Fálkinn


Fálkinn - 14.09.1964, Síða 27

Fálkinn - 14.09.1964, Síða 27
ÞJÓNINN , Major að nafnbót. Árið 1947 lék hann í fyrstu mynd sinni. Esther Waters. Næstu árin lék hann í nokkrum kvikmyndum og lék alltaf tiltölulega sömu persón- una: ungan afbrotamann á flótta undan lögreglunni. Brátt fékk hann þó fjölbreyttari hlutverk og lék m. a. í nokkrum gamanmyndum. Hvað kunnastar munu vera myndir þær sem hann lék í ,,lækna“ flokknum og Gamla Bíó sýndi fyrir nokkrum árum, Læknir til sjós og Læknaneminn. Hann hefur nú leikið í um fjörutíu kvikmyndum og farið með margvísleg hlut- verk og er tvímælalaust í hópi beztu brezkra kvik- myndaleikara. Leikur hans í þessari mynd er með afbrigðum góður. Með hlutverk Vera fer Sarah Miles. Hún nam um stund ballett en hætti því og hóf leiklistarnám hjá Royal Academy of Dramatic Arts. Hún fékk hlutverk í nokkrum leikritum og náði góðum árangri á leik- sviðinu. Hún lék fyrst í kvikmyndinni Term of Trial á móti sir Laurence Olivier, en sú mynd var byggð á sögu James Barlow. Næsta kvikmyndahlutverk hennar var The Ceremony en þar lék hún á móti * Laurence Harvey. Þetta er þriðja kvikmyndahlut- verk hennar og vafalaust eiga mörg eftir að fylgja í kjölfarið. a Wendy Craig fer með hlutverk Susan. Hún hefur um árabil leikið í fjölmörgum leikritum og getið sér gott orð. Hún er gift Jack Bently og eiga þau tvö börn. James Fox fer með hlutverk Tony. Hann er fæddur í London 1939. Hann hóf leiknám um 17 ára aldur en eftir tveggja ára nám fór hann í herinn og var m. a. um tíma í Kenya. Eftir að hann lauk herskyldu Barrett brýtur Tony undir vilja sinn og gerist húsbóndi á heimilinu. íbúð Tony hefur verið nýstandsett og hamingjan er enn til st«ðar milli hans og Susan. Barrett kynnir Veru fyrir Tony sem systur sína og hún verður fljót* lega ástkona Tony. Tony og Susan leika sér í nýföllnum snjónum glöð og ánægð en það er skammt stórra tíðinda að vænta. FÁLKINN 27

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.