Ljósberinn - 17.05.1924, Síða 10
162
LJÓSBERINN
taka upp starfsemi hans? Og óskin — þráin reis í
hjarta mínu og varð að bæn: Guð á himnum gefðu
landinu okkar marga unga menn, honum líka. Unga
drengi, sem brenna af löngun eftir að starfa fyrir
Jesúm Krist. Unga menn, sem fylkja liði undir kross-
merki Jesú Krists.----Og sólin signdi heitum geisl-
um lága gröfina, sem minnir á ötula starfsmanninn
unga, — en hugurinn leitar heim, og endurómar sig-
ursöng trúaðra:
Guði séu þakkir, sem oss hefir sigurinn gefið fyrir
Drottinn vorn og frelsara Jesúm Krist.
Guðrún Lárusdóttir.
----o----
Vatnaskógsför
K. F. U. M. 3.-9. ágúst 1923.
K. F. U. M. fékk leyfi hjá hinu háa stjórnarráði Is-
lands til að velja sér dálítinn blett uppi í Vatnaskógi,
þar sem það gæti haft sumarbústað fyrir drengi. Og
var þá valinn staður sá, sem þið sjáið hér á mynd-
inni, lítið, skóglaust rjóður, skamt frá Eyrarvatni.
En af því ekki var hægt að ráðast í að byggja, var
ákveðið, að nokkrir drengir færu og lægju í tjöldum.
Og ætla eg nú að segja lesendum Ljósberans frá
þeirri ferð.
Við lögðum 19 á stað frá húsi K. F. U. M. kl. rúml.
9 á föstudagsmorguninn 3. ágúst. það var indælis
veður, glaða sólskin.
Fórum við í bíl rétt upp að þverárkoti. Er við kom-