Fréttablaðið - 17.10.2009, Síða 74
17. október 2009 LAUGARDAGUR
Eyþór Árnason hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar 2009. Aðrir sem áttu handrit í keppninni eru
beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs
Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir 15. janúar 2010. Einnig er
unnt að fá handrit send í póstkröfu. Gefa þarf upp dulnefni.
Aðeins var opnað umslag með nafni vinningshafa.
Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar,
Ingólfsnausti - Vesturgötu 1,
101 Reykjavík,
menning@reykjavik.is
Bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 17. október 2009
➜ Tónleikar
16.00 Söngkonan Liv Skrudland og
sellóleikarinn Karin Nielsen flytja norsk
og íslensk lög á tónleikum í Gljúfrastein,
húsi skáldsins í Mosfellsdal.
20.30 Skúli Sverris-
son bassaleikari verður
með tónleika í Þjóð-
menningarhúsinu við
Hverfisgötu 15.
22.00 Hvanndals-
bræður verða á Kaffi
Rósenberg við Klapp-
arstíg.
➜ Opnanir
15.00 Í Galleríi Fold við Rauðarárstíg
12-14 opna tvær sýningar.
Hús: Heimili: Ljósmyndasýning Lilju
Krisjánsdóttir og Ingunnar Jónsdóttur.
Hafmeyjan: sýning á verkum Nínu
Sæmundsson. Opið mán.-fös. kl. 10-18,
lau. kl. 11-16 og sun. kl. 14-16.
16.00 Valgarður Gunnarsson opnar
sýningu í Studio Stafni við Ingólfsstræti
6. Opið alla daga nema mánudaga kl.
14-17.
17.00 Gjörningaklúbburinn opnar
sýninguna „Svartir svanir“ í Kling &
Bang galleríi við Hverfisgötu 42. Opið
fim.-sun. kl. 14-18.
15.00 Tíu listamenn opna sýninguna
„Fokhelt“ í tveimur samliggjandi fok-
heldum raðhúsum að Breiðakri 17-19
í Garðabæ. Opið sun. kl. 12-16. Nánari
upplýsingar á www.this.is/fokhelt.
➜ Dansleikir
Papar verða með dansleik í félagsheim-
ilinu Miðgarði í Skagafirði. Sérstakur
gestur verður Gylfi Ægisson.
Von og Sigga Beinteins verða á
Skemmtistaðnum Spot við Bæjarlind í
Kópavogi.
➜ Sýningar
Danski myndlistarmaðurinn John Krogh
hefur dvalið á Gullkistunni að Bjarkar-
braut 6 á Laugarvatni. Hann verður með
opna vinnustofu þar í dag kl. 14-16. Allir
velkomnir.
➜ Markaðir
Íbúasamtökin Betra Breiðholt standa
fyrir markaði í göngugötunni í verslunar-
kjarnanum Mjóddinni, milli kl. 11 og
14 í dag.
Íslenskir fatahönnuðir selja vörur sínar
í Veltusundi 1 (í kjallaranum fyrir neðan
Einar Ben). Opið lau. og sun. kl 11-21.
Aðeins þessa helgi.
➜ Kvikmyndir
16.00 Kvikmyndasafnið sýnir kvik-
mynd leikstjórans Frank Beyer „Spur der
Steine“ (1966), í Bæjarbíói við Strand-
götu í Hafnarfirði. Nánari upplýsingar á
www.kvikmyndasafn.is.
➜ Dagskrá
14.00 Vinjettuhátíð, dagskrá með
upplestri og tónlist, verður haldin í saln-
um Tónkvísl við hliðina á gamla Lækjar-
skóla í Hafnarfirði. Meðal þeirra sem
fram koma eru Ármann Reynisson,
Ingibjörg Einarsdóttir, sigurvegarar úr
„Stóru upplestrarkeppninni“, Hjörleif-
ur Valsson og Þórður Marteinsson.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.
