Eintak - 01.04.1969, Qupperneq 19
Mér finnst að það verði að leggja meiri áherzlu á
bóklegt nám, og að bók um einhverja listamenn, stefnur,
tfmabil eða annað því um líkt verði með hvers mánaðar
verkefni. Það gæti hjálpað kennurum við að dæma í málum
nemenda, og nemendum að skilja sín eigin sjónarmið.
Bók eins og "íslenzka þjóðfélagið" námsbók handa skólum
og almenningi eftir Pál Sigþór Pálsson eða "Félagsfræði
handa gagnfræðaskólum og unglingum" teldi ég nauðsynlega
og ætti að vera áreynslulaust að koma henni fyrir, með
listasögu eða íslenzkutfmum.
Agætur skólastjóri okkar, sagði nýlega í tilefni af komu
Sigurðar Nordals gests mánaðarins; að það væri tæpast
að maður vissi hvað það væri að vera íslendingur, fyrr
en maður hefði lesið bók hans, fSLENZK MENNING, það eru
eflaust orð að sönnu. Það getur engan sakað að vita
betur um sögu íslands og stjórnarfar,
Mér finnst að listasaga ætti að vera kennd tvisvar í viku,
með bókum um eitthvað náskylt eða fjarskylt efni.
Sömuleiðis þarf að leggja meiri áherzlu á RÉTTRITUN
með íslenzkunni,
Fyrirbæri eins og skrift á laugardögum í F. II finnst
mér tímaeyðsla og hégómi, fyrir þá sem ekki ætla f
auglýsingateiknun, það ætti að kenna hana þegar í
F.I eða á síðasta sérnámsári,
Einnig perspektif( ?) t, d. eftir hádegi á fyrsta mánuði
í F.I.
Þegar modelteikning er á kvöldin verður að koma í veg
fyrir að aðrir en viðkomandi bekkur eins og til að
mynda aðrar deildir, námskeið eða utanaðkomandi í
leyfi eða leyfisleysi taki ótsýni eða pláss ? -
því það er algjört helvíti þegar þrjátíu - fjörutíu
manns skríkjandi og þvaðrandi eða hvað annað, eru
saman komin í vistaveru þar sem í hæsta lagi fimmtán
manns ættu að vera, ÞETTA VERÐUR SKILYRÐISLAUST AÐ LAGA.
Það á að kenna olíulitun f F. II á síðasta mánuði með
vatnslituninni, - meðferð olíulita er aldrei of vel lærð.
Sigurður Eyþórsson.