Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 10
17. október 2009 LAUGARDAGUR
Ráðstefna um foreldra
orlof
– umönnunarstefnu o
g stöðu kynjanna
á Norðurlöndum
Hótel Sögu, Reykjavík
, 22. október 2009.
Kunnir norrænir fræði
menn gera grein fyrir
rannsóknum sínum
og skýra frá stefnumö
rkun stjórnvalda. Aða
lfyrirlesari er
Dr. Janet Gornick, pró
fessor í stjórnmála – o
g félagsfræði við
City University í New Y
ork.
Á ráðstefnunni verður
kynnt samanburðarra
nnsókn á
fæðingar- og foreldrao
rlofi á Norðurlöndunu
m. Í rannsókninni
er m.a. leitað svara vi
ð því hvernig orlofsré
ttur er nýttur og
áhrif þess á heilsu, sa
mband foreldra og ba
rna og stöðu kynja
á vinnumarkaði.
Ráðstefnan er endurg
jaldslaus og kjörinn v
ettvangur fyrir
skólafólk, foreldra, fræ
ðimenn, stjórnmálam
enn og alla þá
sem vilja fræðast um
umönnunarstefnu og
stöðu kynjanna
á Norðurlöndunum.
Ráðstefnan fer fram á
ensku og er öllum op
in.
Skráning og dagskrá
á http://formennska2
009.jafnretti.is
AR
G
H
1
0/
20
09
Hvað er
best fyrir börnin?
Félags- og
tryggingamálaráðuneytðNordisk Ministerråd
Faxafeni 12 (2. hæð), 108 Reykjavík
LAGERSALA
2 dagar eftir
K
ra
kk
a
úl
pu
r
3.
00
0
kr
.
Fu
llo
rð
in
s
flí
s
4.
00
0
- 5
.5
00
k
r.
Ú
ti
ga
lla
r
7.
00
0
kr
.
Fu
llo
rð
in
s
bu
xu
r
2.
00
0
kr
.
H
úf
ur
50
0
- 1
.0
00
k
r.
K
ra
kk
a
flí
s
1.
00
0
- 3
.0
00
k
r.
K
ra
kk
a
bu
xu
r
50
0
kr
.
LAGERSALA
Opnunartímar
Lau (17.10.): 11-16
Sun (18.10.): 12-16
SIMBABVE, AP Morgan Tsvangirai,
forsætisráðherra Simbabve, ætlar
ekki að taka þátt í ríkisstjórnarsam-
starfi með Robert Mugabe forseta
meðan Roy Bennett, einn helsti ráð-
gjafi hans, sætir ofsóknum.
„Við erum ekki að yfirgefa stjórn-
ina í reynd,“ segir Tsvangirai, en
segir að hvorki hann né aðrir ráð-
herrar úr flokki hans, Lýðræðis-
hreyfingunni, muni sækja ríkis-
stjórnarfundi eða taka þátt í öðru
stjórnarsamstarfi með ZANU-PF,
flokki Mugabe.
Bennett hefur verið ákærður
fyrir að hafa tekið þátt í tilraun-
um Lýðræðishreyfingarinnar til að
steypa Robert Mugabe af stóli með
valdi eftir forsetakosningarnar á
síðasta ári.
Tsvangirai lítur á þetta sem
hreinar ofsóknir, enda hafi ásakan-
ir á hendur þeim um að hafa ætlað
að steypa Mugabe af stóli með valdi
löngu verið afsannaðar.
„Það er ekki verið að sækja Ben-
nett til saka, það er verið að ofsækja
hann,“ segir Tsvangirai. Bæði Evr-
ópusambandið og Bandaríkin hafa
lýst áhyggjum af fangelsun Ben-
netts, og sagt hana merki um valda-
misnotkun og vanburða réttarríki.
Viðbrögð Tsvangirais nú þykja
staðfesta langvarandi óánægju hans
í stjórnarsamstarfinu með ZANU-
PF. Á hinn bóginn hefur hann hvað
eftir annað sagt að stjórnarsam-
starfið með Mugabe sé eina leiðin
til að tryggja framtíð landsins, og
staðfestir þá afstöðu sína með því að
vilja ekki segja sig alfarið úr stjórn-
inni.
