Ljósberinn - 01.05.1945, Blaðsíða 9

Ljósberinn - 01.05.1945, Blaðsíða 9
við og höldum. aftur heimleiðis niður fjallið. „Já“, sagði Vantrausti, „rétt fyrir framan okkur liggja tvö ljón á veginum; hvort þau vaka, vitum við ekki, en ef við komum nálægt þeim, þá rífa þau okk- ur víst sundur“. „Þið gerið mig hræddan“, sagði Krist- inn, „en hvar á ég lijálpar að leita? Fari ég aftur heim í átthaga mína, þá ferst ég í eldi og brennisteini. En komist ég til hinnar liimnesku borgar, þá er ég úr allri hættu. Ég verð að hætta á það. Aft- urhvarf væri opinn dauði. Dauðinn get- ur að sönnu hitt mig, ef ég held áfram, en eilíft líf liggur á bak við. Ég held því áfram“. Þeir Huglaus og Vantrausti hlupu nú alla leið ofan fjallið, en Kristinn hélt áfram uppgöngu sinni. En er Kristinn fór að hugleiða orð þeirra Huglauss og Vantrausta, þá þreifaði hann í barm sér eftir skrá sinni, til að leita sér þar liugg- unar, en hann fann liana ekki. Hugsum oss óttann, sem greip hann þá. Hann vissi ekki, hvað hann skyldi nú til ráðs taka. Skráin hafði verið hugfró lians og átti að vera honum aðgöngu-heimild að hinni himnesku borg. Hann var gjörsamlega ráðþrota. Loks kom honum í hug, að hann hafði sofið í laufskálanum; féll hann þá á kné og bað Guð að fyrirgefa sér glópsku sína. Hann fór nú síðan til baka og skyggndist eftir skránni alla leið- ina, fullur sorgar ; hann andvarpaði ým- ist eða grét og ásakaði sjálfan sig sár- lega fyrir þá glópsku sína, að hann skyldi detta út af í svefn í laufskálanum, sem einungis var ætlaður til þess að þreyttir LJÓSBERINN ferðamenn tækju sér þar litla hvíld. Alla leiðina svipaðist harin á báðar hendur eftir skránni. Svona hélt hann áfram, unz hann kom auga á larifskálann, þar sem hann hafði setið og sofnað út af. Þetta varð honum nýtt sorgarefni og ýfði sárið upp að nýju (Opinb. 2, 4; I. Þess. 56, 8); hann kvartaði yfir sínum syndsam- lega svefni og mælti: „Ó, mig vesælan! að ég skyldi sofna um hábjartan daginn; að ég skyldi geta sofnað mitt í mannraun minni, að ég skyldi láta það eftir mak- indum mínum, að seðja holdlega girnd mína á þeim stað, sem mér var ætlaður til að endurnæra sálu mína! Hversu mörg mæðuspor hef ég nú eigi gengið til ónýtis! Hið sama henti Israelsmenn, er þeir voru sendir aftur til Rauðahafs- ins sakir synda sinna (5. Mós. 1). Nú verð ég að ganga þessi spor sorgmædd- ur, sem ég hefði getað gengið fagnandi ; þrisvar sinnum hef ég gengið sömu leið- ina, sem ég liefði ekki þurft að ganga oftar en einu sinni. Og nú er dagur brátt að kvöldi kominn og verð ég því líklega að fara alla Ieiðina náttfari. Ó, að ég hefði aldrei sofnað!“ Nú var hann aftur kominn að lauf- skálanum. Þar settist hann niður, sat um tíma og grét. Meðan hann sat þarna kom hann loks auga á skrána; hann tók hana upp í skyndi titrandi af geðshræringu og stakk henni í barm sér. Fögnuði hans verður ekki með orðum lýst, því að skrá- in var lionum veð fyrir eilífa lífinu — aðgöngu-heimild hans að höfn hjálpræð- isins. Hann þakkaði því Guði fyrir, að hann hafði beint auga hans einmitt þang- að, sem hún lá, og lagði nú aftur af stað 69

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.