Fálkinn - 28.02.1966, Qupperneq 4
Upptökusalur Ríkisútvarpsins, sem
rúmar um 100 manns er þétt setinn af
ungu fólki sem er ýmist að brosa,
hlæja eða klappa. Hvers vegna? — Jú,
það er hinn snjalli Ómar Ragnarsson,
sem flytur sinn annálaða gamanóð fyr-
ir framan hljóðnemann. í stuttu máli,
hér er að fara fram hljóðritun á 12
laga L. P.-plötu, sem S. G.-hljómplötur
gefa út fljótlega eftir að þessi grein
birtist. Hér er um að ræða eins konar
heildarplötu yfir húmor Ómars á liðn-
um árum.
Hljóðritun þessarar plötu er að því
leyti nýstárleg, að öll lögin voru tekin
upp að viðstöddum áhorfendum og er
það í fyrsta sinn, að sá háttur er hafð-
ur á hérlendis. Hins vegar er þetta al-
gengt í Bandaríkjunum. Hlátursliðið
var þetta kvöld skipað nemendum úr
Verzlunarskólanum, hláturmilt og
elskulegt fólk.
Þegar upptökunni var lokið, spurði
ég Ómar að því, hvort að hann vildi
ekki nefna nokkur lög, sem hann vildi
vekja athygli á.
Jú, það ætti að vera hægt, svaraði
hann og blaðaði í bókinni sinni, sem
svo margir hnyttnir brandarar eru rit-
aðir í.
Þá er fyrst frægast að telja lagið
Kappakstur, en það er lýsing á slíkum
akstri milli Fiats og Cadillacs.
Bjargráðin er syrpa um stjórnmálin
og bregð ég þar fyrir mig eftirhermum
eins og reyndar í fleiri laganna.
Þá er lýsing á dægurlagasamkeppni,
en í henni taka þátt Nat „King“ Cole,
BENEDIKT VIGGÓSSON
SKRIFAR FYRIR
UNGA FÓLKIÐ
HLEGIÐ DATT A
NÝSTÁRLEGRI HLJÓMPLÖTUUPPTÖKU
4
FALKINN