Fálkinn


Fálkinn - 15.02.1965, Side 40

Fálkinn - 15.02.1965, Side 40
KRYDBRASPiO FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN KÍNVERSKIR MYNDOFNIR HANDSAUMAÐIR PÚÐAR OG VÍROFNIR ENDURNÝ JUM SÆNGUR OG KODDA FLJÓT AFGREIÐSLA HÖFUM EINNIG EINKASÖLU A REST-BEST KODDUM Póstsendum um land allt DÍN- GG FIDURHREIWSUMIIM VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi) Sími 18740. • Dansað á Kea Framh. af bls. 37. hans, þegar hanr. sá mig og ég fann, að það hvarflaði sem snöggvast að honum að þykjast ekki þekkja mig, því hann leit framhjá mér, en svo sá hann að þetta þýddi ekki og hann leit á mig með fyrirlitningu. í guðanna bænum, hvað viltu mér, þú ert blindfull, og lítur út eins og — ja, eins og ég veit ekki hvað! Viltu koma með mér upp á herbergið mitt og tala við mig, sagði ég, það er málefni sem varðar þig eins og mig. Hann gerði sér upp hlátur og gaut flóttalegu auga á magann á mér. Ertu vitlaus, ég verð að biðja þig að gæta að hvað þú segir — biður karlmann að koma með þér upp á herbergi um hánótt. Hann virtist vera að ná sér á strik. Geturðu ekki fengið hann til þess, þann, sem situr við borð- ið hjá þér, ha? Ég reiddist, en það var magn- vana reiði þess, sem veit hversu vonlaus aðstaðan er. Þú mátt til, sagði ég. Hann var orðinn óþolinmóður. Góða farðu áður en kærastan mín kemur, hún er vel uppalin stúlka og ég er ekki viss um að hún yrði ánægð, ef hún sæi mig á tali við þig, auk þess þarf ég að koma mér vel við kallinn pabba hennar, skilurðu, hann hefur fina stöðu handa mér, ha? Kærastan hans, hugsaði ég, og í því kom hún inn í salinn aftur, nýmáluð. Ég tók eftir því, að fatnaður hennar var svo áberandi, að hún hlaut að vekja á sér athygli í mílu fjar- lægð. Jæja, verði ykkur báðum að góðu, hugsaði ég, þegar ég gekk aftur að borðinu, þar sem stýrimaðurinn beið mín enn. Ég fann til léttis, eins og ég hefði lokið af einhverju nauð- synlegu. Yar þetta erindið, sem þú þurftir að sinna? spurði hann og hló. Það hefur varla verið ákaflega mikilvægt. Nei, sagði ég, en ég vissi það ekki fyrr en nú. Hann iauk úr glasinu. Þú verður þá samferða á morgun? Já, svaraði ég, ég verð samferða á morgun. ★ ★ • Surtsey Framh. af bls. 32. fyllztu varúðar hann taldi ekki ráðlegt að lenda þar nema tveggja hreyfla vél. Ef lent er þar vél með nefhjóli, er hætta á, að skrúfurnar tæti upp sand og grjót, þegar hjól- in síga niður í sandinn. Björn hefur í hyggju að láta merkja þarna flugbraut, tína burt allt grjót, setja upp vindpoka og gera aðrar nauðsynlegar var- úðarráðstafanir. Þá hefur rann- sóknarráð í hyggju að koma upp skýli á eyjunni fyrir vís- indamennina. Þar verður hægt að hella upp á könnuna, rabba í talstöð og leita skjóls, ef veð- ur er ekki skaplegt. Þá taldi Björn nauðsynlegt að setja einhverjar reglur um mannaferðir á eyjunni; t. d. þær, að menn, sem væru þar á ferð, yrðu að halda hópinn, því sannast sagt er hættulegt að ganga á hrauninu, því sums staðar er yfirborðið örþunn hraunstorka, sem getur gefið eftir, ef stigið er á hana. Nú er hægt að ganga alveg að gig- barminum og horfa á glóandi hraunið byltast í gígnum. Yfir- leitt ná slettur ekki upp á gig- barminn, því hraunelfan renn- ur eftir undirgöngum í sjó fram í suðurátt. Eyjan breikk- ar hægt, því 120 m dýpi er þar sem hraunið rennur i sjó fram. Mikið er um fugl á eyjunni og selur hefur tekið sér þar ból- festu. Ýmsu hefur skolað á land, sjávargróðri, bobbingum og öðru lauslegu úr skipum. Framh. á bls. 42. Framleitt einungis úr úrvals gleri. — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. KORKBÐJAIM H.F. Skúlagötu 57. — Sími 23200. 40 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.