Eintak - 01.04.1969, Blaðsíða 13

Eintak - 01.04.1969, Blaðsíða 13
Svona gengur þaÖ. Það er allt í lagi að mynda spennu í einni deild, en það má ekki skemma starfsvilja nemenda með því, þeir geta hreinlega gefizt upp. (En það er ef til vill það sem þeir vilja.) Kennarar segja, "Ja, svona er það þegar þú ert kominn út f starfið þú verður að hugsa um verkefnin, ámeðan þú borðar, sefur, ert í strætisvagni, sinna nauðsynjum þínumáW. C. og ert að sinna hinum verkefnunum." Gott og vel, ef til vill er þetta rétta kennsluaðferðin, en ég er á öðru máli. Eitt er gleðilegt í sambandi við auglýsingadeildina, og það er að einhver tími skuli vera gefinn fyrir frjálsa teikningu, það var allt of seint sem farið var að hugsa til þess. Það þarf að vera inni á starfsskránni frá því skólinn hefst á haustin og fram á vor. Nú er hafin starfsemi í ljósmyndastofunni og eru nemendur á 4. ári í auglýsingadeildinni starfandi þar, hafa verið ljósmynd- aðar uppstillingar, ýmsar tilraunir gerðar o.fl. Þetta er stórt stökk fram á við, því ljósmyndun er náskyld auglýsingunum og nauðsynlegt fyrir verðandi auglýsingateiknara að kunna einhver skil á ljósmyndun. Kennslan er ekki komin f fastar horfur enn þá, en vonandi hefst hún af fullum krafti næsta haust. Mjög skemmtilegt verkefni hefur verið í vetur, en það eru ýmsar kannanir sem nemendur framkvæmdu á ýmsum sviðum t. d. hvaða áhrif bókakápur hefðu á fólk, hvort blaðaauglýsingar næðu sínu takmarki, og hvernig auglýsingum fólk tæki helzt eftir, umbúðakönnun, hvaða litir hefðu mest áhrif á fólk, á hinum og þessum umbúðum, hvort nokkuð væri tekið eftir firmamerkj- um o.fl. Komu margar skemmtilegar og fræðandi niðurstöður úr þessum könnunum. Að síðustu vona ég að gerð verði endurskoðun á deildinni. helzt fyrir n æsta haust, og kennslan verði vel skipu- lögð, tíminn verði hæfilegur fyrir hvert verkefni, kennarar sjá- ist oftar í stofunni, ef ske kynni að nemandi væri x vandræðum með eitthvert verkefni, og einnig að kennarar litu oftar í sinn eigin barm, og skelltu ekki allri skuld á nemendur ef eitthvað fer miður. Páll H. Guðmundsson.

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.