➜ Leikrit
15.00 Svanlaug Jóhannsdóttir flytur
einsöng-leikinn „Hvað er bak við ystu
sjónarrönd...“ í Þjóðmenningarhúsinu
við Hverfisgötu 15. Flutningur fer fram
á ensku. Nánari upplýsingar á www.
thjodmenning.is.
➜ Listamannaspjall
14.00 listakonurnar Julia Staples og
Lana Vogestad taka á móti gestum
og leiða um sýningu sýna „No Man‘s
Land“ í Lost Horse Gallery við Vitastíg
9a. Tónlistaratriði verða í tengslum við
Airwaves-hátíðina og boðið upp á ís.
Sunnudagur 18. október 2009
➜ Tónleikar
17.00 Erla Björg Káradóttir sópran og
Jón Ólafur Sigurðsson organisti halda
tónleika í Hjallakirkju við Álfaheiði í
Kópavogi. Á efnisskránni verða verk eftir
J.S. Bach, D. Buxtehude, F. Mendelssohn
og J. Clarke. Aðgangur er ókeypis.
➜ Heimildarmyndir
13.30 Sérstök styrktarsýning verður í
Háksólabíói við Hagatorg á heimildar-
mynd Birtu Fróðadóttur „Rajeev Revis-
ited“. Aðgangseyrir mun renna óskiptur
til Hjálparstarfs kirkjunnar.
➜ Sýningar
Brúðkaupssýning verður
haldin í Lionssalnum
Lundi að Auðbrekku
25-27 kl. 13-17. Nánari
upplýsingar á www.
salur.is.
➜ Dansleikir
Danleikur Félags eldri borgara í Reykja-
vík og nágrenni verður haldinn að
Stangarhyl 4 kl. 20-23.30. Borgartríó
leikur fyrir dansi.
➜ Dagskrá
14.00 Í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi (Gerðubergi 3-5) verður flutt
dagskrá í tilefni af opnun sýningar um
skáldkonuna Höllu Eyjólfsdóttur.
➜ Leiðsögn
15.00 Ólöf K. Sigurðardóttir verður
með leiðsögn um sýninguna „Lífróður
- föðurland vort hálft er hafið“ sem nú
stendur yfir í Hafnarborg við Strandgötu
í Hafnarfirði.
15.00 Goddur verður með leiðsögn
um sýninguna „Aftur heim til Írlands“
sem nú stendur yfir í Gerðarsafni við
Hamraborg í Kópavogi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Hinn 10. þessa mánaðar var opnuð
sýning á verkum tveggja myndlistar-
manna í sal Íslenskrar grafíkur í
Hafnarhúsinu – Miðbakkamegin.
Þeir koma báðir að austan í tvenn-
um skilningi. Richard Valtingojer
er fæddur í Bolzano undir Brenner-
skarði 1935. Hann stundaði nám í
Graz og Vín og á áttunda áratugnum
hjá Paul Weber í Þýskalandi. Hann
hefur haldið einkasýningar víða
um lönd en hefur um árabil verið
búsettur á Stöðvarfirði. Hann sýnir
nú grafíkverk sem mörg sækja efni
sitt á ströndina.
Zdenek Patak er fæddur í Prag
1979. Hann er menntaður grafísk-
ur hönnuður í Prag og Reykjavík,
en hann fluttist hingað til lands
2007. Hann býr líka á Stöðvarfirði
og sýnir hér stórar teikningar sem
endurspegla návist stórra fjalla
þar austur frá sem hann segir hafa
gotn eskt yfirbragð.
Sýning þeirra félaga verður opin
frá fimmtudegi til sunnudags í sal
Íslenskrar grafíkur til 1. nóvem-
ber.
Austmenn í Íslenskri grafík
MYNDLIST Teikning eftir Zdenek Patak úr
röð hans Steinn og fjall.
MYND/ÍSLENSK GRAFÍK-ZEDENEK PATAK
MYNDLIST Ríkharður Valtingojer við
vinnu sína en hann hefur haft ómæld
áhrif á þróun íslenskrar grafíklistar með
kennslu sinni. MYND/ÍSLENSK GRAFÍK