Eintak - 01.04.1969, Side 4
(D2 >-Q QQffDDUl- LIZ <ZZ<Q L'OJY
^RUM X/ID 5KRÝTIN
Þeirri spurningu er stunduxn varpað til nemenda í þessum
skóla, hvort í okkar hópi séu ekki fleiri furðulegir persónuleikar
en í öðrum skólum. Það er ekki óalgengt að heyra talað um
svokallaðar "listamannatýpur", þótt ef til vill sé nokkuð á reiki
hvað átt sé við með því. Ég hygg þó að flestum detti í hug síð-
hærðir og skeggjaðir náungar, sem virðast gera sér far um að
stinga f stúf við umhverfi sitt. Margir setja lfka framúrskarandi
mikinn drykkjuskap og lausung í samband við listamannsnafnið.
Listamannalff - ég held að flestir hafi nokkuð ákveðna hugmynd
um merkingu þess orðs. Þá merkingu verður þó að telja vafasama.
Ég held að segja megi að ef menn ætla að leita uppi í
okkar skóla óvenju margar persónur af fyrrgreindri gerð, þá
fari þeir í geitarhús að leita ullar. Vitaskuld kennir hér ýmissa
grasa og hér finnast litrfkir persónuleikar, en ég efast um að
hlutfall þeirra sé hærra hér en í öðrum skólum, Við komum
hingað flest til að búa okkur imdir fyrirhugað ævistarf. Sumir
nema auglýsingateiknun, aðrir búa sig undir að kenna teikningu
í skólum landsins og auka skilning komandi kynslóðar á mynd-
list, og hér nema einnig vefnaðarkennarar, svo nokkur dæmi
séu nefnd. Margir ala með sér þá drauma að geta með tíð og
tíma lagt fram sinn skerf til lista, en að nokkur úr okkar hópi
telji sig þegar listamann ætla ég fráleitt. Komi maður í þennan
skóla með þær hugmyndir, rekur hann sig fljótt á að þær eiga
ekki hér heima. Verður hann þá annað hvort að láta af grillum
sínum eða yfirgefa skólann og lifa áfram í sínum hugarórum,
Það segir sig sjálft að þeir, sem standa sem fastast á eigin
grunni, eiga lftið erindi í skóla, sem hefur það að markmiði
að byggja upp undirstöðuatriði skilnings manna á myndlist.
En þrátt fyrir það að "listamannatýpur" finnast hér fáar,
er ekki þar með sagt að ekkert sé hér frábrugðið öðrum skól-
um. Auðvitað hefur hver skóli sín sérkenni og er okkar þar
alls engin undantekning. Fólk er hér frjálslegt í skoðunum
og umgengni; klæðnaður til dæmis allfjölbreyttur, þar sem hver