Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 41
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
VINJETTUHÁTÍÐ verður haldin í Hafnarfirði í dag. Miðstöð
símenntunnar í samvinnu við Skólaskrifstofu og Tónkvísl standa fyrir
hátíðinni sem fram fer í Tónkvísl, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar við
Skólabraut frá 14 til 16. Meðal upplesara eru Ármann Reynisson og
Sr. Gunnþór Ingason.
„Ég hef lengi reynt að kynna
ýmiss konar atriði úr vísind-
um fyrir almenningi enda hefur
mér stundum sviðið hvað vís-
indin hafa einkennilega mynd í
augum margra. Við erum taldir
hálf skrítnir sem stundum þessi
fræði,“ segir Ari Ólafsson til-
raunaeðlisfræðingur við Háskóla
Íslands. Hann stendur fyrir
skemmtilegri uppákomu á sunnu-
daginn í tengslum við sýninguna
Blik á Kjarvalsstöðum. Þar mun
hann leiða listsmiðju um ljósfræði
og pendúla. „Þar sýni ég rólu sem
skráir niður hreyfingarmynst-
ur sitt, eða teiknar með öðrum
orðum. Þetta hef ég sýnt á nokkr-
um stöðum og meðal annars farið
með til útlanda og það vekur alltaf
mikla lukku,“ segir Ari og tekur
fram að sérstaklega verði börnin
heilluð að sjá að svona kunnugleg-
ur hlutur eins og róla geti þetta.
„Myndunum er hægt að breyta
með því að stilla róluna á mismun-
andi hátt og úr verða hin mestu
listaverk,“ útskýrir Ari. Hann
verður einnig með annað skylt
fyrirbæri sem er tvíbrot í lím-
bandi. „Með því að nota skautun-
arsíur get ég framkallað heil mikla
litadýrð í límbandi,“ upplýsir Ari.
„Þetta er sennilega eiginleiki sem
framleiðandinn veit ekkert af en
er mjög skemmtilegur,“ bætir
hann glettinn við.
Listasmiðjan á Kjarvalsstöð-
um hefst klukkan 14 og stendur
fram eftir degi. Þangað geta allir
áhugasamir komið og fylgst með
listrænu rólunni teikna mynd-
ir og uppgötvað leyndardóma
límbandsins. „Fólk getur einnig
verið með puttana í þessu sjálft
og teiknað sína eigin mynd með
rólunni,“ segir Ari. Hann hefur
sjálfur heillast af myndum ról-
unnar og hefur hengt slíka mynd
upp á vegg hjá sér.
Fyrir utan listsmiðjuna geta
gestir Kjarvalsstaða einnig skoð-
að sýninguna Blik. Þar eru sýnd
verk eftir kunna, íslenska lista-
menn sem beita sjónhverfingum
og blekkingum í verkum sínum.
solveig@frettabladid.is
Listræn róla og leyndar-
dómar límbandsins
Ari Ólafsson tilraunaeðlisfræðingur leiðir listsmiðju um ljósfræði og pendúla á sunnudaginn í tengslum
við sýninguna Blik á Kjarvalsstöðum. Hann lofar góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Róla er í raun tveggja tóna pendúll sem býr yfir skemmtilegu hreyfimynstri. Ef penni er festur við hana kemur í ljós að hægt er að
myndgera þessa hreyfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Meirapróf
Upplýsingar og innritun
í síma 5670300