, hvað gengur að þér, ástin. Athugaðu, hvað þú ert að segja. Ég er maðurinn þinn, ástin mín, elskuhugi þinn". Og allt f einu fór hann að hágráta. Ætíð er hann minntist þessa sfðar, skammaðist hann sín fyr- ir grátinn, en þó var þetta ef til vill bezta leiðin. Þó hafði það gengið svo langt, að hún varð hrærð og þegar hann kraup á kné og gróf andlitið f skauti hennar, sat hún grafkyrr og hafði eftir dálitla stund, hálf- vegis á móti vilja sínum, fitlað lítillega við hárið á honum og lagt eyrun við öllu, sem hann sagði. „Aldrei, aldrei hef ég hugsað um aðra en þig — hún er mér ekkert — ekkert nema aðstoðar- stúlka, hjálparhönd, — heili. Þú ert konan mín, þú ert ástin mín, ég er ekki eins og þessir veniulegu karlmenn". En áður en hún svaraði og áður en hann hætti að kiökra og stama heyrðu þau fótatak frammi á gangi. Bob og Molly voru að koma úr veizlu og höfðu boðið einhverjum kunningjum sínum með sér inn. í forstof- unni bergmáluðu hlátrasköll og háværar raddir. „Stattu upp, börnin eru að koma", hvíslaði Mildred og stjakaði harkalega við honum og hann reis þyngslalega á fætur. Fyrir löngu hafði hann tekið eftir, að hún reyndi að leyna bömin ástalífi þeirra, eins og hún héldi, að það mundi særa börnin, ef þau vissu, að foreldr- ar þeirra ynnu hvort öðru hug- ástum. Þegar þau komu inn í bóka- herbergið með miklu háreysti sat hann andspænis henni í hæg- indastól og tottaði pípuna sína. Þau litu út eins og friðsöm, gömul hjón, sem biðu eftir böm- um sínum úr gleðskap. Þegar bömin vom farin að hátta var ekkert — alls ekkert meira að segja. Hún setti bæk- urnar á sinn stað á borðinu og kyssti hann köldum kossi á enn- ið; og sagði: „góða nótt, elskan" og það var allt og sumt. En eft- ir þetta var hún vingjarnlegri f hans garð og þeim kom vel saman. f nokkra daga fannst honum óþægileg návistin við Marion á rannsóknarstofunni og sýndi henni hálfgerðan hrana- skap. En þessir dagar liðu einn- ig og hann gleymdi — eða næst- um því gleymdi, þessu kvöldi í bókaherberginu. N ■ ^ ú leit hann á hana ung- um, hálfluktum augum og áleit hana enn þá fegurstu konu, sem hann hafði séð. Á þessum morgni fannst honum hann vera ham- KONA SEM EKKI GETIIR ELSKAÐ Smásaga eftir Pearl S. Buck ingjusamur maður að eiga svo undurfagra, góða og tryggakonu. Konur vom viðkvæmar vemr. Maður varð að taka því, sem þær veittu og umgangast þær af nærgætni. Hann hafði nú lokið morgunverði sínum, stóð upp, þurrkaði sér umhyggjusamlega um varimar og beygði sig niður til að kyssa hana. „Bless, ástin mín“, sagði hann. „Ég kem stundvíslega heim í hádegismat og reyni að koma í fyrra lagi heim úr vinnunni í kvöld". „Bless, elskan," svaraði hún róleg og sneri að honum vanga svo að hann gæti kysst hann. Bréfið frá Indlandi hafði ger- breytt öllu. þegar hann kom inn f vinnuherbergið, settist hann niður og las enn einu sinni bréf- ið frá upphafi til enda. Bréfið var skrifað í ákafa og af eld- móði og endaði í auðmjúkri bón. „Komið þér — komið þér til okkar", skrifaði herra Dhas sín- um gamla prófessor, ég þarfn- ast yðar, þarfnast hjálpar yðar. Ég vildi óska, að stúdentar mín- ir mættu njóta þeirrar hjálpar, sem þér veittuð mér einu sinni. Við þörfnumst yðar mjög, kæri, kæri herra og ég hef gnægð af nýju efni, sem mig langar að leggja á yðar vald til notkunar í hinu nýju og mikilvægu bók yðar". M B I ann lagði bréfið frá sér, brosti og leit í kringum sig í her- berginu. Það yljaði honum um hjarta rætur, hversu mjög ein- hver þarfnaðist þess, er hann hafði að gefa. Og svo var auðvit- að þetta nýja, óborganlega efni, en að vísu var hægt að senda það í pósti. Hins vegar þörfnuðust þeir hans sjálfs, á staðnum. Dhas var óvenju ungur sem prófessor og hafði ráðizt í rann- sóknir, sem voru honum um megn. Hann minntist hugsjóna- glóðarinnar í augum hins unga Indverja. Hann hafði sýnt hon- um vináttu á háskólaárum hans og Indverjinn. hafði aldrei gleymt því. Hann var sí og æ að senda honum hinar fáránlegustu gjafir og ekki styttust bréfin frá hon- um, þótt fimm ár væru liðin. Honum þótti miður að hafa aldrei getað boðið honum til sfn, en Mildred hafði lagzt á móti því. Hún hafði andúð á erlend- um stúdentum — af einhverjum ástæðum vegna Mollyar ....... — Enn las hann bréfið og brosti. Og þá fékk hann allt í einu hug- mynd. Hann ætlaði að svara bréfinu og útskýra að þvf miður gæti hann ekki komizt til Ind- lands vegna brúðkaups dóttur sinnar. Hann studdi á hnapp á skrifborðinu og Marion Crowne birtist. „Góðan daginn, Marion" sagði hann og brosti til hennar. ,,Ég hef fengið svo hjartanlegt bréf frá Dhas, að mig langar að svara því strax, meðan ég er í skapi til þess". Hann las henni greinilega fyr- ir ástæður þær, sem lágu til þess, að hann komst ekki til Indlands og Marion skrifaði eft- ir honum fljótt og vel. Hann virti fyrir sér æfða hönd henn- ar fljúga yfir pappírinn og bíða síðan frekari skipunar. „Hvað efninu viðkemur —“ En áður en hann gæti haldið áfram máli sínu, leit hún upp og lagði blýantinn og skrifblokk- ina á skrifborðið sitt. „Doktor Barclay", sagði hún. „Hvers vegna farið þér ekki til Indlands?" Hann varð afar hissa og svar- aði vingjamlega: Framhald á bls. 26 FÁLKINN 13

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.