Ljósberinn


Ljósberinn - 17.05.1924, Page 2

Ljósberinn - 17.05.1924, Page 2
154 LJÓSBERINN Og hann blessar það heimili með allskonar bless- un og gæðum andans. Hann er þar fyrst stöðugur gestur, síðan fastur heimilisvinur. Hann er þar á hverjum degi; á björtum sólskinsdögum, og er þar sumarsól og sæla. Hann er þar á dimmum skýjadög- um og er þar friðarboginn á sorgarskýjunum. — Guði sje lof fyrir hvert heimili, þar sem Jesús hefir feng- ið inngöngu, sá dýrðarinnar konungur og Drottinn. Jeg sje hann í anda hinn elskaða hirði. Hann stend- ur við dyrnar og knýr á. Hann langar til að komast inn í mannshjartað, svo að hann megi vera þar. Stund- um er svo órólegt inni fyrir, að sálin heyrir ekki að barið er að dyrum. En sælt er það hjarta, sem heyrir og lýkur upp hliðum hjartans að sá dýrðarinnar kon- ungur megi ganga inn. Sælast þegar það ber við snemma á morgni æskunnar með allan framtíðardag- inn fyrir sjer. par kemur hann inn sem upp er lokið fyrir honum, og fyllir hjartað með sólskini náðarinn- ar og hinnar himnesku gleði. Hann reisir þar hásæti sitt inni og heldur þar kvöldmáltíð sína og verður þar fastur heimilisvinur í sorg og gleði og þrautum og þægindum. Hann gefur því hjarta hækkandi sumar- sól og sælan Guðsbarna frið. Guði sje lof fyrir hvert hjarta, þar sem Jesús hefir fengið inngöngu, sá dýrð- arinnar konungur og Drottinn. Hann stóð við hjartadyr þess unga vinar, sem vjet erum nú að kveðja, snemma í bernsku hans, og hann fjekk þar greiða aðgöngu, því barnshjartað opnast svo auðveldlega, þegar andrúmsloit heimilisins er þrungið af návist Jesú. Og hann gjörði sitt undirbún- ingsverk. í barnshjartanu. Og smásveinninn óx og

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.