Fálkinn - 02.03.1964, Side 43
Sjónvarpið
Framhald a£ bls. 39.
handrit að sjónvarpskvikmynd-
um eru samin og stór deild þar
sem klipping myndanna fer
fram. Þá er tóndeild, sem sér
um allt tal og tón, sem flutt
er með t. d. kvikmyndum, sem
stöðin lætur taka og í mörgum
stórum herbergjum er unnið
að viðgerð og viðhaldi kvik-
myndavéla og annarra tækja.
Er ég heimsótti sjónvarps-
stöðina fyrir nokkru, var m. a.
verið að undirbúa upptöku
barnaleikrits og smiðir unnu
að sviðsútbúnaði fyrir hana i
einum upptökusalnum. í öðrum
var allt á öðrum endanum
vegna upptöku á dramatisku
leikriti og í því þriðja átti að
iara að lesa fréttir. Við frétta-
lesturinn eru notaðar þrjár
sjónvarpsmyndavélar, sem öll-
um er miðað á þulinn sem
fréttirnar les. í tveim hliðar-
herbergjum, sem skilin eru frá
upptökusalnum með tvöföldu
gleri, sitja þeir sem stjórna út-
sendingunni og stjórnar annar
tóni en hinn myndinni, sem
send er út í ljósvakann. Sá
stjórnar þannig að hann
ákvarðar hvort háttvirtur
sjónvarpsnotandi, sem situr
heima sjá sér og horfir á þulinn
lesa fréttir, sér hann frá vinstri
eða frá hægri eða þá beint
framan frá, nærmynd eða fjær-
mynd. Allt er þetta leikmanni
flókinn útbúnaður, svo og
stjórn ljóskastaranna, sem flest-
ir hanga í lofti upptökusalar-
ins. Allt er þetta gert til þess
að forðast tilbreytingarleysi í
útsendingunni og í sama augna-
miði eru margvísleg baksvið,
og umhverfi fréttaþularins.
En þótt fjöldi sjónvarpssend-
inga sé útbúinn og framkvæmd-
ur beint úr sjónvarpshúsinu
sjálfu, þá er þó meiri hluti
sjónvarpsefnisins tekinn á kvik-
myndafilmu, sem síðan er
klippt og unnin eins og kvik-
mynd fyrir kvikmyndahús væri
að ræða. Þannig eru sjónvarps-
tökumenn úr þessu gamal-
kunna sjónvarpshúsi í Berlin
á ferðalögum víðsvegar úti um
heim til þess að taka kvikmynd-
ir er síðan verða sendar frá
Sender Freies Berlín og þeir
karlar spara hvorki tíma né
fyrirhöfn til þess að útsending-
arnar verði svo sem bezt verð-
ur á kosið. Þannig er sjónvarps-
tökumaður kannski mánuð á
íslandi við kvikmyndun á foss-
um, hverum og síldarstúikum,
cn næsta mánuð er hann í Viet-
Nam þar sem hann kvikmynd-
ar skæruliða kommúnista úr
þyrlu sem flýgur lágt og er
ákjósanlegt skotmark, eða hann
fer í árásarleiðangur með her-
mönnum stjórnarinnar og veð-
ur aur og leðju og má þola
harðrétti hermennskunnar og
vera við því búinn að leyni-
skyttur láti til sín taka eða Um allt þqtta og ótal margl
herflokkurinn, sem hann fylgir fleira má fræðast í sjónvarp-
verður umkringdur og brytjað-inu sem ef rétt er á haldið er
ur niður. dásamlegt menningartæki en
En inn á milli koma svo frið-yerður í höndum annarra, sem
samleg verkefni og áhyggju-ekki valda því, hið hættuleg-
minni eins og fræðslumyndirasta forheimskunnar apparat.
um kökugerð eða hvernig á að
baða nýfætt barn. Sv. S.
1 III MBi
- Stillið á lit og saumið -
Það er þessi einfalda nýjung, sem
kölluð er „Colormatic", sem á skömm-
um tima hefur aukið vinsældir
HUSQVARNA 2000 til stórra muna.
ö
Beinn saumur, hnappagöt, blindfaldur og úrval 4§j& HUSQVARNA heimilistæki, saumavélar o. fl.
mynztursauma er hægt að velja með einu hand- eru þckkt hér á landi í yfir 60 ár. Hafa nafninu
taki. Þar sem það er sýnt á greinilegan hátt, hér sem annarstaðar stööugt vaxið vinsældir.
í litum, á „saumveljara".
Kynnið yður þessa nýjung á sviði sauma-
véla, og þér munuð komast að raun um að
Husqvarnai er í fremstu röð enn. sem fyrr.