Eintak - 01.04.1969, Blaðsíða 12
NOKKUR CRÐ UM
flUGiySINGAUtlLD
Nokkuð mikið vantar á, til þess að auglýsingadeildin verði
fullkomin og útskrifi fullkomlega færa auglýsingateiknara.
Skólinn þarf að keppa að því að gera deildina það vel úr
garði að ekki þurfi að senda nemendur út, til framhalds-
náms. Ef lengja á námið um eitt ár, sem er nauðsynlegt,
þá þarf námið að halda áfram sem endað var, þ.e. a. s. að
ekki sé hjakkað f sama farinu heldur eitthvað nýtt tekið fyrir
t.d. skriftir með pensli, allt það sem er nær starfinu sjálfu
en það vantar alveg núna, til dæmis að vinna litmynd fyrir
kiisjugerð, og m.fl.
Einnig virðist vera sem kennslutfmum sé raðað niður eftir
hentugleikum kennaranna, þegar þeir geta yfirgefið auglýsinga-
stofur sínar, en þeir hafa allir stofur.
Kennsludögum er yfirleitt skipt í tvennt og jafnvel þrennt,
maður er rétt buinn að taka teikniáhöld upp og farinn að vinna
af kappi, þegar annar kennari kemur, og þá á að vinna að
öðru verkefni. Hver kennari þyrfti að hafa minnst heilan
dag, helzt heila viku, ef það kemur sér ekki illa fyrir þá.
Reynt hefur verið að skapa mikla starfsspennu í deildinni
með því að gefa stuttan tíma fyrir verkefnin og láta nemendur
koma með verkefni (skissur o.fl.) á vissum degi, eflir að
verkefnið var gefið upp. Þar sem tíminn er svo stuttur
verða nemendur, oft að vinna langt fram á nétt, til þess
að ljúka við verkefnið, og dugar það oft ekki til.
Ef allir kennararnir hugsa eins, og reikna með einni viku
fyrir verkefnið sitt, þó þeir hafi ekki nema 1-2 daga x viku,
þá kemst nemandi ekki yfir verkefnin þó hann vinni myrkranna
á milli. Ef hann lýkur verkefninu ekki á réttum tíma, fær
harni skammir, haxm verður að ljúka við verkefnið í kvöldvinnu
eða á sunnudeginum, nýtt verkefni er gefið, sama hugsunin við
það, nemandi á f fullu fangi við að ljúka við þetta verkefni á
tilskyldum tíma, þó hann fari ekki að ljúka við hitt.