Ljósberinn - 01.04.1942, Síða 18
62
L,) 0 S B E R I N N
Kemur út einu sinni í mánuði, 20 síður,
og auk þess jólablað, sem sent verð- j
ur skuldlausum kaupendum.
Argangurinn kostar 5 krónur. Gjalddagi j
ei 15. apríl.
Sölulaun eru 15% af 5 14 eint. og 20'/,
af 15 eint. og þar yfir.
Afgreiðsla.: Bergstaðastræti 27, Heykjavík.
Sími 4200.
(Jtanáskrift: Lj ósb e r i ij.n, Pósthólf 304/ i
Reykjavík.
Prentsiniðja Jóns I'elgasonar Bergst.str. 27. j
Líttu upp
»Himnarnir segja, frá dýrð Guðs
og festingin kunngerir verkin hanr
handa«, Sálm. 19, 1.
Hefir þú heyrt það? »Blöðin segja frá
— nýjustu símskeyti segja frá — menr
segja«. Hversu eru þeir ekki margir, seni
fylla hjörtu sín þess konar frásöguin. En
allar slíkar frásagnir, kveikja aðeins glóð
í hjartanu sem sýkir það, en færir því
engan frið; en nú er það einmitt frið-
ur, sem hjartað þarfnast öllu öðru frem-
ur — friður Guðs.
f>að er það, sem h i m n a r n i r s e g j a,
sem gefur hjartanu f r i ð, dýpsta friðinn,
friðinn við Guð. En viljir þú heyra, hverju
himnarnir segja frá, þá verður þú að ganga
út undir þá, hefja augu þín upp til
þeirra og hlusta grandgæfilega, því að
þeir hafa ekki allt af svo hátt.
Og ef þú svo reynir að fylgja sólinni
á göngu henriar yfir himinhvelfinguna,
þá heyrir þú söguna um það, sem gerðist
á fjórða degi sköpunarinnar um hinn
mikla mátt og speki Guðs og ástarum-
hýggju hans fyrir öllu því, sem lifir, og
andi Guðs mun segja þér frá Jesú, sem
er ljós þessa heims, kominn, eins og sólin,
til að skína inn í hið myrka, synduga
hjarta mannsins, til að bræða þar ísa vam
trúarinnar.
En reyndu líka að festa augun á hin-
um »1 é 11 f æ r u s k ý j u m«. Skýjafarið
segir þér líka frá, að andi Guðs sé líka
kominn til jarðarinnar til að knýja synd-
ara til Jesú, inn á höfn hjálpræðisins, »því
að allir þeir, sem eru knúðir af anda Guðs,
eru börn Guðs« (Róm. 8, 14).
Ert þú knúður af anda Guðs, eins og
við? spyrja skýin.
Eða gakk þú út um nótt, ef þú ert
ósvefnugur, og hyggðu að þéttstirndum,
heiðum himninum, sem tindrar allur og
ljómar af s t j ö r n u n u m —. þá getur
ekki hjá því farið að hjarta þitt fyllist
af friði Guðs; þá verður þú svo lítill í
sjálfum þér, en þá verður Guð svo rnilc-
ill. Þá skilur þú, hvað Davíð átti við, þég-
ar hann orti þetta vers:
»Himnarnir segja frá dýrð Guðs
og festingin kunngerir verkin h,ans handa«. -
Gjafir og áheit:
AHEIT: N. N. kr. 25,00; A. M. G. kr, 5.00; frá
konu kr. 10.00; Sesselja Jónsdóttir- kr. 10.00.
GJAPIR: G. E. Akurholti kr. 5.00; frá iesanda
Ljósberans kr. 5.00; A. H. Eskifirði kr. 25.00.
TIL KKISTNIBOÐS: Gjö,f frá lesanda Ljósberans
kr. 5.00.
Ljósberinn þakkar innilega áheitin og gjafirn-
ar. — Guð elskar glaðan gjafara. (II. Kor. 9, 7h).
Leiðrétting:
1 útskýringu við felumyndina í slðasta tbi.
hefir slæðst prentvilla. Þar stendur, að finna
eigi 4 faldar persónur, en á að vera 5.
Munið að gjalddagi blaðsins er 15. apríl.
, prentsmiðja
JONS HELGASONAR
BERGST.27. SÍMI4200