Ljósberinn - 01.05.1945, Blaðsíða 5

Ljósberinn - 01.05.1945, Blaðsíða 5
Suðurgata í Rcykjavík, um miSja 19. öld. Lengst til hœgri er húsiS nr. 2, Dillonshús. Þar var Jónas Hall- grímsson síðast búsettur hcr á landi. — Það hús stendur enn, svo sem kfinnugt er. áfram, að landið hennar sé fagurt, og hún eigi vor í vændum, ef hún treysti guSi og sjálfri sér. Nú á dögum kynnu slík orS að þykja lielzt til hógvær og lítt áberandi greinargerð fyrir jafn stórfelld- um þjóðfélagsumbótum og þeim var ætl- að að glæða; en þó er vafasamt, að nokk- ur orð, sem mælt voru á íslenzka tungu, hafi haft meiri áhrif. Fólkið fann, að hann mælti á þess eigin máli, tilfinning- ar þess voru lians tilfinningar; í raun og veru vissi það áður allt, sem hann sagði. En samt var eitthvað nýtt í ljóðum hans, ný fegurð, nýr sannleikur, ný speki, — eitthvað sem var náskylt guði og krafta- verkunum. Fólkið trúði IjóÖum skálds- ins betur en sínum eigin orðum. Það hafði heyrt rödd þjóðarinnar, rödd lands- ins, rödd íslenzkrar náttúru, hinn eilífa söng, sem yljar á þorranum og fyllir loft- ið klaka og snjó. Og hjörtu fólksins hófu nýtt landnám í sínu eigin landi. — Við hvert kvæði, sem birtist eftir Jón- as Hallgrímsson, fann þjóðin betur og betur, að hún átti gott land og fagra tungu. Hinn snauði og þjakaði bóndi fann, að liann var frjálsborinn maður. Hann varð upplitsdjarfari. Almenning- ur krafðist réttar síns. Þeir, sem áður höfðu setið hljóðir, liófu raust sína. — Og þá var alþingi endurreist. ★ Jónas Hallgrímsson vissi, að líðandi stund var tengiliður fortíðar og þess, sem 65

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.