Ljósberinn - 01.05.1945, Page 17

Ljósberinn - 01.05.1945, Page 17
LJÓSBERINN lofun sína og nú skyldi lialda dásamlega og ógleymanlega veizlu. Erlendur prins, ákaflega auðugur, fagur og voldugur, liafði orðið ástfanginn í fegurð hennar og beðið hennar. Mörgum mánuðum áður hafði verið byrjað á að sjóða, baka, steikja, brasa og búverka til hátíðar þessarar. En svo átti þessi veizla þá að verða dásamlegii og stórkostlegri og ógleymanlegri en nokkur veizla önnur, sem sögur fóru af. Boðsgestirnir voru mörg þúsund. Og það var ekki um annað talað í gervöllu land- inu. En þegar í byrjun, áður en kærustu- parið bafði skipzt á hringum, heyrðist nístingssár, skrækróma rödd, sem liróp- aði: „Prinsessa með fallega andlitið og flá- ráða hjartað, minnstu allra vesalings birð- meyjanna og herbergisþernanna, sem þú hefur klipið, klórað og barið. Og mundu eftir aumingja kaupmanninum með dýr- mæta hálsmenið, sem þú lézt varpa í dýflissu vegna þess að bann lét eftir duttl- ungum þínum“. Á augnabliki sló öllu skvaldri í diina- logn. Menn litu felmtsfullir bver á ann- an og prinsessan náfölnaði, og svo stein- leið yfir liana. Hvaðan kom þessi rödd? Þá gekk von Sýrópsstrútur fram, hneigði sig og mælti: „Heiðruðu menn og konur, það hlýtur að bafa verið einhver vitfyrringur, ein- bver kolbrjálaður maður, sem befur lát- ið sér slík orð um munn fara, því öllum bér stöddum má vera það Ijóst, að vor hágöfuga prinsessa er eins mild, göfug og dyggðug, eins og bún er fögur“. En þá heyrðist röddin aftur; sama röddin: „Hó, hæ. Hversu oft bef ég heyrt kon- unginn, Sníkjukló og þig, vera að bera ráð ykkar saman um það, hvernig þið ætt- uð að koma ár ykkar þannig fyrir borð, að konungurinn gæti fengið ný og dýr leikföng, og þið sjálfir stóreignir og of fjár“. Að þessu sinni steinleið yfir þá báða. forsætisráðherra og fjármálaráðherra. Konungurinn fölnaði að vísu sýnilega, en harkaði af sér, steig fram og ætlaði að ávarpa veizlugestina. Þá kom hinn hræðilegi tröllkarl, Kurr- iribumbumbum, sem allir þekktu, skyndilega inn í veizlusalinn. Lítill páfa- gaukur sat á öxl lians. Og tröllkarlinn snart liann með töfrasprota sínum. Og það var eins og við manninn mælt. I stað páfagauksins stóð nú þarna töfrandi fríð- ur tígulegur unglingur við hlið tröllkarls- ins. Menn tóku nú að gerast forvitnir og færðu sig nær til þess að geta séð hvað væri að gerast, og hvarvetna heyrðist hljóðskraf, pískur og spurningar. En nú tók tröllkarlinn til máls, ög þagnaði þá allur kliður. „Eg geri ráð fyrir að allir hér við- staddir þekki mig og kannist vel við mig“, sagði tröllkarlinn. „Hlustið nú vel á hvað þessi ungi maður hefur að segja yður, og ég skal ábyrgjast, að hann talar sannleika. Segðu nú frá því, Hjassi, hvernig í því liggur, að þú stendur hér“. Þá sagði Hjassi frá því, hve töfraður liann varð af fegurð prinsessunnar, og hvernig vinur lians og velunnari, hinn 77

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.