Fréttablaðið - 08.10.2009, Page 13
FIMMTUDAGUR 8. október 2009 13
Í HAFNARFIRÐI Fullyrt er að innbrotum
hafi fjölgað.
LÖGREGLUMÁL „Innbrot á svæðum
í Vesturbæ Reykjavíkur sem
tekið hafa upp virka nágranna-
vörslu voru, samkvæmt tölum
frá lögregluembætti höfuðborgar-
svæðisins, engin á fyrstu sex
mánuðum ársins,“ segir í tillögu
fulltrúa Sjálfstæðisflokks í fjöl-
skylduráði Hafnarfjarðar.
Í tillögunni kemur fram að
undanfarna mánuði hafi innbrot
í heimahús, iðnaðarhúsnæði og
bíla aukist í Hafnarfirði. „Til að
stemma stigu við frekari aukn-
ingu er lagt til að hafinn verði
undirbúningur að tilrauna-
verkefni um nágrannavörslu
í Hafnarfirði í því augnamiði
að nágrannavarsla verði mjög
víðtæk í bæjarfélaginu, helst í
hverri götu.“ - gar
Bæjarfulltrúi vitnar í tölfræði:
Nágrannavarsla
fælir þjófa frá
UMHVERFI Vesturgötu verður
breytt í vistgötu milli Aðalstrætis
og Grófarinnar og á þessum kafla
verður einstefna til norðurs. Haf-
ist verður handa við breytingarn-
ar á næstu dögum.
Að því er fram kemur í tilkynn-
ingu frá Reykjavíkurborg verða
sett gróðurbeð í Vesturgötu og
gatan fegruð á ýmsan annan hátt.
Snjóbræðsla verður á göngu-
leiðum. „Efniviður er valinn til
að skapa vistlega stemmingu og
tengja við Grófartorg og annað
sem fyrir er,“ segir í tilkynning-
unni. Á vistgötum hafa gangandi
og hjólandi forgang fram yfir
bílaumferð án þess þó að mega
hindra för ökutækja að óþörfu.
Hámarkshraði verður fimmtán
kílómetrar á klukkustund. - gar
Breytingar á Vesturgötu:
Verður vistgata
með einstefnu
Mótmæla sameiningu
Bæjarráð Grindavíkur kveðst mót-
mæla harðlega öllum hugmyndum
um að sveitarfélög verði þvinguð
til sameiningar án þess að íbúar fái
að tjá sig á lýðræðislegan hátt um
málið. „Með þessum vinnubrögðum
er íbúalýðræði fótum troðið,“ segir
bæjarráðið.
SVEITARFÉLÖG
FÉLAGSMÁL Ísland getur orðið fyrir-
mynd annarra þjóða hvað varðar
réttindi fólks sem þarfnast aðstoðar.
Þetta segir Guðjón Sigurðsson, for-
maður MND-félagsins og fulltrúi í
stýrihópi Virkari velferðar, verkefn-
is sem hrundið hefur verið af stokk-
unum og hefur það að markmiði að
stuðla að sjálfstæðara lífi fatlaðra
utan stofnana. Í stýrihópi Virkari
velferðar, eða ViVe eins og verk-
efnið er kallað, sitja auk Guðjóns:
Evald Krogh, þekktur norskur bar-
áttumaður fyrir réttindum fatlaðra,
Sigursteinn Másson, formaður Geð-
hjálpar, Guðmundur Magnússon,
varaformaður Öryrkjabandalags-
ins, og Sigrún Björk Jakobsdóttir,
forseti bæjarstjórnar á Akureyri.
Verndari verkefnisins er Vigdís
Finnbogadóttir. Meginverkefni
stýrihópsins er að móta tillögur til
stjórnvalda um það hvernig hægt er
að gera fötluðum kleift að lifa sjálf-
stæðara lífi utan stofnana með not-
endastýrðri aðstoð.
Í tilkynningu frá verkefninu
segir að Íslendingar standi hinum
Norðurlandaþjóðunum að baki hvað
þetta varðar. Hér hafi stofnana-
úrræði orðið ofan á, en hinar Norður-
landaþjóðirnar bjóði í auknum
mæli upp á notendamiðaða aðstoð.
Þar njóti nú yfir 15 þúsund manns
slíkrar aðstoðar og í stétt aðstoðar-
manna séu yfir 50 þúsund. - sh
Stýrihópur Virkari velferðar mótar tillögur um sjálfstætt líf fatlaðra utan stofnana:
Fatlaðir öðlist aukið sjálfstæði
VIRKARI VELFERÐ Verkefnið var kynnt í
Norræna húsinu á mánudag. Á myndinni
sést Kristján Bergmann, markaðsstjóri
Hertz, eins aðalstuðningsaðila verkefnis-
ins, auk Vigdísar Finnbogadóttur og
fulltrúa stýrihópsins. MYND/ODDUR ÁSTRÁÐSSON
KÚBA Stjórnvöld á Kúbu hafa stig-
ið fyrsta skrefið í því að afleggja
hádegisverð í boði ríkisins fyrir
vinnandi fólk, að því er fram
kemur á vef BBC.
Ríkið greiðir nú fyrir máltíðir
um 3,5 milljóna manna, en í vik-
unni lokaði fjöldi mötuneyta.
Ríkið telur sig ekki lengur hafa
efni á því að greiða andvirði um
44 milljarða króna á ári fyrir
hádegisverð landsmanna.
Í stað þess að fá ókeypis hádegis-
verð fá starfsmenn 15 pesóa, jafn-
gildi 90 króna, til að kaupa sér
hádegismat. Gangi áformin vel
gætu almennar matarúthlutanir
verið næstar á lista. - bj
Breytingar á hugmyndafræði:
Ekki ókeypis
hádegisverður
SKIPULAGSMÁL Breyta þarf hús-
númerum á iðnaðarsvæði við
Unubakka í Þorlákshöfn gangi
eftir breyting á deiliskipulagi
sem nú er í auglýsingu.
Bætt hefur verið við bygg-
ingarreit að Unubakka 26-28
þar sem Lýsi hf. á að fá að reisa
tvo þvottaturna, allt að fjórtán
metra háa.
Frestur til að skila athuga-
semdum við breytinguna á deili-
skipulaginu rennur út 13. nóvem-
ber. Deiliskipulagstillagan er til
sýnis á bæjarskrifstofu Ölfuss
í Þorlákshöfn og inni á vefnum
www.landmotun.is.
- óká
Breytt skipulag í Þorlákshöfn:
Auglýsa fjórtán
metra háa turna
P
IP
A
R
•
P
IP
A
R
•
P
IP
A
R
•
P
IP
A
R
•
IP
A
R
P
A
R
P
A
R
A
R
A
R
A
S
ÍA
•
S
Í
S
ÍA
S
ÍA
A
•
A
••• 9 9 9 9 9 9990951
90951
0951
0951
959
FYRIR ÍSLENDINGA
SJÓFLUTNINGAR
Í 95 ÁR
| EIMSKIP | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | Fax 525 7009 | www.eimskip.is |