Fálkinn - 28.02.1966, Blaðsíða 9
Leikari í iuktluis
Það er ekki langt síðan að einn af „köldu körlunum“
í óteljandi Hollywoodkvikmyndum var dsemdur í 15 ára
fangelsi fyrir að hafa valdið dauða fjórðu konu sinnar
og dómurinn féll rétt um það bil, sem hann var að ganga
í sitt fimmta hjónaband. Maðurinn heitir Tom Neal og er
frægur leikari. Kvenmaðurinn, sem hann var í þann veg-
inn að kvænast, þegar dómurinn gekk, er næturklúbba-
söngkona í Las Vegas. Neal er nú 51 árs að aldri og þegar
hann gekk út úr réttarsalnum, eftir að dómurinn hafði
verið lesinn yfir honum, sagði hann, með dramatízkri
áherzlu: „Dómurinn er réttlátur. Fangelsið er einmitt rétti
staðurinn fyrir mann eins og mig.“
VEL V AK ANDI
Sex stúdentar í Prag, hafa gengist undir all nýstárlega
tilraun. Þeir ætla að vaka í 120 klukkustundir, án þess að
nota nokkur þau lyf, sem geta hjálpað þeim til að ná
tilætluðum árangri. Læknar eru steinhissa yfir úthaldi
piltanna, en sálfræðingar geta sér þess til að stöðugar
sjónvarpssendingar frá tilraununum, verki álíka örfandi á
„tilraunadýrin“ og sterkustu örvandi lyf. Myndin er af
einum stúdentinum við tilraunirnar.
exntcu
hnmittSH
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU EÆÐAVÖRUR OG SANN-
FÆRIST UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA
FÁST í FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SMYRTIVÖRLR HF. HEILDVERZLUN SÍML 11020 - 11021
NÚ ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU ÚTLITI DG AUKA
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEGA MEÐ ÞVÍ AÐ NGTA SNYRTIVÖRURNAR FRÁ: