Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1965, Síða 9

Fálkinn - 15.02.1965, Síða 9
Smábörnin máluð um augun „Hafa indverskar konur smitazt af vestrænni tízku, eða halda þær fast við sinn hefð- bundna stíl?“ „Þær ganga langflestar í sarí nema helzt í Bombay, þar sem evrópskur klæðaburður er algengur. En enginn skyldi ætla, að það væri sama, hvern- ig maður vefur um sig sarí. Þarna eru gefin út tízkublöð sem útskýra rækilega, hvernig sú athöfn á að fara fram. Núna er í tízku, a. m. k. meðal yngri kvenna, að vefja honum þétt- ar um mjaðmirnar til að sýn- ast meira sexy, og mynstrin fylgja duttlungum tízkunnar j •— sum þykja óheyrilega gamaldags, en önnur alveg á . toppinum. Indverskar konur mála sig mikið og eru með afbrigðum glysgjarnar. Þær ganga allar með kolsvarta augnmálningu og byrja að mála börnin kringum augun, þegar þau eru nokkurra mánaða gömul. Skiptinguna í hárinu lita þær rauða, andlitið púðra þær með hvítu talkúmi, rauðan blett setja þær á mitt ennið, og dansmeyjar ganga með rauðmálaða lófa og iljar. Þær hlaða á sig skartgripum: mörg- um eyrnalokkum á hvort eyra, perlu festa þær í nasavænginn — já, eina sá ég með heila nælu í nefinu — glitrandi steina meðfram hárskipting- unni, og svo bera þær ótal arm- '■ bönd, öklahringi og hringi á 'i tánum. Barnshafandi konur bera mjó glerarmbönd í ýms- um litum; þegar þær eru komn- ar þrjá mánuði á leið, er hald- s. in veizla og bætt við armbönd- ,i um, eftir fimm mánuði önnur veizla og fleiri armbönd og eftir sjö mánuði enn ein veizlan og armbandaviðbótin, allt eftir ákveðnum reglum.“ Fullt af hákörlum og

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.