Ljósberinn - 01.05.1945, Page 19
LJÓSBERINN
MÖMMU-
DRENGUR
Ég er or'Sinn sterkur, stór,
státinn mömmu-drengur,
sit hjá pabba og syng í kór,
senn í skiprúm gengur!
TSú er ég „báöum buxum“ á
broshýr, frjáls og gldöur,
bráöum verö ég babba hjá
bezti vinnumaöur.
Kýr og œr ég rek, og ríö
rennivókrum fola.
Áöan heyröí eg undir hlíö
óskriö í honum bola.
Moldarbaröi byrstur sá
boli var aö róta.
Viö hann sagöi’ eg þetta þá:
„Þaö er Ijótt aö blóta!“
Boli gegndi’ og heim í hús
hljóp í einum spretti, —
hann varö alveg eins og mús
undir fjalaketti.
Eins og boli eöa svín
aldrei skal ég breyta, —
þessu lét hún mamma mín
mig í gœr sér heita.
Aldrei skulu oröin mín
ill í reiöi fjúka,
aldrei tóbak eöa vín
œtla ég aö brúka.
Drengskap mér og dáö ég tem,
dug og þróttinn treysti,
aldrei viö mig sjálfan sem,
syndin þótt mín freisti.
Sumar lífsins sólarljóö
syngur í gullinstrengnum,
vonin brosir glöö og góö
góöa mömm u-drengnum!
Guðmundur Guðmundsson.
79