Tsvangirai og Mugabe mynduðu
samsteypustjórn í febrúar eftir
harðar deilur út af forsetakosning-
um, sem þeir báðir sögðust hafa
sigrað í. Niðurstaðan varð sú að
Tsvangirai yrði forsætisráðherra
en Mugabe áfram forseti.
Réttarhöld yfir Bennett eiga að
hefjast á mánudag. Tsvangirai hafði
valið Bennett til að vera aðstoðar-
landbúnaðarráðherra í ríkisstjórn
sinni, en daginn sem stjórnin átti að
taka við völdum var Bennett hand-
tekinn. Hann var þó fljótlega látinn
laus úr fangelsi gegn tryggingu, en
var hnepptur á ný í fangelsi nú í vik-
unni.
gudsteinn@frettabladid.is
Dregur sig út
úr stjórninni
Stjórnarsamstarf Tsvangirai og Mugabe er í upp-
námi. Tsvangirai forsætisráðherra ætlar ekki að
taka þátt í stjórninni fyrr en lausn finnst á deilu.
MORGAN TSVANGIRAI Segir réttarhöld á hendur samstarfsmanni sínum ekkert annað
en ofsóknir. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Níels S. Olgeirsson, formaður Matvæla- og
veitingafélags Íslands, baðst á fimmtudag afsökunar á
ummælum sínum um veitingarekstur á Reykjanesi.
Níels hafði í blaði Matvæla- og veitingafélagsins
í grein um siðferði í atvinnurekstri sagt að svo virt-
ist sem engin lög giltu á Reykjanesi. Níels viðhafði
síðan svipuð ummæli um veitingamenn á Reykjanesi í
Fréttablaðinu á þriðjudag og miðvikudag.
Á fimmtudag átti Níels fund með veitingamönnum
á Reykjanesi. „Menn töluðu hreinskilnislega saman.
Þetta hefur verið eins og hvert annað slys því það nær
ekki nokkurri átt að segja að það sé leitun að heiðar-
legum fyrirtækjum á Reykjanesi – það er alveg galið,“
segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar.
Erna segir veitingmenn búast við yfirlýsingu frá
Matvís eftir þennan fund. „Ég á að von á því að það
muni heyrast eitthvað frá Matvís í kjölfarið því það
kom fram á fundinum að Matvís heldur því langt í frá
fram að obbinn af fyrirtækjum á Reykjanesi sé ekki
heiðarlegur,“ segir hún. Níels kvaðst í gær vera að
vinna að því að senda eitthvað frá sér um málið en að
það væri ekki tilbúið. - gar
Formaður Matvís dró í land ummæli um svarta atvinnustarfsemi á Reykjanesi:
Bað veitingamenn afsökunar
MATVÍS Formaður
Matvæla- og veit-
ingafélags Íslands
skrifaði grein um
siðferði í atvinnulíf-
inu í blað félagsins.
ÁSTRALÍA, AP Lögreglan í Ástral-
íu segir það ganga kraftaverki
næst að sex mánaða barn hafi
sloppið að mestu ómeitt þegar
það varð fyrir járnbrautarlest í
bænum Ashburton.
Barnið var í barnavagni sem
rann út á lestarteinana þegar
móðirin leit af því stundarkorn.
Barnavagninn barst með lest-
inni 40 metra vegalengd áður en
lestin stöðvaðist. Atvikið má sjá
á myndbandi sem barst víða um
netið í gær.
- gb
Barnavagn fyrir lest:
Barnið slapp að
mestu ómeitt
Kannabis í miðborginni
Áttatíu grömm af marijúana fundust
við húsleit í miðborginni í fyrrakvöld.
Var efnið ætlað til sölu. Þrír karlmenn
á þrítugsaldri voru handteknir í þágu
rannsóknarinnar.
LÖGREGLUFRÉTTIR