Eintak - 01.04.1969, Qupperneq 21

Eintak - 01.04.1969, Qupperneq 21
svolítil fyrir verðandi teiknikennara. Hvað er það að vera svokallaður teiknikennari, hvað er : kennsla, uppeldi, agi, geta, vilji, dugnaður, hugmyndir, það að ala börnin upp í sínum anda til að vænta megi árangurs. Kröfur um aðstöðu teiknikennara teiknistofu, hillur, veggpláss, vask, trönur, bretti, liti, og fleira, efni og frið. Núna standa yfir ýmsar breytingar á skólakerfinu. Við verðum að standa saman í kröfum okkar, stefna að því, að útbúnaður teiknistofunnar verði sem beztur. Ekki lengur þessa dejrfð, þetta fæst ekki nema því sé haldið til streitu og fylgt fast eftir. Smátt og smátt ætti að þokast f áttina. Peningaleysi skólanna er að vísu mikið, en pappfrskaup eru sums staðar látin sitja á hakanum, hvað þá annað, sem nauðsynlegt er til að hægt sé að kenna þetta fag innan skólans. Ég er hrædd um að margir skólastjórar hafi lítið hugsað út í það, hvers teikn- ingin krefst. Þþ ekki væri nema það að helmingur bekkjarins sæti í tímanum f einu. Vegna fjárskorts er ekki hægt að hafa tvo teiknikennara. Börnin yrðu því aðeins hálfan veturinn í teikningu, þó má fullyrða að árangur hvers barns yrði ekki minni en annars og í allflestum tilfellum mun meiri. Það að koma inn f bekk, sem telur 34 nemendur, og finnast maður hafi þar ekkert að gera því þetta sé starf fóstru, er andstyggð. Aftur á móti getur verið mjög ánægjulegt að kenna ef hópurinn er ekki stærri en það, að hægt sé fyrir einn að ráða vel við hann og sinna honum eins vel og þau raunverulega eiga rétt á. Til þess er teiknikennslan, að árangur náist og börnin verði einhvers vísari. Væru þau helmingi færri í bekk, það er að segja 17 í fjölmennustu bekkjum, (og er það þó hámark, til að hægt sé að tala við hvern og einn) þá yrði áhugi þeirra meiri á viðfangsefninu, plássið meira, friðurinn meiri. Þá væri lfka hægt að fræða þau um hluti, sem þýðingar- laust væri að nefna í 34 manna bekk. Þau hljóta að fá meiri menntun. Það er stórt atriði að börnunum leiðist ekki í tím- unum, Ef maður á að vinna verk, sem manni leiðist heil ósköp og hefur auk þess nauman skilning á, þá er ekki hægt að búast við fyrsta flokks árangri. Þegar börnin vilja ekki frí, þegar þeim er gefið það, þá finna þau sig að einhverju leyti í teikn- ingunni. Af þeim mætti búast við árangri. Eitt af mörgu, sem þarf að ræða er, er ekki kominn tími til að veita þeim tilsögn með fleiri efni en pappír og liti? Af hverju ekki leir, gips, dúkskurð og helzt allar tegundir svart- listar, málma, útskurð og fleira. Þá er komið að orðinu teikni- kennari, því nafni þarf að breyta í samræmi við það, sem kennt er, Þið, sem eruð að verða teiknikennarar, hugsið um það að við verðum að brjótast áfram. Katrín Briem.

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/355

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.