Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1965, Page 7

Fálkinn - 15.02.1965, Page 7
Sarí er ekki mjög þægilegur fatnaður, þótt kvenlegur sé og klæðilegur — þessar geysilegu umbúðir eru hálfþvingandi. Frú Bjarney á heimili sínu í Reykjavík (Mynd: Runólfur Flentínusson.) „Við bjuggum á efri hæð í tvílyftu húsi, og íbúðin var eitthvað um tvö hundr- uð fermetrar að stærð með gríðarmiklum svölum — ég man, að mér fannst hún ekkert nema gólf og þak, þegar ég sá hana fyrst, af því að allt var opið og glugg- arnir rúðulausir." „Það hlýtur að vera auð- velt fyrir innbrotsþjófa að stunda atvinnu sína þarna.“ „Nei, húsið var á landar- eign Guðspekifélagsins, og hún er öll girt og verðir við hliðið, sem er lokað klukkan tíu á kvöldin. Þetta er eins og risastór garður, paradís á jörðu, allt tandurhreint og snyrtilegt, eitthvað annað en mörg hverfin í Madras, en Adyar er hluti af þeirri borg og dregur nafn sitt af ánni Adyar. Jæja, íbúðin okkar var stór og rúmgóð og lítið í henni af húsgögn- um, aðallega borð og stólar ' í svokölluðum brezkum ný- lendustíl, áttkantað borð- stofuborð, stólar með basti í setunum, þunglamalegar kommóður, steinflísar á öll- .um gólfum, sem gott var að ■ þvo, en rakinn var svo mik- ill, að þau vildu ekki þorna. Það var afar hátt undir loft, og ég stóð uppi á stól með strákúst í hendinni og teygði mig eins og ég gat til að dusta niður helztu köngul- lóavefina, sem alltaf söfn- uðust fyrir í hornum og skotum.“ Rakinn var verstur „Þolduð þið vel hitann?“ „Það var ekki hitinn sem var verstur, heldur rakinn, og hann varð óskaplegast- ur í desember rétt fyrir regntíðina. Þá myglaði allt í höndunum á manni, og það var lífsins ómögulegt að út- • rýma fúkalyktinni úr hús- inu. Sængurfötin voru sí- blaut og loftið svo raka- mettað, að svitinn rann í L

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.