Ljósberinn - 01.05.1945, Page 12

Ljósberinn - 01.05.1945, Page 12
LJÓSBERINN Hugsa sér, ef Hjassi sjálfur yrði allt í einu, á meðan liann væri að telja einn, tveir, þrír, orðinn að hundi eða ketti, eða einhverju enn leiðinlegra dýri. Og drengnum fannst, *hllt í einu, að liann væri að verða kafloðinn um allan kropp- inn. Og hann sá ekki nokkur sköpuð ráo að komast brott frá tröllkarlinum. Þá tók hann skjálfandi af sér húfu- pottlokið og hneigði sig djúpt fyrir kari- inum, og stamaði: „Góði, göfugi, herra tröllkarl, galdr- aðu mig ekki“. Þá krimti í karlinum og hann mælti góðlátlega. „Vertu óhræddur, Hjassi litli. En hvernig lízt þér á að koma til mín og gæta dýranna minna. Eg veit, að þú ert ágætur strákur og þér þykir vænt um dýrin“. Hjassi klóraði sér ráðaleysislega og hugsandi í höfðinu. Þetta var nú bæði nógu virðulegt og freistandi, en samt gat nú hugsazt að tröllkarlinn breytti hon- um í eitthvert dýr. Og hver vissi nema að þessi dýr, sem hann átti að hirða, væru bæði skelmar og ræningjar. Og Hjassi vesalingur gat ekki að því gert að hann fölnaði og titraði og skalf af kulda við þessa uppástungu tröllkarlsins. „Þú þarft ekkert að vera hræddur, Hjassi, enginn gerir þér neitt, ef þú ert sjálfur viðfelldinn. En gerðu eins og þér sjálfum þóknast, það eru til fleiri dreng- * 1' 66 ir en pu . „Skal ég, eða skal ég ekki?“ hugsaði Hjassi. En ákaflega væri það nú samt gaman, þegar öllu væri á botninn hvolft, að sjá hvernig umhorfs væri hjá svona 72 voldugum tröllkarli. Og svo sló Hjassi til og sagði já. Aldrei hafði drengnmn komið til hug- ar að til væri annar eins ógurlegur fjöldi dýra, eins og þarna var saman komini' hjá karlinum. Þai-na ægði öllu saman: Ijónum, pard- usdýrum, hýenum, tígrisdýrum, hestum, hundum, grísum, melrökkum, lágfótum, úlfum, köttum, músum, hænsnum, kárku- bræðrum, liröfnum, kjóum, ormum, randaflugum, tólffótungum, ánamöðk- um og fiðrildum. Það er öldungis ómögu- legt að telja þau öll upp, svo mörg voru þau. En liver tegund var í búri, út af fyrir sig og járngrindur í búrunum. „Þessi þarna voru einu sinni grimmar og undirförular manneskjur“, sagði tröll- karlinn og benti Hjassa á hýenur, orma, refi og ketti. „Þessi þarna voru einu sinni morðingjar, hélt tröllkarlinn áfram, og benti á tvö ægileg tígrisdýr, og augun í þeim brunnu af hatri og morðfýsn. En þessi þarna eru vanalegir skelmar og þjófar, og átti karlinn þá við krákurnar, hrafnana og kjóana, Og þessi páfagauk- ur þarna var í morgunn ekki annað en spjátrungur og buxnaskjóni, sem ekki hugsaði um annað en sjálfan sig og föt in sín. Ég vona að honum lærist nú bráð- um að hugsa um annað. Hestarnir þarna voru einu sinni menn, sem þrælkuðu hestana sína og lömdu þá. Flugurnar þarna voru með nefin niðri í öllu, skiftu sér af öllum sköpuðum hlutum og létu móðan mása allan liðlangan daginn. Geit- ungarnir þarna og randaflugurnar hafa margsinnis eyðilagt nafn og mannorð meðbræðra sinna á lúalegasta hátt. Grís-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.