Eintak - 01.04.1969, Side 7
Engin sýning þar hefur verið stórlistaviðburður nema sýning
Alþýðusambandsins. Listamannaskálinn sálugi var eins og stór
hjartagóð mella, sem tók öllu opnum örmum, sem hægt var að hengja
á vegg ásamt bókamörkuðum, tombólum, dansleikjum og stjórnmála-
fundum. Vonandi verður nýji listamannaskálinn á Klambratúni ekki
fylltur gömlum niðursuðudósum og grjónapökkum fyrir tombólubrask.
Þá sjaldan að sýningar eru f Asmundarsal eru þær oftast góðar og
útiskulptursýningar við hann hafa verið athyglisverðar, þótt mikið
rusl flyti innan um. Kjallari Casa Nova er hálfgerður leikvangur
fristundamálara og misheppnaðra snillinga. Aftur á móti hafa allar
sýningar sem Listafélag Menntaskólans hefur efnt til þar verið
stórviðburður í menningarmálum þjóðarinnar. Fyrir nokkrum
dögum lét Listafélag Menntaskólans í Hamrahlíð til sín heyra með
rekaviðarsýningu þ.e.a. s. eyðilögðum rekavið. En fall er fararheill
og vonandi gera þeir betur næst. A sfðasta ári voru gerðar tvær
tilraunir til að koma hér upp sölugalleríum en báðar mistókust
vegna skilningsleysis almennings. Listafélagið StJM opnaði nýjan
sal við Vatnsstíg á þessu ári. Vonandi sýna menn þessari viðleitni
ungra manna áhuga svo hún kafni ekki í fæðingu. Verstur af öllum
sýningarsölum borgarinnar er Bogasalur Þjóðminjasafnsins. Hann er
hálfgert sæluhús fyrir fúskara og frístundamálara innan um Þjóð-
minjasafn landsins og Listasafn. Vafalftið telja margir sem þangað
koma, þó sérstaklega útlendingar, að hann sé einhverskonar útibú
frá Listasafninu en ég held að Listasafnið megi varla við því að fá
verra orð á sig en það hefur, sérstaklega þó þegar það á það ekki
skilið. Eflaust mætti bæta myndlistarsmekk þjóðarinnar eitthvað og
minnka bilið milli listamanna og almennings. Eg held að skipulögð
myndlistarfræðsla í skólum yrði happadrýgst. Teiknikennsla í barna-
skólum og gagnfræðaskólum er áreiðanlega ekki til að auka skilning
nemenda á myndlist, þó hún sé nauðsynleg út af fyrir sig, heldur
veitir hún þeim útrás tilfinninga, Skólar gera lítið sem ekkert til
að auka skilning á myndlist. Til þess að ná barnaskólaprófi þarf
að kunna marga metra af íslenzkum ljóðum utanbókar ( ekki veit ég,
hversu mikill greiði það er við ljóðlist ), en nöfn eins og Jón
Stefánsson, Kjarval og Gunnlaugur Scheving minnist ég ekki til að
hafa séð í skólabók. I mannkynssögu Ölafs Hanssonar, sem kennd