Fréttablaðið - 17.10.2009, Qupperneq 46
17. október 2009 LAUGARDAGUR6
sími: 511 1144
51 starfsmaður óskast!
með ánægju
Framundan eru miklar annir hjá Iceland Express og
því viljum við ráða skemmtilegt og samviskusamt
fólk í störf flugliða.
Hæfniskröfur flugliða:
• Viðkomandi þarf að vera 22 ára eða eldri
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Þarf að tala ensku reiprennandi
• Annað Norðurlandamál
• Kunnátta í þriðja tungumáli
• Rík þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum
Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að vinna í líflegu
og fjölbreyttu starfsumhverfi til að sækja um.
Iceland Express auglýsir eftir svæðisstjóra í Banda-
ríkjunum. Svæðisstjóra er ætlað að sjá um markaðs-
og sölumál félagsins í Bandaríkjunum og halda utan
um samskipti og þjónustu við söluaðila Iceland Express
þar. Svæðisstjóri þarf einnig að fylgjast vel með nýjum
sölutækifærum og bregðast við þeim.
Umsækjendur þurfa að búa í Bandaríkjunum eða vera
tilbúnir að flytja þangað.
Svæðisstjóri vinnur náið með tekjustýringu og
markaðsdeild Iceland Express á Íslandi.
Hæfniskröfur svæðisstjóra:
• Þarf að tala ensku reiprennandi
• Háskólamenntun, helst í viðskiptum eða ferðamálum
• Góð þekking á íslenskri ferðaþjónustu
• Reynsla af vinnu á Bandaríkjamarkaði
• Mikil þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
FlugliðarSvæðisstjóri í Bandaríkjunum
Umsóknarfrestur rennur út 22. október nk.
Umsóknir sendist í tölvupósti á
job@icelandexpress.is. Nánari upplýsingar er
að finna á www.icelandexpress.is/jobs
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
0
9
4
5
GERÐASKÓLI
Kennara vantar til starfa. Um er að ræða umsjónarkennslu í 3. bekk.
Upplýsingar veita skólastjórnendur í síma 422-7020. Umsóknarfrestur
er til 24. október n.k.
Skólastjóri
Gerðaskóli, Garðbraut 90, 250 Garði, www.gerdaskoli.is, gerdaskoli@gerdaskoli.is
Hjúkrunarforstjóri óskast
Vilt þú vera þátttakandi í spennandi uppbyggingu á
þjónustu á Öldrunarheimilum Akureyrar ?
Would you like to work for the town of Akureyri?
Visit our webpage: www.akureyri.is/english
Öldrunarheimili Akureyrar (ÖA) óska eftir að ráða hjúkrunarforstjóra. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á
áframhaldandi starfi . Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst.
Öldrunarheimili Akureyrar reka hjúkrunarheimilið Hlíð, heimili aldraðra í Kjarnalundi og sambýli aldraðra Bakkahlíð. Dagvist er auk þess starf-
rækt í Hlíð. Fjöldi starfsmanna er rúmlega 300 í um 200 stöðugildum. Á heimilunum fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi sem er stöðugt
í þróun. Unnið er að innleiðingu nýrrar hugmyndafræði á heimilunum, Eden hugmyndafræði, með áherslu á sjálfræði, aukinn heimilisbrag og
lífsgæði íbúanna.
Helstu verkefni eru:
• Fagleg, stjórnunarleg og rekstrarleg ábyrgð á
hjúkrunarþjónustu ÖA.
• Innleiðing á Eden hugmyndafræðinni.
• Ber ábyrgð á gæðastarfi og hefur umsjón með
gæðahandbók heimilanna.
• Hefur frumkvæði að þróunarverkefnum á hjúkrunarsviði
og tekur ásamt öðrum stjórnendum þátt í stefnumótunar-
verkefnum.
• Ber ábyrgð á fræðslu til starfsmanna og stýrir fræðslunefnd.
Menntunar- og/eða hæfniskröfur:
• Hjúkrunarfræðingur, framhaldsnám æskilegt á heilbrigðis-
eða félagssviði.
• Fagleg færni og víðtæk reynsla í öldrunarhjúkrun ásamt
reynslu af stjórnunarstörfum er nauðsynleg.
• Hæfni til stjórnunar, nýsköpunar og innleiðslu nýrra
hugmynda og vinnubragða.
• Hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum ásamt frumkvæði,
jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Þarf að vera metnaðarfullur leiðtogi með framtíðarsýn.
Tekið verður tillit til samþykktar bæjarstjórnar Akureyrar um jafnréttismál við ráðningu í starfi ð.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Upplýsingar um kaup og kjör veitir Starfsmannaþjónusta Akureyrarbæjar í síma 460-1060.
Nánari upplýsingar um starfi ð veita Helga Tryggvadóttir hjúkrunarforstjóri, helgat@akureyri.is og Brit J. Bieltvedt framkvæmdastjóri,
brit@akureyri.is, í Hlíð Austurbyggð 17, 600 Akureyri eða í síma 460-9100.
Einungis er tekið á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu Akureyrarbæjar: www.akureyri.is
Umsóknarfrestur er til 31. október 2009