Eintak - 01.04.1969, Page 18
TIL þElRRA
SEM LÁTA SIG MÁLEFNI SKÖLANS EINHVERJU VARÐA:
Mér finnst aö inntökuskilyrði til náms viö Myndlista- og
handíðaskólann ættu að vera strangari.
Þegar ég sótti um nám hér veturinn '67 lagði ég fram
teikningar og önnur handverk samkvæmt því sem farið var
fram á þá.
I pistli eða handbók um skólann er sagt: hæfileikar eru
þó fyrir mestu. Ég hefði gaman að vita nánari skilgrein-
ingu á orðinu hæfileikar, eða hvort hæfileikar koma þessum
skóla nokkuð við.
Eg er málkunnugur mörgum úr misjöfnum deildum og margt
misjafnt heyrir maður og veit,
í F. I t. d. veit ég ekki til eins einasta nemanda sem gaf
upplýsingar um menntun, áhuga né sýndi eina einustu
teikningu. I ár voru í F. I rúmlega þrjátíu nemendur og
mér er sagt að aldrei í sögu skólans hafi jafn margir
nemendur verið f sama bekk. Það vita það allir, kennarar
skólastjóri og nemendur að þessi offjölgun stendur í vegi
fyrir því að skólinn geti þrifist á eðlilegum grundvelli.
Margir nemendanna eru unglingar vart af gelgjuskeiði
sem mörgum hverjum finnst það engu máli skipta hvort þeir
eru þarna til langframa eða eingöngu til skemmtunar yfir
veturinn.
Ég skil þá hlið málsins að skólinn sé fátækur og að margt
smátt gerir eitt stórt - hvað skólagjaldi viðkemur -.
En þar sem yfirskrift þessa skóla er listaskóli
(markmið andlegur kúltur), en ekki Samband sparsamra
smásála og áhugasamra iðnverkamanna findist mér að .gera
þyrfti róttæka breytingu á þessu máli, og öðrum málum hvað
rekstur skólans viðkemur án þess að deilt sé á sálir eða
æru neinnra áhrifamanna í skólastjórn, ef svo má að
orði kveða.