Fálkinn - 28.02.1966, Blaðsíða 37
• Allt um Ellu
Framh. af bls. 18.
gagnfræðaskóla í Beverly Hills
og leikur á trommur með
„bítla“-hljómsveit á helgum.
Það er trúlegt að móðir hans
sé ekki mikið um tónlistina,
sem Ray og félagar hans leika.
Sú Ella Fitzgerald, sem flaug
heim til Bandaríkjanna fyrir
skömmu, — á barmi tauga-
áfalls, er þrautreynd söngkona,
sem noitð hefur óskiptrar hylli
jazz- og dægurlagaunnenda, svo
að segja óslitið, í tæp þrjátíu
ár. Þrátt fyrir óframfærni og
hálfgerðan ótta við gagnrýni,
stendur Ella Fitzgerald á há-
tindi frægðarinnar. Hún hefur
staðið þar ein — lengur en
nokkur önnur sambærileg söng-
kona. Til gamans má geta um
tvennt: Þegar söngkonur telja
upp uppáhaldssöngvara sína,
telja þær Ellu sjaldnast með.
Hún er í sér flokki. Ella Fitz-
gerald hefur ekki sungið fyrir
tómu húsi, jafnvel ekki hálf-
tómu, í fleiri ár.
Vonandi mun Ella Fitzgerald
halda áfram að skemmta heims-
lýð með söng sínum í þrjátíu
ár í viðbót, — og ávallt fyrir
troðfullu húsi... nema að
Reykvíkingar kunni ekki að
meta ... nei, það færi nú aldrei
svo, — eða ... ?
O Fálkimt hrlngdi
Framh. af bls. 19.
leikið inn á plötur. Meðal
þeirra voru hratt lag, sem
Duke nefnir „Song Call“ nýtt
nafnlaust lag fyrir einleik
tenórleikarans Paul Consalves,
og einstaklega skemmtilegt lag
fyrir Lawrence Brown, „Veldt
Amore“. Það kom engum á
óvart þegar röðin kom að
Johnny Hodges, sem auðvitað
lék „Things ain’t what they
used to be“, en hann var einnig
með annað einleikslag í poka-
horninu. Lagið vafalaust yfir
tuttugu ára gamalt Ellington
lag, hefur verið í huga mér
síðan, en ég get ómögulega
munað eftir hvað það heitir.
Við heyrðum alltof lítið af hin-
um stórkostlega trombónleik-
ara Burster Cooper, en aftur
á móti fengu John Lamb, sem
lék bogasóló á bassann, og
Jimmy Hamilton, með hinn al-
þekkta, fríska klarinetttón i
sinn, ágæt tækifæri. Ég var
hálfpartinn að vona, að Jimmy
Hamilton fengi tækifæri til að
leika á tenór, en því miður
varð mér ekki þess auðið að
heyra Hamilton leika tenór.
Seinni hluta hljómleikanna
kom Jimmy Jones tríóið í stað
rhytmasveitar Ellington hljóm-
sveitarinnar, og með- hljóm-
sveitinni söng hin óviðjafnan-
lega Ella Fitzgerald. Það hafa
oft risið upp deilur um Ellu.
Er hún jazzsöngkona eða dæg-
urlagasöngkona? Hvernig sem
það nú er, Þá söng hún þarna
lög eins og „Sation Doll“ eftir
Ellington, og fleiri falleg lög,
— eins og engill.
í enda hljómleikanna kom
Ellington aftur inn á sviðið, og
skipti á hlutverki við Jimmy
Jones. Hljómsveitin og Ella
léku og sungu „Cottontail“
eftir Ellington, svo að húsið
ætlaði að rifna af fagnaðarlát-
um. Paul Gonsalves átti fyrir-
taks einleik í laginu. Hljóm-
leikarnir enduðu á mjög fallegu
lagi, sem Ellington, Gerald
Wilson og Billy Strayhorn hafa
samið, „Imagine my Frustra-
tion“. Johnny Hodges átti
fallegan einleik, og aftur sann-
aði Ella, að það syngja alls
engir eins Qg hún, þegar hún
er vel upplögð.“
• Ég er saklaus
Framh. af bls. 29.
— Hákon Magnússon! Þetta
var óvænt ánægja! Hvaðan úr
ósköpunum kemur þú? hrópaði
hann.
— Ameríku. Mér datt í hug
að flakka dálítið um gömlu Svía-
byggð í sumarleyfinu mínu og
áður en ég vissi af, rak ég aug-
un í nafnið Malingsfors á vegar-
skilti. Þá mundi ég eftir því, að
þú áttir heima hér og þar sem
ég var kominn svona nálægt, ók
ég vitanlega hingað til þess að
fræðast um, hvað orðið hefði úr
þér.
— Það var skynsamlegt af
þér.
— Þú býrð fallega hérna. Og
þú virðist skrambans ári loðinn
um lófana sagði Hákon.
— Og þú' ert skrambans ári
loðinn í framan, svaraði Ulf af
bragði og hló. Hafa þeir engin
rakblöð í Ameríku? En auðvitað
þyrftirðu frekar hjólsög á þenn-
an skóg!
Það marraði í gömlu leðurstól-
unum og Marianne dró þá álykt-
un, að þeir hefðu sezt niður til
að tala saman. Hún lokaði hljóð-
ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
HEHDYEIZLUNIN
HEKLA
hf
Laugaveqi
170-172
Simi
21240
Volkswagen 1300 er fyrirliggjandi
Komiö, skoðið og reynsluakið
Varahlutaþjónusta Volkswagen er landskunn
Volkswagen 1300 — Verð kr : 149.800
Volkswagen 1500 - Verð kr : 189.200
© © ©
Gerið samanburð á frágangi, öllum. búnaði og gseðuni Yolkswagen.
og annarra Tbíla- frá Yestur-Evrópu,
© © ©
Volkswagcn 1600 TL Fastback kr : 207.800
FÁLKINN 37