Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 33

Ljósberinn - 01.05.1945, Síða 33
„Fyrir hvað var yður refsað?“ spurði hann alvarlegur á svipinn. „Fyrir svik“, sagði ég. Þá hnykkti hon- um við. Hann leit á mig og sagði: „Hvernig dirfist þér að segja þetta svóna blátt áfram. Þér skiljið þó lík- lega, að ég get undir engum kringum- stæðum falið yður starf við verzlun mína, fyrst þér eruð dómfelldur svikari“. „Eg hef lofað fangelsisprestinum mín- um, að segja alltaf héðan af sannleikann, hvaða afleiðingar sem það kann að hafa fyrir mig“, svaraði ég. Ég sá, að hann varð hrærður. Því næst sagði hann: „Hafið þér einnig lofað honum því, að vera alltaf heiðarlegur og trúr héðan af“. Er ég hafði svarað spurningu hans ákveðið játandi, tók hann í liönd mér og sagði: „Fyrst þér hafið haldið annað lof- orðið og sagt sannleikann, vona ég að •þér haldið einnig hitt loforðið og gerist trúr og dyggur þjónn minn“. Ég fékk stöðuna, og síðan hefur mér liðið ágætlega. Ég er kominn til þess að þakka yður, herra prestur, innilega fyrir yðar holla ráð: AS segja alltaf sannleikann“. SITT AF HVERJU Grænland — stærsta eyland veraldarinnar — er 2 182 000 ferkm. að flatarmáli. Fyrsta K. F. U. M.-félagiö var stofnað' í London 6. júní 1844. Stofnandinn, George Williams, var fædd- ur árið 1821. K. F. U. M. á íslandi var stofnað í Reykjavík 2. jan. 1899. Séra Friðrik Friðriksson, stofnandinn, er fæddur 25. maí 1868. Stytzta leiðin yfir Atlantshaf til Evrópu, sem er frá New Foundlund til vesturstrandar íslands, er 3000 km. LJÓ SBERINM MITTISBANDIÐ Hann: „Nú er klukkan að siá tólf, kona góð, og þá er kominn tími til að hypja sig heim. Bíddu, góða mín, meðan ég er að binda mittisbandið utan um sloppinn minn. Svona, nú er ég tilbúinn. En livað er þetta? Hver er að toga mig aftur á bak?“ 93

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.